Morgunblaðið - 23.10.1987, Síða 18

Morgunblaðið - 23.10.1987, Síða 18
18 MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 Dagur Sameinuðu þjóðanna: Kírkjuklukkum hringt og þagnarstund við Höfða Morgunblaðið/Júlíus Steinunn Harðardóttir með merki Friðarbylgj unnar, Ragnar Ólafs- son og Eymundur Matthíasson. DAGUR SAMEINUÐU Þjóðanna er á laugardag og verður kiriyu- klukkum hér á landi hringt af þvi tilefni i fimm mínútur klukk- an 12 á hádegi. Einnig verður HIÐ ÍSLENSKA sjóréttarfélag gengst fyrir frœðafundi laug- ardaginn 24. október í stofu 103 í Löghergi og hefst hann Drengjakór í Garða- kirkju VIÐ guðsþjónustu i Garðakirkju næstkomandi sunnudag mtm enskur drengjakór, Hampton School Choar, syngja undir stjórn Michael Newton. Kórinn er hér á vegum skólakórs Garða- bæjar. haldin þagnarstund og meðan á henni stendur taka þátttakendur höndum saman og mynda friðar- merkið framan við Höfða i Reykjavík klukkan 17. Með þessu kl. 14.00. Nicholas Hambro framkvæmdastjóri Nordisk Skibsrederforening í Osló flyt- ur tvo fyrirlestra. Nicholas Hambro er lögfræð- ingur að menntun og aðalfram- kvæmdastjóri Nordisk Skibsreder- forening í Osló sem hefur innan sinna vébanda eigendur 1300 kaupskipa í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Hann er sérfræðingur í sjórétti og hefur einkum fengist við lögfræðileg vandamál varðandi farmsamninga og skyld svið. í frétt frá félaginu segir að efni fyrirlestranna sem fluttir eru á ensku hafí mikla þýðingu fyrir alla þá sem á einn eða annan hátt fást við gerð farmsamninga og hvers konar viðskipta sem tengjast kaupskipaútgerð. Fúndurinn er öllum opinn. vilja tiu samtök og hreyfingar minna á friðarhugsjónina. Á blaðamannafundi sem fulltrúar þessara samtaka héldu kom fram að klukkuhringingamar verða liður í alþjóðlegri aðgerð, Friðarbylgj- unni, sem hefst í Hírósíma og Nagasaki klukkan 12 að staðar- tfma, gengur í vesturátt yfír jörðina og endar þar sem hún húfst. Það er misjafnt hvað gert verður í hveiju landi, en í nokkrum löndum, svo sem Póllandi, Finnlandi og íslandi, hefur verið ákveðið að hringja klukkum. Einnig verður haldin þagnar- stund víðsvegar um heim á vegum Félaga Samvinnu Þjóðanna og Sri Chinmoy friðarsamtakanna. Slíkar þagnarstundir hafa verið haldnar á degi Sameinuðu þjóðanna erlendis síðan 1984 en ekki áður hér á landi. Hér verður safnast saman við Höfða klukkan 16.45 og séra Gunnar Kristjánsson prestur að Reynivöllum ávarpar viðstadda. Þögn verðu klukkan 17 og meðan á henni stendur taka þátttakendur höndum saman og mynda friðar- merki fyrir framan Höfða. Þagnar- stundin er upphafíð að friðar- og afvopnunarviku Félaga Sameinuðu Þjóðanna. Séra Gunnar Kristjánsson sagði meðal annars á blaðamannafundin- um að kirkjuklukkur væru sterkt friðartákn sem tengist ekki aðeins jólum og stórhátíðum, heldur líka stríði. Veraldleg yfírvöld hefðu allt frá 15. öld krafíst að fá kirkjuklukk- ur til að brasða þær og gera fall- byssur úr kopamum á strfðstímum. Þegar kirkjuklukkumar hefðu síðan hljómað aftur hefði hljómur þeirra minnt stríðsþjáðar þjóðir á frið. Séra Gunnar sagði einnig að þagn- arstund væri einföld og sterk aðferð til að fá fólk