Morgunblaðið - 15.09.1987, Page 60

Morgunblaðið - 15.09.1987, Page 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1987 t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA ÞÓRÐARDÓTTIR frá Einkofa, Eyrarbakka, lést 13. september í Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Friðrik Steindórsson, Kjartan Þorleifsson, Kristfn Kristinsdóttir, Þórey Þorleifsdóttir og barnabörn. t Bróðir okkar, BALDUR BJARNASON magister, lóst á Sólvangi 11. september. Unnur Bjarnadóttir, Erla Bjarnadóttir, Auður Bjarnadóttir. t Eiginkona mín, BRYNHiLDUR ÓLAFSDÓTTIR, andaðist í Landspítalanum 13. september. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aöstandenda, Þorsteinn Magnússon. t Eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir og afi, EINAR INGVAR JÓNSSON, Álftamýri 50, lést 29. ágúst sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Katrin Sigurjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Faðir minn, ÍVAR GÍSLASON húsasmíðameistari frá Haugi i Gaulverjabœjarhreppi, lést í Borgarspítalanum laugardaginn 12. september. Jóhann Viðar ívarsson. t Móðir okkar og tengdamóöir, JÓHANNA MARTEINSDÓTTIR frá Fáskrúðsfirði, andaðist 11. september. Edith og Þórður Jóhannesson. t Faðir okkar, KARL ÁSGEIRSSON sfmrftari, frá Akureyri, andaðist á Grensásdeild Borgarspítalans iaugardaginn 12. september. Ragnar Karlsson, Ásta Karlsdóttir, Ásgeir Karlsson. t Ástkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaðir og afi, MAGNÚS INGÓLFSSON, lóst ( Landspftalanum 13. september. Sigurbjörg Guðvarðardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir mín, SIGRÍÐUR SAMÚELSDÓTTIR, áður Goðatúni 7, Garðabæ, lést á Hrafnistu Hafnarfirði laugardaginn 12. september. Gunnar Páll Jakobsson. Pétur Þór Magn- ússon Minning Fæddur 22. mars 1957 Dáinn 5. september 1987 Elsti sonurinn í Einilundi 1 er dáinn, aðeins þrítugur að aldri. Hann hét Pétur Þór. Hann var myndarlegur á velli, vinmargur og vinfastur, heill í öllu, er hann tók sér fyrir hendur. Lagði lóð á vogar- skálar þeim megin, sem honum þótti rétt, þó það hefði í för með sér óþægindi fyrir hann sjálfan. Strax á unga aldri komu í ljós per- sónutöfrar, sem opnuðu honum leiðina að hjarta þeirra, sem hann umgekkst. Hann kunni því líka vel að vera elskaður og dáður. En það voru heldur ekki margir, sem voru glaðari, hlýiri og hugulsamari en Pétur Þór. Ég fann svo vel þessa hlýju, sem stafaði frá honum. Þessi ungi maður á hraðbraut nútímans gaf sér tíma til að senda mér, frænku úti í bsé, kort á jólum og físk úr róðri. Hann gekk glaðbeittur til móts við lífíð og tilveruna. Hann giftist, hann eignaðist afkomendur, hann skildi. Hann stundaði ýmis störf til sjós og lands, einkum til sjós og það gaf á bátinn hjá honum. En alltaf var hann sami góði Pétur, fylginn sér og einbeittur við allt, sem hann tók sér fyrir hendur. í sumar var hann bflstjóri hjá Guðm. Jónassyni í hálendisferðum, þar naut hann sín sérlega vel, úr- ræðagóður, duglegur og góður enskumaður. Skemmtilegur og vin- sæll hefur hann verið, ef dæma má að þakkarkortum frá ánægðum farþegum. Hin stóra fjölskylda hans syrgir hann og við geymum öll minningar um hann, hver fyrir sig og biðjum honum fararheilla og þökkum sam- fylgdina. A þessari stundu hugsum við sérstaklega til bamanna hans, foreldra og systkina, einnig móður- foreldra hans, Péturs og Guðríðar og biðjum þeim öllum blessunar Guðs. Einnig sendum við innilegar samúðarkveðjur til allra, sem bera söknuð í bijósti við fráfall þessa góða drengs. Blessuð sé minning hans. Guðrún Pétursdóttir Þegar kær vinur fellur frá vakna margar spumingar og rót kemur á