Morgunblaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 46
46 vwr flMírrynro sr írnn^mrmwnM mríi ifTvrnoflO'M MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987 t Eiginkona mín, móftir okkar, tengdamóðir, dóttir og systir, HULDA MARKÚSDÓTTIR frá Borgareyrum, lést í Landspítalanum 12. október. Ólafur Jónsson Pétur Árnason, Hörður Jón Árnason, Smári Árnason, Markús Jónsson, Hrefna Markúsdóttir, Eygló Markúsdóttir, Grfmur Bjarni Markússon, Þorsteinn Ólafur Markússon, Guðrún Einarsdóttir, Lára Tómasdóttir, Inga Ólafsdóttir, Sigriður Magnúsdóttir, Magnús Siguröur Markússon, Erla Markúsdóttir Ester Markúsdóttir, Erna Markúsdóttir. t Systir okkar.og fóstursystir, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Suðureyri, Tálknafirði, andaðist 13. október sl. Jarðarförin auglýst síöar. Margrét J. Möller, Marta Jónsdóttir, Þóröur Jónsson, Steinunn Jónsdóttir, Einar Jónsson, Steinunn Finnbogadóttir. t Eiginkona mín, dóttir og móðir okkar, HRAFNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR (Haddý Friðriksson), lést 8. október í Eisenhower-sjúkrahúsinu Palm Springs California. Bálför hefur farið fram. Guðni Karl Friðriksson, Guðrún Einarsdóttir, Gfsli G. Gunnarsson, Gunnar Gunnarsson Friðriksso Friðrik Friðriksson, Berglind Friðriksson. Eiginkona mín, t EBBA ÞORSTEINSDÓTTIR, Hofslundi 9, Garðabæ, andaðist á heimili sínu aðfaranótt 14. október 1987. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Bárður Auðunsson. t Faðir okkar og stjúpfaðir, MARTEINN JÓNASSON fyrrum skipstjóri, lést aðfaranótt 14. október. Agla Marta Marteinsdóttir, Jóhanna H. Marteinsdóttir, Hafdfs Magnúsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG SIGURÐARDÓTTIR, Þverbrekku 4, Kópavogi, andaðist 7. október. Útförin var gerð í kyrrþey að ósk hennar. Synir, tengdadœtur og barnabörn. Minning: Steinunn Sigurbjöms- dóttir í Grímsey Ýmsir lifa öðrum fremur í huga kunningja og vina þótt þeir deyi frá oss, og einstaka verður þeim mun hugstæðari sem lengra líður. Meðal þeirra er Steinunn Sigurbjömsdóttir vinkona okkar hjóna, og mágkona konu minnar, sem hvarf sjónum snemmsumars. Hún deyr ekki í minningunni, svo björt, hrein og sterk sem persónugerð hennar var. Ætíð var hún öðrum hressari í bragði, úrræðagóð og kjarkmikil, skoraði jafnvel banvænan sjúkdóm á hólm með reisn, og tapaði einnig að lokum með reisn. En þótt þessi kona bæri höfuðið hátt, og með sérstökum sóma, vottaði aldrei fyr- ir yfirlæti í fari hennar; þvert á móti áttu minnimáttar stoð í henni, og vísa framrétta hönd þar sem hún var. Þessvegna var fráfall hennar mikið saknaðarefni öllum, sem kynntust henni, og þeir voru marg- ir Ekki síst Grímseyingar og sá mikli fjöldi gesta, sem sótti eyjuna hennar heim og langflestir komu á heimili hennar, eða í verslunina, sem hún veitti forstöðu. Það eru því mikil og saknaðarfull umskipti orðin í Grímsey, eftir fráfall þeirra hjóna með fárra missera millibili, en eiginmaður Steinunnar var Guð- mundur Jónsson frá Siglufirði. Steinunn fæddist í Grímsey, sótti Reykholtsskóla í Borgarfirði, þar sem þau Guðmundur kynntust, lauk síðan prófi frá íþróttakennaraskóla íslands, kenndi íþróttir, giftist á Siglufírði, og bjóð síðan um árabil í höfuðstað Norðurlands, og höfuð- stað íslands. En svo fór að eyjan, sem hún nefndi sína, seiddi hana aftur til sín norður á heimskauts- baug. Og eftir að þau hjónin fluttust þangað mun ekki hafa hvarflað að þeim að snúa til baka. Það var t Minningarathöfn um syni okkar og bræöur, GUÐFINN ÞORSTEINSSON og ÓLA KRISTIN SIGURJÓNSSON, sem fórust með Hvítingi Ve. 21 þann 2. september sl., verður í Landakirkju, Vestmannaeyjum, 17. október kl. 14.00. Jóna Þorsteinsdóttir, Sigurjón Ólafsson, Þórunn Gústafsdóttir og systkini hinna látnu. t Útför KRISTINS JÓHANNS ÁRNASONAR skipstjóra, sem andaðist 7. október sl., verður gerð frá Fossvogskirkju, föstu- daginn 16. október nk. kl. 13.30. Árni Kristinsson, Auðunn Kristinsson, Freyja Jónsdóttir, Gunnar B. Árnason, Magnús Fr. Árnason. t Eiginmaöur minn, GUÐMUNDUR BJÖRNSSON fv. veggfóðrari, Sunnubraut 22, Kópavogi, verður jarösunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 16. