Morgunblaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
Sigríður Stefánsdóttir og Ólafur
Ragnar Grímsson eru í kjöri til
formanns.
Alþýðubandalagið í
Reykjavík:
Harkaleg
átök vegna
kosninga
100 fulltrúa
Guðrún og Kristín
styðja Ólaf Ragnar
HÖRÐ átök hafa átt sér stað inn-
an Alþýðubandalagsins í
Reykjavík undanfarna daga
vegna fundar Alþýðubandalags-
ins í kvöld, þar sem valdir verða
um 100 fulltrúar af alls 300, sem
munu sitja landsfund Alþýðu-
bandalagsins i byrjun næsta
mánaðar og veija nýjan formann
fyrir flokkinn. Baráttan stendur
á milli Sigriðar Stefánsdóttur frá
Akureyri og Ólafs Ragnars
Grimssonar af Reykjanesi. Tals-
verð smölun hefur átt sér stað inn
i Alþýðubandalagið i tengslum við
forval i siðustu sveitarstjórna- og
alþingiskosningum.
Uppstillingamefnd Alþýðubanda-
lagsins hefur skilað tillögu um 100
fulltrúa og jafn marga varamenn,
en samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er öruggur meirihluti meðal
aðalmanna stuðningsmenn Sigríðar,
en Ólafur Ragnar er talinn eiga hlut-
fallslega meiri stuðning meðal
varamanna. í gærkvöldi rann út
frestur til að skila tillögum um lands-
fundarfulltrúa og var skilað inn
tillögum þar að lútandi, þannig að
listi uppstillingamefndar verður ekki
sjálfkjörinn og fundarmenn, sem
reiknað er með að verði nokkur
hundruð, kjósa þá 100 nöfn úr hópi
allra, sem em í framboði, hvort sem
þeir eru aðalmenn eða varamenn í
uppstillingum. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að stuðningsmenn
Sigríðar muni leggja áherslu á að
listi uppstillingamefndar verði kos-
inn, en stuðningsmenn Ólafs
Ragnars muni keppa að því að riðla
listum.
Kristín Á. Ólafsdóttir varaformað-
ur Alþýðubandalagsins og Guðrún
Helgadóttir alþingismaður lýstu því
yfir í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að þær styddu Ólaf Ragn-
ar Grímsson í formannskjörinu.
Sjá: „Hæfasti maður sem völ
er á“ bls. 33.
Óvenjulegt sundafrek Hörpu:
Kýrin vann sér til lífs að
synda yfir Onundarfjörð
Skipti um eigendur er hún sté á land og var gefið nafnið Sæunn
KÝRIN Harpa frá bæn^
um Neðri- Breiðadal
vann það óvenjulega
afrek á þriðjudag
að synda yfir Önundarfjörð,
rúmlega tveggja kílómetra
leið, frá Flateyri og yfir í
Valþjófsdal. Verið var að
leiða Hörpu til slátrunar
þegar atvikið átti sér stað,
en að loknu afreki þessu var
lífi skepnunnar þyrmt og er
hún nú við góða heilsu í fjós-
inu á Kirkjubóli í Valþjófs-
dal og hefur reyndar hlotið
nýtt nafn, Sæunn.
Að sögn Halldórs Mikaelsson-
ar, bónda í Neðri-Breiðadal, sleit
Harpa sig lausa þegar komið var
að sláturhúsinu á Flateyri, fór
beint í sjóinn og synti sem leið
lá yfir í Valþjófsdal. Hún var um
klukkustund á sundi og virtist
eiga eftir nóg þrek að sundinu
loknu. „Þótt maður viti auðvitað
aldrei hvað svona skepnur hugsa
er engu líkara en hún hafi skilið
hvað til stóð,“ sagði Halldór.
