Morgunblaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987
-r
TROLL-LÁSAR
SKRÚFLÁSAR GALV.
PATENT-LÁSAR
VÍRAKLEMMUR
KÓSSAR
SIGURNAGLAR
BAUJUSTANGIR
ál, bambus, plast.
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSBORÐAR
FLATNINGSHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
SVEÐJUR
STÁLBRÝNI
HVERFISTEINAR
í kassa og lausir.
ÍSSKÓFLUR
SALTSKÓFLUR
ÁLSKÓFLUR
SNJÓÝTUR
STUNGUSKÓFLUR
KARFAKVÍSLAR
LÍNUGOGGAR
NETARÚLLUGOGGAR
ÚRGREIÐSLUGOGGAR
KARFAGOGGAR
FISKHAKAJÁRN
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULL-
ORÐNA
NÆRFÖT ÚR KANÍNU-
ULL
SOKKARMEÐ
TVÖFÖLDUM BOTNI
ULLARLEISTAR
•
LOÐFÓÐRAÐIR
SAMFESTINGAR
KAPPKLÆÐNAÐUR
ULLARPEYSUR
SKYRTUR
KLOSSAR
ÖRYGGISSKÓR
GÚMMÍSTÍGVÉL
•
KLUKKUR
LOFTVOGIR
ÁTTAVITAR
SJÓNAUKAR
ÁLPOKAR
MERKJABYSSUR
exterior
t roiymia
PolyfiUa |
Coltulose
spartetpuiver
CetUilose
sparkel
FYLLIEFNI
ÚTI-INNI
KARAT-LANDFESTAR-
TÓG
KARAT-TÓG
MARLIN-TÓG
KRAFT-TÓG
LÉTT-TÓG
BLÝ-TOG
NÆLON-TÓG
FISKILÍNA
ÖNGULTAUMAR
ÁBÓT 6-7-8
LÍNUÖNGLAR 6-7-7
POLYSrR/PPA
LAKK- OG MÁLNING-
ARUPPLEYSIR
NÚEINNIG
FULLKOMIN MÁLN-
INGARÞJÓNUSTA
ALLIR LITIR OG
ÁFERÐIR Á VEGGI,
GÓLF, GLUGGA,
VINNUVÉLAR OG SKIP
•
VASAUÓSOG LUKTIR
SKIPASKOÐUNAR-
VÖRUR
KLUIitlI
Ánanaustum
Sími28855
Opið laugardag 9—12
Tveir miðherjar
Eysteinn Jóhannsson til hægri unir sér vel hjá Dortmund. Með honum á myndinni er Frank Mill, einn vinsælasti
leikmaður Dortmund. Mill er 29 ára og lék áður með Gladbach, en fyrir yfirstandandi keppnistímabil hafði hann
leikið níu A-landsleiki, 203 leiki í bundesligunni og skorað 91 mark í þeim.
Þetta er toppur-
inn á tilverunni
- segir Eysteinn Jóhannsson, 16 ára, sem æfir með Dortmund
„PABBI spurði mig í haust
hvort ég vildi æfa með er-
lendu liði og óg svaraði já, já.
Þá fór allt í gang, pabbi talaði
við Atla <Eðvaldsson>, hann
setti umboðsmann sinn í
málið, við fórum til Þýska-
lands, mér var boðið að koma
á eina æfingu hjá Dortmund
og ég hef æft með unglinga-
liði félagsins síðan."
Eysteinn Jóhannsson segir frá.
Hann er 16 ára miðheiji og
varð Reykjavíkur-, íslands-, bik-
ar- og haustmeistari með 3. flokki
Fram knatt-
Steinþór spymu í sumar.
Guöbjartsson Reyndar lék Ey-
skrífar steinn aðeins einn
leik í haustmótinu,
því hann fór til Þýskalands í byrj-
un september til að kynna sér
æfingar atvinnumanna og taka
þátt í þeim. Hann æfir með ungl-
ingaliði Dortmund, hefur staðið
sig vel og verið vel tekið.
Toppurinn á tilverunnl
„Ég æfi með 18 ára liðinu, en þó
strákamir séu eldri, fell ég vel inn
í hópinn. Þeir eru rejmdar stærri
og sterkari, en ég hef styrkst
mikið. Við æfum þrisvar í viku í
einn og hálfan til tvo tíma á dag,
byrjum klukkan sex á þriðjudög-
um, fimmtudögum og föstudög-
um. Þetta er auðvitað allt öðruvísi
en ég hef átt að venjast, allt mik-
ið stærra og meira, en æfingamar
era svipaðar. Það er frábært að
fá svona tækifæri, þetta er góð
tilbreyting og í raun toppurinn á
tilveranni," sagði Eysteinn við
Morgunblaðið í gær.
Helmþrá
Eysteinn á heima í Breiðholtinu
og byijaði snemma að æfa með
Leikni. Þaðan lá leiðin í Fram,
hann var eitt sumar með ÍR, en
fór aftur í Fram, þegar hann var
í 5. flokki og hefur síðan verið í
mjög sigursælu liði. Eysteinn er
miðheiji og hefur verið iðinn við
að skora mörk, en leggur þau
einnig upp fyrir samheija sína
eins og góðum miðheija sæmir.
Eysteinn hefur fylgst vel með
þýsku knattspymunni í gegnum
sjónvarp og blöð, en átti sér ekk-
ert uppáhaldslið. Nú kemst ekkert
annað að en Dortmund og þó
hann telji að liðið verði ekki
Þýskalandsmeistari, þá leiki það
góða knattspymu og hafí leikið
sérstaklega vel, þegar það vann
Celtic 2:0 í Evrópukeppninni fyrir
skömmu.
„Það er allt gert fyrir mig héma.
Walter Maas, framkvæmdastjóri
félagsins, hefur verið mér einstak-
lega hjálplegur — er meiriháttar
maður. Eg bý hjá pólskri fjöl-
skyldu, en 18 ára sonur hjónanna,
Adam Woicinek, leikur með 18
ára liði Dortmund, þannig að við
föram saman á æfingar og eram
mikið saman. Þýskan hjá mér er
reyndar ekki nógu góð, svo við
tölum mest saman á ensku. Þetta
er ofboðslega skemmtilegt og
hörku fjöragt, en ég neita því
ekki að ég fæ stundum heimþrá."
Eysteinn þarf að fara með lest
og skipta um á leiðinni til að fara
á æfingar, en þó tæplega klukku-
stund taki að fara á æfingu, setur
hann slíkt ekki fyrir sig. „Þetta
venst og er í raun ekki svo langur
tími.“
Atvlnnumennska
Knattspyman er eina íþróttin,
sem Eysteinn æfir, og hann á sér
draum eins og flestir ungir knatt-
spymumenn. „Alla stráka dreymir
um að komast í atvinnumennsku
og ég hef mikinn áhuga á því.
En það er nægur tími og ég er
viss um að ekki borgar sig að
fara of snemma út. Ég kem aftur
heim í byijun nóvember, tek upp
þráðinn hjá Fram og fer í Iðnskól-
ann eftir áramótin. Svo verður
bara að koma í ljós hvort maður
eigi framtíð fyrir sér í knattspym-
unni eða ekki.“
-1