Morgunblaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
35
Frumvarp um skatta-
dóm og rannsókn
á skattsvikamálum
Einföldun skattkerfis forsenda betri
innheimtu segir fjármálaráðherra
FUNDIR voru í báðum deildum
Alþingis í gær. í efri deild Al-
þingis voru þrjú lagafrumvörp
tekin til fyrstu umræðu en tvö í
þeirri neðri.
Salome Þorkelsdóttir (S.-Rn.)
mælti fyrir frumvarpi sínu um
breytingu á lögum um meðferð
opinberra mála. I frumvarpi Salome
felst að meðferð kynferðisafbrota-
mála gegn bömum verði hraðað í
dómskerfinu.
Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.)
mælti fyrir tveimur frumvörpum er
hann hefur lagt fram ásamt nokkr-
um öðrum þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins. Hið fyrra þeirra er
um Skattadóm og rannsókn skatt-
svikamála var það fyrst flutt sem
stjómarfrumvarp er Vilmundur
Gylfason var dómsmálaráðherra.
Sagði Svavar Gestsson að fmm-
varpið væri nú endurflutt með lítils-
háttar breytingum vegna skýrslu
um skattsvik sem kom út árið 1986
og unnin hafði verið af nefnd undir
forsæti Þrastar Ólafssonar. Þar
hefði verið staðfest að skattsvik
væru veruleg á íslandi.
í fmmvarpinu er gert ráð fyrir
því að skattrannsóknarstjóri annist
almennt eftirlit og rannsókn á
skattkröfuþætti mála en síðan ann-
ist deild innan Rannsóknarlögregl-
unnar rannsókn skattsvika og brota
er þeim tengjast. Embætti ríkissak-
sóknara mun samkvæmt fmm-
varpinu enn fara með ákæmvald
en þá taki við sérstakur sakadómur
í skattamálum, Skattadómur, er
hefði allt landið sem umdæmi.
Jón Baldvin Hannibalsson, fjár-
málaráðherra, sagði að þegar litið
væri á niðurstöður skattsvikanefnd-
ar væri vert að staldra við aðalatrið-
in. Þau væm að ef menn vildu
bæta framkvæmd skattalaganna og
treysta betur innheimtu væri eitt
meginskilyrði þess að einfalda
skattakerfið. Vonlítið væri að ná
árangri á gmndvelli óbreyttra
skattalaga. Sagði fjármálaráðherra
stefnumörkun stjómarinnar vera í
fullu samræmi við niðurstöðu
nefndarinnar. Síðara þingmálið
sem Svavar Gestsson mælti fyrir í
efri deild í gær var fmmvarp til
laga um breytingu á lögum nr.
75/1981 um tekjuskatt og eignar-
skatt.
Meginefni þess fmmvarps er að
dregið verði úr frádráttarheimildum
fyrirtækja. Framleiðslufyrirtæki fái
að draga frá hagnaði fyrir skatt
5% annað hvert ár vegna rannsókn-
ar- og þróunarstarfsemi. Gerðar
verði ráðstafanir gegn persónulegri
eyðslu á reikning fyrirtækja og sett-
ar reglur um risnu á kostnað þeirra.
Framtöl einstaklingar verði einföl-
duð, árviss skattrannsókn gerð á
fjárhag 100 fyrirtækja og allar flár-
magnstekjur verði framtalsskyldar.
Meðflutningsmenn SvavarS að
báðum þessum fmmvörpum era þau
Margrét Frímannsdóttir (Abl.-Sl.)
Svavar Gestsson
og Skúli Alexandersson (Abl.-Vl.)
í neðri deild mælti Hjörleifur
Guttormsson (Abl.-Al.) fyrir fmm-
varpi um eignarétt íslenska ríkisins
að auðlindum hafsbotnsins. Ásamt
Hjörleifi flytja fmmvarpið Ólafur
Ragnar Grímsson (Abl.-Rn.), Guð-
rún Helgadóttir (Abl.-Rvk.),
Ragnar Amalds (Abl.-Nv.) og
Steingrímur J. Sigfússon (Abl.-
Ne.). Hjörleifur mælti fyrir sam-
hljóða stjómarframvarpi árið 1982.
í fmmvarpinu felst að íslenska
ríkið sé eigandi allra auðlinda á og
í hafsbotninum frá netlögum og svo
langt til hafs sem fullveldisréttur
íslands nær. Nær þetta bæði til
lífrænna og ólífrænna auðlinda.
Guðrún Helgadóttir mælti loks
fyrir framvarpi til laga um breyt-
ingu á lögum um almannatrygging-
ar sem hún flytur ásamt átta öðmm
þingmönnum frá Alþýðubandalagi,
Jón Baldvin Hannlbalsson
Kvennalista og Borgaraflokki.
Fmmvarpið gerir meðal annas
ráð fyrir hækkun sjúkradagpeninga
sem sjúkrasamlög greiða ef sam-
lagsmaður sem orðinn er 17 ára
að aldri veikist og verður algjörlega
óvinnufær, enda leggi hann niður
vinnu og allar launatekjur falli nið-
ur. Einnig að sjúkradagpeningar
fyrir einstakling nemi sömu upphæð
og lágmarkslaun ófaglærðra á
hvetjum tíma og verði jafnháir
greiðslum úr Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði. Greiðslur vegna bama
undir 18 ára aldri verði einnig færð-
ar til samræmis við greiðslur vegna
bama úr þeim sjóði.
Fmmvarpið var áður flutt á
síðasta þingi en varð ekki útrætt.
Það er nú endurflutt með þeirri við-
bót að gert er ráð fyrir að mæðra-
laun skerði ekki sjúkradagpeninga.