„Hún hefur alltaf verið afskap-
lega gæf og gott að umgangast
hana og því ólíkt henni að slíta
sig svona lausa, eins og hún
gerði þama við sláturhúsdym-
ar.“
Björgunarsveitarmenn frá
Flateyri fóru á eftir Hörpu og
fylgdu henni síðasta spölinn, þar
til hún tók land í fjömnni fyrir
neðan bæinn Kirkjuból. Þar í fjö-
mnni keypti bóndinn á Kirkju-
bóli, Guðmundur Steinar
Björgmundsson, Hörpu og gaf
henni nafnið Sæunn.
Leiðin úr fjömnni og heim að
bænum er um 1 km og var ekki
að sjá á Sæunni að hún hefði
verið klukkustund í sjónum. Hún
gekk létt í spori inn í fjósið á
Kirkjubóli og var hin rólegasta
á nýja básnum, sem er fátítt um
kýr þegar þær skipta um fjós.
Sæunni virðist því ekki hafa orð-
ið meint af volkinu og hefur hún
mjólkað eðlilega síðan hún kom
í fjós á Kirkjubóli.
Sláturleyfi hefur enn ekki fengist á Bíldudal:
Arnfirðingar hyggjast
slátra fé sínu á Þingeyri
Bfldudal, frá Pétri Gunnarssyni blaðamanni Morgunblaðsins.
EKKI varð af þvi að Sláturfélag Arnfirðinga hæfi móttöku sláturfjár
i gær. Menn vildu kanna til þrautar hvort sláturleyfi fengist og töldu
að athuguðu máli að móttaka í leyfisleysi gæti Úeypt málinu í enn
verri hnút en orðið er. Fái Arnfirðingar ekki sláturleyfi fyrir næstu
helgi flytja þeir fé sitt til slátrunar á Þingeyri, en ekki á Patreks-
fjörð. Sláturhúsið á Þingeyri er gróið fyrirtæki og þar vita menn að
hveiju þeir ganga, hins vegar er óvist hvort Sláturfélag Vestur-Barð-
strendinga á Patreksfirði geti staðið við sínar skuldbindingar, að sögn
Sigurðar Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Sláturfélags Arnfirð-
inga.
Forsvarsmenn Amfírðinga gera
nú úrslitatilraun til að finna dýra-
lækni, sem taka vill setningu sem
héraðsdýralæknir í hlutastarfi. Ráðu-
neytið hefur gefið samþykki sitt fyrir
því að fáist til þess maður, og það
jafnvel þó sá sé í fullu starfi í öðrum
landshluta, geti slátrun hafist. Hlut-
verk setts dýralæknis í Barðastrand-
arsýslu yrði að bera ábyrgð á
heilbrigðiseftirliti við slátrun á
Bíldudal, en settur yfírdýralæknir,
Sigurður Sigurðarsson, hefur að
sögn Sigurðar Guðmundssonar, neit-
að að veita atbeina sinn til að
Amfirðingum verði veitt sláturleyfi.
Eins og fram hefur komið fór öll
slátrun í héraðinu fram á Bfldudal í
fyrra. Síðan hefur verið lagt í tals-
verðar endurbætur á sláturhúsinu og
telja heimamenn sig enn betur í stakk
búna en áður til að framleiða góða
vöru við viðunandi skilyrði. Kunnug-
ir telja að sláturhúsið hér sé full-
komnara, en til_ dæmis húsin á
Bolungarvík og ísafirði, en báðum
þessum stöðum hefur verið veitt slát-
urleyfí. Amfírðingar telja því ljóst
að neitun yfírdýralæknis á að lýsa
skilyrðum fullnægt byggist ekki á
vísindalegu mati eða sé í samræmi
við stefnu gagnvart öðrum sláturfé-
lögum, heldur ráði önnur sjónarmið
ferðinni. „Ráðuneytið viðurkennir
þetta," segir Sigurður Guðmundsson.