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sunnuhlíö, hjúkrunar- heimili aldraðra í Kópavogi. Þórheiður Guðrún Sumarliðadóttir. t Móðir okkar, SIGRÍÐUR SIGURÐARDOTTIR, Skeiðarvogi 77, lést i Borgarspítalanum 14. október. Börnin. t Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaöir og afi, ÓSKARÁRNASON hárskerameistari, Sogavegi 48, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 16. október kl. 13.30. Steinunn Eirfksdóttir, Eirfkur Óskarsson, Oddbjörg Óskarsdóttir, Haukur Haraldsson og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Efri-Holtum, Vestur-Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá Ásólfsskálakirkju, laugardaginn 17. október kl. 14.00. Sigurjón Guðjónsson, börn og tengdasynir. t Útför GUÐBJARGAR E. STEINSDÓTTUR frá Eyrardal, Súðavfk, fer fram frá Súðavíkurkirkju, laugardaginn 17. október kl. 14.00. Jarðsett verður á ísafiröi. Börn, tengdabörn og barnabörn. ekki aðeins að hún væri komin heim, heldur festi hann þar einnig lífstíðarrætur. Eftir að þau fluttust til Grímseyj- ar réðst Steinunn sem útibússtjóri Kaupfélags Eyfirðinga í eyjunni og gegndi því starfí með aðstoð eigin- manns síns, og í rauninni mátti vart á milli sjá hvort þeirra ynni hvað. Svo náin var samvinna þeirra, og samhentari gátu þau naumast verið um gestrisni og greiðvikni við náungann, heimamenn sem að- komumenn, er ótrúlega margir áttu erindi við þau í sambandi við út- gerð og verslun. Hvergi nutu þau sín betur en úti í eyju. Þar áttu allir þau að, og þau alla að slíkt hið sama. Því að auk vinfestu og tryggðar, sem óx upp af daglegum samskiptum með árunum, var frændgarður hennar í eyjunni og hann var bæði öflugur og skjólrík- ur. Samheldnin var fólki hennar, og er í blóð borin og þróaðist auk þess við ákjósanlegustu aðstæður, daglega umgengni og sameiginleg lífskjör í blíðu og stríðu á litlum skika úti í hafi. Náið samfélag við aðra menn og lffríki náttúrunnar í eyjunni og víðfeðma sjón til sjávar og lands, lét sig heldur ekki án vitn- isburðar í fari hennar. Nærmynd- imar og nábýlið þróuðu nærfæmina og mannskilninginn. Tilkomumiklar fjarmyndir léðu henni á hinn bóginn frábærlega frjálslegt yfirbragð og víðfeðmari viðhorf en almennt ger- ist í afskekktum plássum, þar seni víðsýnið vantar. Ekki þurftu sam- tíðarmenn hennar að koma út í Grímsey, til þess að hafa nokkur kynni af Steinunni Sigurbjöms- dóttur. Hún var lengst af frétta- maður Ríkisútvarpsins þar og sjónvarpsins líka, eftir að það tók til starfa, og heyrðist því oft um land allt og sást stöku sinnum. Svipur hennar og málrómur, ávallt skýr og glaðlegur, er því mörgum í minni, eða vekst upp þegar vikið er að henni. Einkasonur þeirra hjóna, Hafliði, var augasteinn móður sinnar, enda foreldrum sínum góður sonur. Hann býr áfram í Grímsey að þeim látn- um. Meðan Steinunn og Guðmundur lifðu bæði var eitt helsta áhugamál þeirra, og jafnframt velferðarmál allra Grimseyinga, að koma þar upp sundlaug, þar sem æska staðarins gæti ávallt æft fangbrögðin við Ægi, sem allir eyjamenn eiga allt undir. Allar minningargjafír um þau bæði runnu til að kosta þessa bygg- ingu, og á þessu sumri hefir verið almenn söfnun í landinu til styrktar þessu málefni. Nöfn Steinunnar og Guðmundar munu verða tengt þeirri lífsnauðsynlegu framkvæmd svo lengi sem núlifandi Grímseyingar sækja sjóinn, þó gleymskan feli að lokum flest í þessum heim. Ég veit ekki hvort Steinunn hefði kennt sund í þessari laug, þótt henni hefði enst aldur til þess. Ekki er það þó ótrúlegt, þar sem hún var lærður íþróttakennari og tæpast aðrir sundkennarar búsettir á eyj- unni. En hvað sem því líður mun hún standa þar á laugarbarminum, fyrir hugskotssjónum mínum, svo lengi sem ég minnist hennar; síung ímynd heilbrigði, atorkusemi og lífsgleði, vemdarvættur mannslífa í eyjunni, sem ól hana og fól hana að lokum 5 faðmi sínum. Hafliða, og öllum ættingjum Steinunnar _ Sigurbjömsdóttur, sendum við Álfheiður einlægar samúðarkveójur. Emil Björnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.