Morgunblaðið - 15.09.1987, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
Hrísey:
Borað eftir
heitu vatni
Á VEGUM Hríseyjarhrepps verð-
ur borað eftir heitu vatni í
eyjunni næstu daga. Hitaveita er
í þorpinu, en mikil úrfelling er
úr vatninu og hefur það verið til
stórvandræða fyrir hitaveituna
og íbúana.
Guðjón Bjömsson sveitarstjóri
segir að niðurstöður jarðfræðinga
sem rannsakað hafa borunarmögu-
leika í Hrísey gæfu góðar vonir um
að gott heitt vatn fáist. Hann sagði
að borað yrði skammt frá nauta-
stöðinni, og byijað í næstu viku.
Fyrst verða boraðar 1-3 rannsókna-
holur og síðan ein virkjunarhola.
Fyrirtækið ísbor hefur tekið verkið
að sér og er kostnaður áætlaður
tæpar 4 milljónir kr.
Guðjón segir að mikil vandræði
séu hjá hitaveitunni. Vatnið sé
slæmt og heldur ekki nógu heitt.
Þá séu fjárhagserfiðleikar. Hann
Segir að ekki líði sá dagur að'ekki
sé stífluð heimæð að einhveiju húsi.
Það hefði í för með sér mikinn auka-
kostnað fyrir hitaveituna og fólkið,
auk þess sem ekki váeri hægt að
verðleggja vatnið hátt þegar
ástandið væri svona. Guðjón vonast
til að nú sjáist fyrir endann á þess-
um erfiðleikum með nýrri borholu.
Bæjarsljórn
veitir verðlaun
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef-
ur samþykkt að greiða 250
þúsund króna verðlaunafé vegna
Skákþings íslands í landsliðs-
flokki sem fram fer á Akureyri
á næstunni.
Skákþingið verður haldið dagana
17. september til 2. október næst-
komandi og er það liður í afmælis-
haldi Akureyrarbæjar.
Snjór niður
undir bæi
Akureyri.
FYRSTI snjórinn í byggð á þessu
hausti féll norðanlands- og aust-
an í gær og vaknaði fólk á þessu
svæði upp við það að nú er kom-
ið haust. Fjöll við Eyjafjörð urðu
hvít alveg niður undir bæi, en
snjór náði ekki að festast á lág-
lendi.
Veður hefur farið kólnandi á
norðanverðu landinu í norð-austan-
áttinni sem verið hefur undanfama
daga. í fyrrinótt breyttist úrkoman
sfðan úr rigningu í snjókomu eða
slydduél.
Hálka var á fjallvegum í gær-
morgun, til dæmis á Lágheiði,
Öxnadalsheiði og Víkurskarði, en
það stóð ekki lengi eftir að bílar
fóru að aka þar um.
Norðlendingar láta sér ekki
bregða við þó svolítið vetrarlegt sé
um að litast í bili. Segja að þetta
sé eðlilegur hlutur á þessum
árstíma. Þrátt fyrir þetta skot núna
geti hann brostið á með blíðu og
haldist þannig fram undir jól.
Síðdegis í gær fór að birta til og
er spáð björtu veðri norðanlands
næstu daga — en hvort það stendur
fram undir jól verður að koma í ljós.
Hundasýning við Glerárskóla:
Islenskir fjárhundar signrsælir
UM ÞRJÁTÍU hundar tóku þátt
í hundasýningu Hundaræktar-
félags íslands á Akureyri á
laugardag. íslenskur fjárhund-
ur, Snotra, var valinn besti
hundurinn á sýningunni.
Snotra er 7 ára, undan Vöku
og Hróa. Eigandi hennar er Kol-
brún Kristjánsdóttir. í öðm sæti
keppninnar varð íslenski fjár-
hundurinn Bangsi, 5 ára. Eigandi
hans er Kristín Sveinsdóttir. í
þriðja sæti varð Elía, sem er Gold-
en Retriever. Eigandi Katjana.
Hundasýningin fór fram við
Glerárskóla í heldur leiðinlegu
veðri. Dómari var Öivind Asp frá
Noregi. Hundamir á sýningunni
voru af svæðinu frá Skagafirði
að Húsavík. Þetta er í annað
skipti sem Hundaræktarfélagið
heldur sýningu á Akureyri. Fyrsta
sýningin var haldin í Kjamaskógi
í fyrra, í indælis veðri.
Hundaeigendur á Norðurlandi
eru nú að undirbúa stofnun svæð-
isstjómar Hundaræktarfélags
íslands til að annast félagsmál
hundaeigenda, að sögn Róberts
Friðrikssonar.
Hrísey:
Ferðamannastraum-
urinn eykst stöðugt
Ný ferjubryggja á Árskógssandi
verður tekin í notkun á næstunni
Morgunblaðið/HBj.