„Yfírdýralæknir hefur hvað eftir
annað farið út fyrir sitt verksvið.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra á Varðarfundi:
Verður að kappkosta að verja
þann árangur sem náðst hefur
„ÞAÐ ER líklegt að ekki verði neinn hagvöxtur á næsta ári og
verður því að kappkosta að veija þann árangur sem náðst hef-
ur,“ sagði Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, á Varðarfundi í gærkvöldi. „Ef menn taka
ekki tillit til þessa og ætla að fara að skipta stærri köku en til
skiptanna er þá blasir við kjaraskerðing og verðbólga.“ Sagði
forsætisráðherra það vera „út f buskann" að tala um mikla kaup-
máttaraukningu á næsta ári.
Forsætisráðherra sagði að ekki
væri hægt að segja að ríkisstjóm-
in hefði svikið gerða kjarasamn-
inga með aðgerðum sínum.
Kjarasamningar ættu að snúast
um kaupmátt og hefði hann auk-
ist mun meira en gert var ráð
fyrir í síðustu lq'arasamningum.
Nú bæri nauðsyn til þess að „kæla
hagkerfið" vegna mikillar þenslu,
enda ættu l’aunþegar allt sitt und-
ir því að jafnvægi næðist í
efnahagsmálum og að verðbólga
ykist ekki á ný.
Þorsteinn Pálsson sagði fjöl-
mörg verkefni blasa við á nýju
þingi og nefndi sem dæmi að hald-
Þorsteinn Pálsson ávarpar
Varðarfundinn í Valhöll í gær-
kvöldi.
ið yrði áfram sölu ríkisfyrirtækja.
Einnig þyrfti að huga að því að
aðstæður væru að breytast í heim-
inum. Evrópubandalagið, okkar
stærsti markaður, væri að stækka
og margar þjóðir í Fríverslunar-
bandalaginu (EFTA), sem íslend-
ingar eiga aðild að, væru
alvarlega að ræða aukin tengsl
eða jafnvel aðild að Evrópubanda-
laginu. Sagði forsætisráðherra að
ekki væri á döfinni að ræða um
aðild íslendinga að bandalaginu
en við ættum mikilla hagsmuna
að gæta og yrðum að varast það
að verða utangátta þegar sam-
starf Evrópuþjóðanna efldist.
Hann hefur skipt sér að fram-
kvæmdaatriðum eins og tilhögun
slátrunar hér í sýslunni. Hann á ein-
ungis að leggja mat á hvort að-
búnaðurinn fullnægi skilyrðum.
Hann hefur stutt það að öllu fé héð-
an verði slátrað á Patreksfírði og var
viðstaddur stofnfund Sláturfélags
Vestur-Barðstrendinga í haust. Því
var veitt sláturleyfí þann 15. septem-
ber, en formleg úttekt á ástandi
sláturhúss þess á Patreksfírði fór
ekki fram fyrr en 26. september.
Sveinbjöm Dagfinnsson ráðuneyt-
isstjóri spurði Sigurð Sigurðarsson
þrívegis hvað stæði í vegi fyrir því
að hann gæfi okkur jákvæða umsögn
fyrst úr aðfinnslum hefði verið bætt.
Sigurður gaf ekkert svar við því.
Hann hefur ekki látið svo lítið að
senda hingað mann til að athuga
hvort úrbætur hafí verið gerðar.
Sjálfur hefur yfírdýralæknir aldrei
komið inn í sláturhúsið hér á Bíldud-
al,“ sagði Sigurður Guðmundsson.
Myrkur í
miðbænum
TRUFL ANIR í álagsstýrikerf i ollu
því að ekki kviknaði á götuljósum
í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum Raf-
magnsveitu Reykjavíkur er kveikt á
götuljósum borgarinnar með boðum,
sem fara í gegnum símalinur frá
stjómstöð rafmagnsveitunnar í Ár-
múla. Einhveijar tmflanir urðu f
kerfinu þannig að boðin bámst ekki.
Þegar bilunin uppgötvaðist
kveiktu starfsmenn Rafmagnsveit-
unnar á ljósunum og var aftur orðið
bjart í miðbænum um kl. 21.30 í
gærkvöldi.