tilfinningamar. Sá sannleikur að eiga ekki eftir að sjá hann Pétur minn né heyra er erfítt að sætta sig við, það er svo margt ósagt og ógert. Pétur var mörgum góðum kost- um búinn, hann var fallegur, hlýr og það var auðvelt að láta sér þykja vænt um hann. Hann bæði kenndi mér og gaf mér margt sem er mér ljúft veganesti. Mig langar að þakka Pétri fyrir þær stundir sem við áttum saman og litla ljósið, son okkar, sem verm- ir minninguna um góðan dreng. Það er sárt að litlu fallegu bömin hans fái ekki notið pabba síns, en hann verður hjá þeim á annan hátt. Ég votta litlu strákunum hans, þeim Leon og Magnúsi, fjölskyld- unni Einilundi 1, ömmu og afa í Miðleiti mína innilegustu samúð og megi góður guð styrkja þau öll á þessari erfíðu stundu. Kata Hóglega hæglega á hafsæng þýða, sólin sæla! síg þú til viðar. Nú er um heiðar himin-brautir för þín farin yfir frjóvga jörð. Mér kom í hug fyrsta erindi Sól- setursljóða Jónasar Hallgrímssonar er ég minnist systursonar míns, Péturs Þórs Magnússonar, er lést svo sviplega 5. september sl., langt um aldur fram. Pétur Þór fæddist 22. mars 1957 á Akureyri. Fyrstu árin ólst hann upp hjá afa sínum og ömmu, þeim Pétri Sigurðssyni og Guðríði Krist- jánsdóttur. Alla tíð síðan var Pétur Þór augasteinn þeirra. Foreldrar Péturs era þau Ingibjörg Péturs- dóttir og Magnús Karl Pétursson, Einilundi 1 í Garðabæ. Kynni mín af Pétri Þór hófust er hann kom vestur í Grandarfjörð komabam og hef ég æ síðan fylgst með honum, uppvexti hans, bemsku, unglings- og manndóms- áram. Þótt margt hafí drifíð á daga frænda míns, bæði súrt og sætt, á ég engar minningar um hann aðrar en góðar. Engan mann hef ég þekkt sem var jafn greiðvikinn og hjálp- samur. Pétur var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd ef þess þurfti með. Bjartsýni var honum í blóð borin, hversu þanglega sem stund- um virtist horfa hjá honum. Oft þegar hann kom af sjónum heimsótti hann okkur hjónin með físk í farteskinu. Þá settist hann í eldhúskrókinn, þáði kaffísopa og spjallaði um heima óg geima, kátur og bjartsýnn. Viðkynningu við góðan dreng þakka ég og fjölskylda mín. Að lokum sendi ég bömum Pét- urs Þórs, foreldram, systkinum, afa og ömmu, svo og öðram vinum og vandamönnum, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sigrún Pétursdóttir t Maöurinn minn, STYRKÁR GUÐJÓNSSON fráTungu, Miklubraut 76, lést 12. september. Unnur Sigfúsdóttir. t Faðir okkar og tengdafaðir, FELIX PÉTURSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. september kl. 13.30. Hörður Felixson, Kolbrún Skaftadóttir, Bjarni Felixson, Álfheiður Gísladóttir, Gunnar Felixson, Hilda Guðmundsdóttir. t Faðir minn, tengdafaöir og afi, KRISTINN HELGASON, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 16. september kl. 13.30. Guðlaug Elfsa Kristinsdóttir, Nanna Snædal, Jakob Bjarnar, Atli Geir og Stefán Snær Grétarssynir, Maria Anna Þorsteinsdóttir og synir. t Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SONJU GÍSLADÓTTUR hjúkrunarkonu, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. september kl. 10.30. Eva Geirsdóttir, Jón Geirsson, Sturla Geirsson, Þóra Geirsdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SVEINN V. ÓLAFSSON hljóðfæraleikari, Sigtúni 29, verður jarðsettur frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 17. septem- ber kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarfélög. Hanna Sigurbjörnsdóttir, Ólafur Sveinsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Arnór Sveinsson, Hrafnhildur Rodgers, Sigurbjörn Sveinsson, Elfn Ásta Hallgrfmsson og barnabörnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.