Um 30 hundar og töluvert af fólki skemmti sér hið besta á hundasýningunni við Glerárskóla á
laugardag.
MIKIL aukning hefur orðið á
straumi ferðafólks tU Hríseyjar
á undanförnum árum. Aukning
hefur einnig orðið á vöruflutn-
ingum hjá Hríseyjarferjunni
Sævari og eru Hríseyingar nú
að athuga möguleika á kaupum
á stærra skipi. Á Árskógsandi
er verið að byggja nýja feiju-
bryggju sem tekin verður í
notkun síðar í haust.
Hríseyjarferjan gengur á milli
Arskógssands og Hríseyjar. Hún
var smíöuð árið 1979, fyrst og
fremst til fólksflutninga. Eftir að
flóabáturinn Drangur hætti að
sigla um Eyjafjörð bættust vöm-
flutningamir við og er nú svo
komið að ferjan annar ekki flutn-
ingum á milli lands og eyjar þegar
mest er að gera, að sögn Guðjóns
Bjömssonar sveitarstjóra í Hrísey,
en það er Hríseyjarhreppur sem
gerir feijuna út. Guðjón segir að
ný feija þurfí að vera hentugri til
vömflutninga, þannig að vöm-
flutningabílar geti ekið viðstöðu-
laust um borð og frá.
Guðjón segir að um síðustu
mánaðamót hafí 33 þúsund far-
þegar verið búnir að ferðast með
Sævari, sem er 16% aukning frá
fyrra ári, auk þess sem hún flutti
nokkuð á þricýa þúsund tonn af
vömm. Hann sagði að stöðug
aukning hefði verið á flutningum
undanfarin ár. I fyrra hefðu 37
þúsund manns tekið sér far með
feijunni en í ár stefndi í að þeir
yrðu 43 þúsund.
Aðspurður um hvað ferðafólk
sæktist eftir í Hrísey, nefndi Guð-
jón að fólki þætti spennandi að
fara í stutta sjóferð og komast út
í eyju. Eyjan væri mjög gróin og
fuglalíf mikið. Nautastöðin og
veitingahúsið Brekka með
galloway-steikumar hefði einnig
aðdráttarafl. Hann sagði að flest-
ir ferðamann fæm samdægurs í
land, en nokkuð væri um að fólk
gisti og færi það vaxandi. Hann
sagði að töluvert væri um að hóp-
ar kæmu í dagsferðir, til dæmis
hópar af vinnustöðum, skoðuðu
eyjuna og borðuðu nautasteik og
fæm svo kannski út að skemmta
sér á Akureyri um kvöldið.
Vel smalaðist hjá Akur-
eyrarbændum um helgina
AKUREYRINGAR smöluðu fé
sinu og réttuðu á laugardag.
Talið er að um 1.700 fjár hafi
verið dregið í dilka. Fé Akur-
eyringa hefur farið fækkandi en
talið er að um 3.000 fjár hafi
komið af fjalli hér áður fyrr,
þegar flest var.
Fé Akureyrínga gengur á Glerár-
dal, bæði syðri og ytri, og nágrenni.
Að sögn Svanbergs Þórðarsonar,
umsjónarmanns jarðeigna Akur-
eyrarbæjar, fóm fjórir menn upp á
föstudag og smöluðu dalbotninn og
komu fénu af stað niður. Gangna-
mennimir fóm síðan ríðandi
snemma á laugardag og komu með
féð í báðar réttimar um hádegið.
Svæðið skiptist í tvennt. Sautján
menn leituðu Glerárdal ytri ásamt
Hlíðarfjalli og er það fé rekið í Gler-
árrétt, sem er norðan ár. Á sama
tíma smöluðu nítján menn syðri
dalinn ásamt Súlnamýmm og fjall-
inu og ráku í Jaðarsrétt, en það er
aðalskilarétt Akureyringa.
Smölun og réttir gengu vel að
sögn Svanbergs og taldi hann að
vel hefði smalast. Heldur fleiri
menn hefðu verið sendir í göngum-
ar og væri ætlunin að sleppa 2.
göngum og fara síðan í eftirleitir
eftir um það bil hálfan mánuð.
Reitingur af fólki var í réttunum.
Svanberg taldi þó að óvenju margt
fólk hefði verið í Glerárrétt að þessu
sinni.
í hópi fjáreigenda em bæði
bændur á lögbýlum og tómstunda-
bændur. Sagði Svanberg að tóm-
stundabændunum fækkaði og þeir
sem eftir væm fækkuðu einnig fé
sínu, enda væm mál þeirra manna
sem ekki hefðu fullvirðisrétt í stöð-
ugri óvissu.
Börn og fullorðnir að starfi í Jaðarsrétt á laugardaginn.
Morgunblaðið/HBj.