Morgunblaðið - 15.09.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
35
Heimskautarannsóknir:
í augum Kanadamanna er hér
aðeins um smávægilegt deilumál
að ræða ef horft er til þess sem
fram fer á vegum Sovétmanna og
Bandaríkjamanna undir íshellum
norðurhafa. Þar leika kjamorkukaf-
bátar lausum hala en Kanadamenn
komast hvergi nærri vegna þess að
þeir eiga ekki kjamorkukafbáta.
Kanadamenn vinna nú að því að
þróa rafeinda-hlustunarbúnað sem
nær að nema í gegnum ísinn og
fylgjast með kafbátum undir hon-
Ástralía:
Sjálfsmorð
tvisvar sinn-
um algengari
en í Banda-
ríkjunum
Melbourne, Reuter.
TVISVAR sinnum fleiri Ástralir
en Bandaríkjamenn fremja
sjálfsmorð. Þetta kom fram í
fyrirlestri sem haldinn var á ráð-
stefnu geðhjúkrunarfólks í
Ástralíu á mánudag.
27 af hveijum 100.000 Áströlum
fremja sjálfsmorð. Er þetta talið
vera með hæstu hlutföllum í heimi,
en í Bandaríkjunum er þetta hlut-
fall 14 af 100.000. Víðast hvar í
heiminum eru helstu orsakir dauða
fólks undir 25 ára aldri slys eða
morð, en í Ástralíu eru það sjálfs-
morðin sem taka stærstan toll hjá
ungu fólki.
Síðustu 20 árin hefur hlutfall
ungs fólks sem fremur sjálfsmorð
hækkað um 120%, „það er kreppa
í Ástralíu" sagði fyrirlesarinn Peter
Baume. Baume telur að í raun séu
sjálfsmorðin enn fleiri en opinberar
tölur gefa til kynna. Hann sagði
að ungt fólk fyrirfæri sér af ýmsum
orsökum t.d. vegna vinaslita, starfs-
missis, ástvinamissis eða heilsuleys-
is.
Sovétríkin og Kanada
semja um samstarf
- minnkar spennu milli landanna
Genf, Observer.
Rannsóknastofnanir í Kanada
og Sovétrikjunum ætla að auka
samskipti sín á milli og hefja
skipti á upplýsingum um rann-
sóknir á heimskautasváeðum.
Hafa þessar þjóðir nýverið gert
með sér samkomulag um að
skiptast á upplýsingum á öllum
sviðum heimskautarannsókna.
Samkomulagið gerir ráð fyrir að
þjóðimar skiptist á upplýsingum á
sviði jarðvísinda, umhverfismála,
mannfræði, byggingaverkfræði,
haffræði og rannsókna vegna olíu-
leitar. Báðar þjóðir hafa lýst því
yfír að þær bindi miklar vonir við
þetta samkomulag og mikil bjart-
sýni ríkir á báða bóga.
Samkomulagið siglir í kjölfar
efnahagsspár fyrir næsta áratug
þar sem þykir fyrirsjáanlegt að olíu-
verð hækki til muna. Hækkun olíu
gerir það arðbært á ný að vinna
olíu á hafsbotni á heimskautasvæð-
um. Kanadamenn og Sovétmenn
hafa á undanfömum árum deilt um
yfírráð úthafssvæða.
Þessar þjóðir hafa m.a. deilt um
olíuauðugt svæði á hafsbotni,
Alpha-hrygginn, sem Sovétmenn
telja sig eiga tilkall til. Nýverið
sendi hópur kanadískra vísinda-
manna frá sér niðurstöður um
rannsóknir á þessu svæði. Munu
Kanadamenn krefjast þess að fá
yfirráð yfír Alpha-hryggnum á þeim
forsendum að hann sé jarðfræðileg-
ur hluti af Ellismere-eyju, nyrsta
hluta Kanada.
um. Þetta er hluti af samstarfsverk-
efni margra þjóða sem ætla að
koma upp kerfi til að fylgjast með
umferð um norðurhöf. í því skyni
á að koma upp neti af hlustunar-
og fjarskiptastöðvum og auka
gfæslu á sjó og landi.
Samkomulagið sem ríkin hafa
nú gert með sér nær til nokkurra
háskóla og rannsóknastofnana í
báðum löndum og er talið geta
„opnað dyr að árangursríkum við-
skiptasamböndum í Norðurhöfum á
sviðum þar sem kanadísk geta,
tæki og vélar gætu komið á móti
sovéskum þörfum," segja bjartsýnir
samningamenn. Aðgangur að sov-
éskum rannsóknagögnum hefur
verið mjög takmarkaður til þessa
og mun samkomulagið auka kanad-
ískum vísindamönnum aðgang að
því sem vitað ér að Sovétmenn hafa
rannsakað.
\Tann
Security since 1795
peningaskápar
Eldtraustir — pjótheldir
heimsþekkt framleiðsla.
FaQ\®9
A
^ónQ8'®
1 í
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SlMI 651000.
„MARTIN KREFST 110% AF SÍNUM
MONNUM . . . OQ FÆR ÞAU!
ÞETTA SPARAR ÞÉR ÞÚSUNDIR
PUNDA“
^ x ^ m. • Jón Qlgeirsson, FYLKI LTD
Martin Hubbard byrjaði hjá mér fyrir rúmum
tíu árum. Núna er hann sá besti á eyrinni. Hann
skipuleggur hverja löndun út í ystu æsar. Það er
honum að þakka að löndunartíminn getur styst
a.m.k. um 2 klst., sem sparar þér umtalsverðar
upphæðir. Martin þekkir sína menn. Hann er
ákveðinn og réttsýnn. Undir hans stjórn verður
löndunarhópurinn að samstæðu keppnisliði . . .
einbeittu og harðsnúnu.
Martin er þyngdar sinnar virði í gulli. Ekki
bara fyrir Fylki, heldur og fyrir þig. Þetta er ein-
mitt það sem Fylkir vill veita þér - 110% þjónusta
og meiri hagnaður.
Ertu með afla? Hafðu samband.
>X<
lYI.KIK LTD
ÖRUGGASTA LEIÐIN AÐ SÖLUMETI
WHARNCI.IFFE ROAD. FISH DOCKS. GRIMSBY. TELEX 527173 FYLKIR G. BRETLANDI. PÓSTFAX 55134.
___SÍMAR: (90-44-472) 44721 OG 53181. HEIMASÍMAR: 43203 (JÓN OLGEIRSSON) OG 823688 (THEODÓR GUÐBERGSSON).