Morgunblaðið - 15.09.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987
55
Björn Arnórsson
„Þessar úrklippur eru
aðeins sáralítið brot af
því f lóði, sem dundi á
landsmönnum þessa
viðburðaríku daga.“
Síðbúinn bandamaður
En nú hefur BSRB borist óvænt-
ur liðsauki, reyndar þremur árum
of seint, en betra er seint en aldr-
ei. I viðtali í nýjasta tölublaði
Mannlífs segir forsætisráðherra
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins:
„ .. . eftir verkfall opinberra
starfsmanna haustið 1984, sem
auðvitað varð að mestu leyti til
vegna klúðurs af hálfu þess ráð-
herra, sem fór með samningamálin
í ríkisstjóminni, þá var óhjákvæmi-
legt að ég gripi inní. Það gekk
ekki þrautalaust."
Mannlíf: „Þannig að þú ferð inn
í ríkisstjómina tilneyddur, til að
leiðrétta mistök Alberts Guð-
mundssonar og koma honum burt
úr fjármálaráðuneytinu?"
Þorsteinn Pálsson: „Já, á vissan
hátt. Ella hefði ég haldið mínu
striki. Ég hefði lagt til strax í sept-
ember 1984 að við reyndum að ná
því sem kallað hefur verið „þjóðar-
sátt“ og færðum fómir í ríkisfjár-
málum til að það tækist. Þessu
hafnaði fyrrverandi fjármálaráð-
herra með öllu. Hann valdi leið
átakanna. Það gat ég ekki sætt
mig við sem flokksformaður."
Hér er afdráttarlaust tekið und-
ir það, sem forysta BSRB sagði á
sínum tíma. Enginn fer ótilneyddur
út í verkfall. Þetta er reyndar það
sama og verkalýðsforystan hefur
ætíð svarað andstæðingum sínum.
Verkfoli eru alltof mikil fóm af
hálfu félagsmanna til þess að
nokkur maður geti leyft sér að
efna til þeirra ótilneyddur.
Nú liggur fyrir afdráttarlaus
yfírlýsing þáverandi og núverandi
formanns Sjálfstæðisflokksins um
það að hann horfði sáróánægður
á þáverandi fjármálaráðherra
neyða opinbera starfsmenn út í ein
hörðustu verkfallsátök á íslandi
mörg undanfarin ár.
Verkfallið varð AUÐVITAÐ
vegna aðgerða ríkisstjómar —
HUN valdi leið átakanna — EKKI
BSRB.
Fjölmiðlar —
Morgunblaðið
Þeir eru margir fjölmiðlamir
sem birta ofangreind ummæli Þor-
steins Pálssonar þessa dagana. En
munu fjöimiðlar — eins og t.d.
Morgunblaðið — draga af þeim
einhveija lærdóma. Ef ummæli
flokksformannsins eru rétt, sem
a.m.k. Staksteinar virðast ekki
draga í efa, er þá ekki tímabært
fyrir Morgunblaðið að gera gágn-
rýna úttekt á eigin skrifum þessa
örlagaríku haustdaga þar sem m.a.
væri harmað að Morgunblaðið hafí
kennt forystu og félagsmönnum
BSRB um það sem var atvinnurek-
andanum ríkisvaldinu og handhafa
þess, fjármálaráðherra, að kenna?
íþróttaf élag Mikla-
holtshrepps lyfti-
stöng félagsmála
Borg í Miklaholtshreppi. _________
SNEMMA á þessu ári átti íþrótta-
félag Miklaholtshrepps 50 ára
afmæli. Stofndagur þess er 31.
janúar 1937.
Iþróttafélag Miklaholtshrepps hef-
ur látið margt gott af sér leiða frá
stofnun þess. Á stofnfundi þess gjörð-
ist nálega allt ungt fólk í hreppnum
stofnfélagar. Hefur sú þróun verið
allan tímann frá stofnun þess að
æska þessarar sveitar hefur starfað
í félaginu og mörg árin af miklum
krafti. Hæst ber fijálsíþróttir í starfí
félagsins, þó voru nokkrir innan þess
sem lengi héldu við glímunni.
Aðstaða til æfínga var lengi bág-
borin en nú er kominn íþróttavöllur
við félagsheimilið Breiðablik og held-
ur félagið þar æfíngar, einkanlega á
sumrin. Nú í sumar hefur góður þjálf-
ari frá Stykkishólmi komið eitt kvöld
í viku til þess að liðsinna félögum
íþróttafélagsins. Hafa þessar æfingar
verið vel sóttar. Margt fleira mætti
segja um sögu þessa félagsskapar
sem verið hefur lyftistöng félagsmála
og menningar fyrir sveit og hérað.
Fyrstu stjóm félagsins skipuðu:
Kristján Þórðarson, Miðhrauni, for-
Morgur.blaðið/Páll Pálsson
Laufey Bjamadóttir, Stakkhamri
með farandbikar sem sérieyfis-
bílar Helga Péturssonar hf. gáfu
íþróttafélagi Miklaholtshrepps.
maður, Sigfus Sigurðsson Hrísdal,
ritari, og Stefán Asgrímsson, Borg,
gjaldkeri. Núverandi stjóm skipa:
Eggert Kjartansson, Hafstöðum,
formaður, Ema Bjamadóttir, Stakk-
hamri, ritari og Auðunn Pálsson,
gjaldkeri.
- Páll
H . ........................
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Tíu þúsund vörutegundir eru allra myndarlegasta
úrval, finnst þér ekki? Þú getur verið viss um að finna hjá okkur,
fljótt og auðveldlega, einmitt hlutinn sem þig vantar
fyrir heimilið, húsið eða tómstundirnar.
Byggt og búið er verslunin fyrir þig - skemmtílcgU
verslunin í Kringlunni.
K R I N
L U N N I
Höfundur er hagfræðingur BSRB.
J
AUKhf. 10.86/SÍA _________________________________________________________________________________I ARGUS/SÍA