Einnota umbúðir og af-
vopnun á norðurhöfum
Ný þingmál:
laga um framleiðslu, innflutning og
notkun einnota umbúða hér á landi.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir að eitthvað sé um að fólk fleygi
umbúðum að Iokinni notkun úti í
náttúmnni án þess að hugsa um
þá fyrirhöfn og þann kostnað sem
það hefur í för með sér við hreins-
un. Síðan segir: „í nágrannalöndum
okkar hafa víðast verið settar regl-
ur um notkun og endumýtingu
einnota umbúða. Nauðsynlegt getur
verið að banna notkun ákveðinna
umbúða og setja reglur um notkun
annarra. Æskilegt er að taka upp
skilagjald, sem væri það hátt að
það hvetti fólk til að safna saman
umbúðum og skila frekar en að
fleygja, eða framleiðslugjald sem
nota mætti til umhverfismála svo
eitthvað sé nefnt.“
Ólafur Ragnar Grímsson (Abl.-
Rn.) lagði fram þingsálykt-
unartillögu um að íslensk stjómvöld
boði til alþjóðlegrar ráðstefnu í
Reykjavík um skipulag og efnis-
þætti formlegra samningaviðræðna
um afvopnun á norðurhöfum. Sam-
kvæmt tillögunni yrði á ráðstefnuna
boðið fulltrúum þeirra ríkisstjóma
er halda úti kjamorkukafbátum á
norðurhöfum, fulltrúum ríkisstjóma
FJÖLDI þingmála er nú lagður
fram á Alþingi. Meðal þeirra
mála sem lögð voru fram i gær
voru þingsályktunartillögur um,
einnota umbúðir og að íslensk
stjórnvöld boði til alþjóðlegrar
ráðstefnu í Reykjavík um skipu-
iag og efnisþætti formlegra
samningaviðræðna um afvopnun
á Norðurhöfum.
Kristín Einarsdóttir (Kvl.-Rvk.),
Hjörleifur Guttormsson (Abl.-Al.),
Ámi Gunnarsson (A.-Ne.), Valgerð-
ur Sverrisdóttir (F.-Ne.) og Salome
Þorkelsdóttir (S.-Rn.) flytja tillögu
til þingsályktunar þar sem lagt er
til að Alþingi álykti að fela ríkis-
stjóminni að undirbúa framvarp til
AIÞIftGI
og þjóðþinga á Norðurlöndum, full-
trúum Atlantshafsbandalagsins og
Varsjárbandalagsins, fulltrúum
ríkisstjóma og þjóðþinga í Kanada
og á Irlandi. Einnig fulltrúum ann-
arra ríkja í Evrópu sem lýsa áhuga
á að sækja ráðstefnuna og fulltrú-
um framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna.
Á ráðstefnunni yrði meðal annars
fjallað um hvemig koma megi í veg
fyrir að fækkun kjamorkueldflauga
á meginlandi Evrópu leiði til aukn-
ingar á kjamorkuvopnum í kaf-
Fimm þingmenn hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um sett
verði löggjöf um einnota umbúðir.
bátum, á herskipum og í flugvélum formlegum viðræðum um afvopnun
í norðurhluta Evrópu og nærliggj- á norðuhöfum og um skipulag, efn-
andi hersvæðum. Einnig gerðar isþætti og áfanga slíkra samninga-
tillögur um hvemig komið verði á viðræðna.
Kirkjunni færðir kirkjumunir að gjöf
Stykkishólmi.
í safnaðarheimili kirkjunnar í
Grundarfirði stendur nú yfir
sýning á munum Sigrúnar Jóns-
dóttur listakonu. Kirkjumunir
eftir Sigrúnu voru gefnir Set-
bergskirkju af börnum Ingi-
bjargar Pétursdóttur og
Sigurðar Eggertssonar frá Bár
í Eyrarsveit.
Kirkjumunimir vom afhentir við
hátíðlega athöfn í Setbergskirkju
11. október sl. þar sem listakonan
var mætt ásamt bömum fyrr-
nefndra hjóna. Séra Jón Þorsteins-
son sóknarprestur prédikaði og tók
á móti þessum veglegu gjöfum sem
vom messuhökull, sem er handofinn
úr íslenskri ull og silki, útsaumaður
í táknrænu kirkjulegu munstri fyrir
umhverfí og form kirkjunnar. Einn-
ig altarisklæði, klæði á prédikunar-
stól og stóla og altarisdúkur.
Systkinin öll vom viðstödd og af-
hentu þessa góðu gjöf og kirkjan
var þéttsetin við athöfnina.
Á sýningunni sem nefnd er hér
Sigrún Jónsdóttir við verk sín.
að framan' em einnig mörg lista-
verk Sigrúnar af ýmsum gerðum
og stendur þessi sýning til sunnu-
dags 18. október.
— Árni. '
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Skammstafánir
í þingfréttum
í þingfréttum Morgunblaðsins
eru eftirtaldar skammstafanir
notaðar yfir kjördæmi og heiti
á stjórnmálaflokkum:
Rvk. - Reykjavíkurkjördæmi
Rn,- Reykjaneskjördæmi
Sl.- Suðurlandskjördæmi
Al.- Austurlandskjördæmi
Ne,- Norðurlandslqórdæmi eystra
Nv,- Norðuriandskjördæmi vestra
Vf.- Vestijarðakjördæmi
VI.- Vesturlandskjördæmi
A. - Alþýðuflokkur
Abl.- Alþýðubandalag
B. - Borgaraflokkur
F. - Framsóknarflokkur
S. - Sjálfstæðisflokkur
Kvl. - Kvennalisti
Sigrún Jónsdótdr sýnir í safn-
aðarheimili Setbergskirkju
riiiiiuj b<