til að íhuga, til dæm- is frið og afvopnun. Þá væri Höfði orðinn einskonar tákn um von um frið og því væri vel við hæfí að efna til þessara friðaraðgerða þar. Eftirfarandi samtök og hreyfíng- ar standa að þessum aðgerðum: Friðarhópur listamanna, Félag Sameinuðu Þjóðanna, Samtök eðlis- fræðinga gegn kjamorkuvá, Samtök um kjamorkuvopnalaust ísland, Friðarhópur fóstra, Samtök herstöðvaandstæðinga, Sri Chin- moy friðarsamtökin, Islenska frið- amefndin, Menningar og friðar- samtök íslenskra kvenna, Friðarhreyfíng íslenskra kvenna. Jafnréttisráð: Veruleg fjölgun kvenna Fyrirlestrar á fundi sj óréttarfélagsins í bæjarstjórnum JAFNRÉTTISRÁÐ hefur kannað hlutfall kynja í borgar- og bæjar- stjómum og í nefndum, stjóraum og ráðum á vegum borgar og kaupstaða eftir sveitarstjórnarkosningarnar 1986. Athugunin Ieiðir í ljós að konur eru 30% borgar- og bæjarfulltrúa en voru eftir kosn- Söngbandið syngurá sunnudag HÓPUR sem k&llar sig Söng- bandið kemur fram á Holiday Inn hótelinu á sunnudaginn, í Lundi í hádeginu og um kvöldið í Teigi. í Söngbandinu eru Ingibjöig Marteinsdóttir, Stefanía Valgeirs- dóttir, Einar Öm Einarsson og Eiríkur Hreinn Helgason. Söngskráin er létt og fjölbreytt, innlend lög og erlend, m.a. úr Fiðl- aranum á þakinu, dr. Zivagó ofl. Undirleikari er Jónas Þórir. Söngbandið: Einar öra Einars- son, Eiríkur Hreinn Helgason, Ingibjörg Marteinsdóttir og Stef- anía Valgeirsdóttir. ingar 1982 rúm 19%. í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að hlutur kvenna í borgar- og bæjarráðum hefur einn- ig aukist nokkuð eða úr 10% árið 1982 í 13% árið 1986 en aukningin er ekki í samræmi við hlut kvenna í borgar- og bæjarsljómum. Engin kona er borgar- eða bæjarstjóri en tæp 22% kenna em forsetar borg- ar- eða bæjarstjómar og tæp 39% em varaforsetar. Hlutur kvenna á yfírstandandi kjörtímabili í nefndum, stjómum og ráðum er rúm 27% og er það nokk- ur aukning frá síðasta kjörtímabili. Yfirleitt er hlutur kvenna svipaður í öllum borgar- og bæjarfélögum utan í Neskaupstað. Þar em meiri- hluti kjörinna bæjarfulltrúa konur og tæp 42% þeirra sem kjömir hafa verið í hinar ýmsu nefndir á vegum bæjarfélagsins em konur. Þegar fyöldi kvenna í borgar- og bæjarstjómum er borinn saman við fjölda kvenna í nefndum kemur fram að svo virðist sem þær eigi auðveldara með að komast áfram í gegn um „örugg sæti“ á listum sljómmálaflokkanna en að komast í ráð, stjómir og nefndir fyrir þessa sömu flokka. A vegum þeirra 23 bæjarfélaga sem könnunin nær til em starfandi 727 nefndir, stjómir og ráð að meðtöldum borgar- og bæjarstjómum. í tæplega 48% nefnda sitja engar konur. Konur em hins vegar í meirihluta í 17 af 23 félagsmálaráðum og í 18 af 23 grunnskólanefndum. Al- gengt er að þær hafí meirihluta í ýmsum nefndum sem tengjast heil- brigðismálum, menningarmálum, umhvefís- og náttúmvemdarmálum og málefnum bama og ungmenna. EITTHVAD FYRIR BRAGÐLAUKANA SAFARÍKTIAMBAKJOT Kryddlínan okkar lokkar fram Ijúffengt bragðið. Safaríkt lambakjöt f ofninn, á pönnuna og í pottinn. LAMBAKJÖT - ÞECAR ÞIGIANGAR í EITTHVAÐ COTT 41IKLIG4RDUR MIKIÐ FYRIfí LÍTIÐ r- —i > O r.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.