Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 13

Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 13
h MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 13 FLAUTUTONLEIKAR Tónllst Jón Ásgeirsson Flautuleikarinn Martial Nardeau flutti sex af tólf fantasíum þeim er Telemann samdi fyrir einleiks- flautu á fyrstu Háskólatónleikunum í vetur. Georg Telemann fæddist í Magdeburg 14. mars 1681. Faðir hans var prestur og vakti Georg snemma athygli fyrir miklar gáfur og mun hann sálfur mjög snemma hafa ætlað sér lögfræði sem lífs- starf. Samhliða almennu námi mun hann hafa notið einhverrar kennslu í hljóðfæraleik og mjög ungur verið orðinn all sleipur hljóðfæraleikari, m.a. á flautu og fíðlu. Þá er vitað að hann fékkst við tónsmíðar í nokkrum mæli og rétt tólf ára m.a. samið óperu. Nítján ára innritaðist hann í háskólann í Leipzig en flór- um árum síðar leggur hann lög- fræðina á hilluna og ræður sig sem orgelleikara við „Nýju kirkjuna" í Leipzig. Árið 1721 tekur hann við starfi tónlistarstjóra í Hamborg og hafði jrfir fimm kirkjum að segja, stjómaði ópemnni, leit til með tón- listarkennslunni í skólum borgar- innar, hafði forgöngu um stofnun Collegium Musicum er stóð fyrir tónleikahaldi og útgáfu á fyrsta tónlistartímaritinu í Þýskalandi. Telemann var sérlega afkastamikið tónskáld og einn áhrifamesti frum- kvöðull rokkokkótónlistar í Þýska- landi. Þrátt fyrir að hann fitjaði ekki upp á miklum nýjungum í tón- verkum sínum, á hann að hafa fært kammertónlist jrfir þá hindmn sem „basso continue" var, og eins og hann sagði, „gerði bassann að fullgildri rödd í lagrænum leik radd- anna“. Martial Nardeau Flautufantasíumar em falleg og leikandi tónlist, sem Martial Narde- au lék mjög fallega, einkum þar sem lagferlið er flúrað án þess þó að ofgera tónlistinni til að sýna tækni- getu sína. Nardeau hefur failegan og talandi tón, svo að tónhending- amar verða einkar skýrar. í all- egro-kaflanum í annarri fanta- síunni, presto-þættinum í þeirri flórðu og sú sjötta, sem var einstak- lega vel flutt, gat að heyra feikna- lega fallegan flutning. Líkast til má deila um hraðaval og að þau skil á milli „largo" og „allegro", sem margir leggja áherslu á, hafí ekki verið nógu skörp, t.d. í þeirri flórðu. Þama er í raun um persónulegan túlkunarmáta að ræða og á móti kemur músfkölsk og talandi túlkun Nardeau á þessari ljúfu tónlist Tele- manns. Helgarskákmót og fjöl- tefli í Hafnarfirði SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar og Skákfélag Hafnarfjarðar standa að helgarskákmóti næst- komandi laugardag og fjöltefli unglinga á sunnudag klukkan 19. Á helgarskákmótinu verða tefld- ar 13 umferðir, 15 mínútna skákir eftir Monrad-kerfi. Tíu peninga- verðlaun verða, samtals 90 þúsund krónur og þau hæstu 40 þúsund krónur. Teflt verður í íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst taflið klukkan 10. Skákdómari verður Sigurberg Elentínusson. Þetta er þriðja árið sem Spari- sjóðurinn og Skákfélagið standa sameiginlega að skákmótum. Sig- urvegarinn í fyrra var Jóhann Hjartarson, og árið þar áður Hall- dór G. Einarsson. Fjöltefli verður í íþróttahúsinu við Strandgötu á sunnudag klukkan 19. Þar teflir Helgi Áss Grétarsson, 10 ára, við 40 unglinga á aldrinum 5-15 ára. doncano ULPUR Litir: Blár, lilla, grænn svartur, hvítur. Þegarþú biðurum 'ssúkkulaði meinarðu þetta hér FREYJA HF. SÆLGÆTISGERÐ, KÁRSNESBRAUT 104, KÓPAVOGI BJARNI DAGUR/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.