Morgunblaðið - 23.10.1987, Side 22

Morgunblaðið - 23.10.1987, Side 22
22 MORGUNBLAÐED, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÖNNU BJARNADÓTTUR Uwe Barschel: Var hann myrtur eða vildi hann villa um fyrir mönnum? VAR Uwe Barschel, fyrrverandi forsætiaráðherra Slésvík-Hol- stein, myrtur eða framdi hann sjálfsmorð? Fjölskylda hans telur að hann hafi verið myrtur, en vestur-þýsku vikutímaritin Spiegel og Stera, sem bæði tengjast dauða hans, telja að hann hafi framið sjálfsmorð. Bæði tímaritin greina ítarlega frá andl- áti hins fallna stjómmálamanns f nýjustu heftum sínum. Þau komast að þeirri niðurstððu að hann hafi undirbúið sjálfsmorð sitt gaumgæfilega og reynt vísvitandi að villa um fyrir mönnum svo talið yrði að hann hefði verið ráðinn af dögum. Barschel kom til Genfar á laug- ardagseftirmiðdag, 10. október, með vél frá Kanaríeyjum. Blaðamaður á vegum Stem, Frank Garbely, sá hann á flugvellinum og yrti á hann. Barschel þóttist vera einhver annar, svaraði á ensku og tók leigubfl. Næsti leigubflstjóri á eftir neitaði að elta hann, svo blaðamaðurinn missti sjónar á honum. Garbely hringdi nokkru seinna til hótels í borginni og spurði hvort Barschel væri staddur þar. Hann reyndist vera nýfluttur inn á Beau-Rivage-hótel- ið, eitt glæsilegasta hótel Genfar, og var í herbergi 317. Athyglisverðir minnispunktar Sebastian Knauer, blaðamaður Stem, kom til Genfar á laugardags- kvöld. Hann gisti á Beau-Rivage og reyndi nokkrum sinnum að hringja í Barschel. En enginn svar- aði. Skömmu fyrir miðnætti fór hann upp á loft og sá miða á dyrun- um sem á var letrað: „ónáðið ekki". Hann ákvað að leyfa Barschel að sofa í friði, en sitja fyrir honum í bftið morguninn eftir. Knauer vaknaði fyrir allar aldir og sat lengi morguns ásamt ljós- myndara í morgunverðarsal hótels- ins. En Barschel lét ekki sjá sig. Upp úr hádegi missti Knauer þolin- mæðina og fór upp og barði að dyrum hjá Barschel. Enginn svar- aði. Hann tók ( húninn og dymar voru ólæstar. Hann leit inn og sá skó liggja á miðju gólfi. Hann hik- aði, sótti myndavél og fór inn í herbergið, samkvæmt frásögn hans sjálfs í Spiegel. Herbergið var mannlaust og enginn hafði sofíð í rúminu. Á náttborðinu lágu minnis- miðar sem Barechel hafði skrifað f flugvélinni á leiðinni til Genfar og á hótelinu daginn áður. Á minnismiðunum stóð að ein- hver ókunnur Þjóðveiji, sem kallaði sig Robert Ro(h)loff, hefði haft samband við Barschel í Þýskalandi og á Kanaríeyjum og sagst hafa sönnunargögn undir höndum sem gætu hjálpað Barechel að hreinsa mannorð sitt af ásökunum Reinere Pfeiffer f Spiegel, en frásögn tfma- ritsins af kosningabrögðum foreæt- isráðherrans urðu Barschel að falli. Af miðunum að ráða virðist Barsc- hel hafa verið vonglaður og þar gefur hann lýsingu á manninum sem hann ætlaði að hitta. Hann skrifar síðan klukkan 17.10 að stefnumótið hafí gengið vel og „RR“ hafí gefið sér mikilvægar upplýsingar um Pfeiffer og skjala- falsara sem hann starfaði fyrir. Barechel skrifaði að litlu hefði mun- að að allt færi út um þúfur þegar blaðamaður þekkti hann á fíugvell- inum. „Tók leigubfl, keyrði nokkra hringi í kringum flugvöllinn og hitti sfðan RR í friði. Hann þekkti mig strax. Samræðurnar tóku um 20 mínútur. Gengum í nágrenni flug- vallarins," skrifaði Barschel. Knauer rakst einnig á opna bók með ritgerðum eftir franska heim- spekinginn Jean-Paul Sartre í herberginu. Barschel virðist hafa lesið um frelsi og dauða skömmu áður en hann lést. Knauer leit loks inn f baðherbergið eftir að hafa hnýstst f minnisblöð Barechels. Þar sá hann alklætt lfkið liggja f vatni f baðkerinu með handklæði vafíð um hægri handlegginn. Skór lá á baðherbergisgólfinu. Knauer brá f brún, en þó ekki svo mjög að hann gleymdi að taka mynd af hinum látna áður en hann kallaði á hjálp. Myndinni var dreift um alian heim, og var hún séretaklega merkt Stem, eins og sjá mátti hér í blaðinu. „Hann skýtur mig’ varla“ Við krufningu á lfkinu kom f ljós að Barschel hafði neytt fímm mis- munandi svefn- og taugalyfja. Pakkamir utan af töflunum fundust hvergi, en könnun leiddi í ljós að hann hefði getað sturtað þeim nið- ur. Hann pantaði rauðvínsflösku á laugardagskvöld, en það fundust engin merki um áfengi í blóði hans og flaskan hefur ekki fundist. Eng- in skjöl fundust í hótelherberginu. Fjölskylda Barschels neitar að trúa að hann hafí framið sjálfs- morð. Hann hljómaði mjög vongóð- Forsfða Stera er segir frá dauða Barschels. ur í símtölum við systkini sfn á laugardag og ætlaði að hreinsa mannorð sitt í yfírheyrelum í Slés- vík- Holstein á mánudag með hjálp Roloffs. Kona hans og systir réðu honum frá þvf að hitta hinn ókunna mann. Hann gerði lítið úr ótta þeirra og sagði að varla myndi hann skjóta sig. Fjölskyldan telur að Barechel hafi verið myrtur af því að hann bjó yfir upplýsingum sem óvinir hans vildu koma f veg fyrir að hann greindi frá. Þegar fréttimar af andláti Barschels bámst þótti ólíklegt að hann hefði lagst alklæddur í bað- kerið ef hann hefði haft sjálfsmorð í huga. En við nánari athugun hef- ur komið í ljós að flestir sem fremja sjálfsmorð f baðkeri hátta sig ekki. Talið er að Barechel hafí skrifað minnismiða sfna til þess að villa um fyrir mönnum. Garbely segir að það sé útilokað að hann hafí ekið nokkr- um sinnum í kringum flugvöllinn (til þess hefði hann þurft að fara inn f Frakkland) og talað við Roloff í tuttugu mínútur áður en hann flutti inn á Beau-Rivage. Lögreglan hefur ekki fundið nein vitni sem sáu Barechel á tali við hinn ókunna Roloff í nágrenni flugvallarins og leigubflstjórinn, sem telur sig hafa ekið Barechel, segist hafa keyrt hann beint á hótelið. Drengskaparorð reyndist lítils virði Barechel var 43 ára þegar hann lést. Hann var framagjam og komst ungur til valda í Slésvík-Holstein Hann varð varaþingmaður 25 ára gamall og kjörinn þingmaður tveim- ur ámm seinna. Hann varð þing- flokksformaður kristilegra demókrata (CDU) fyrir þrítugt og 35 ára gamall varð hann fjármála- ráðherra í stjóm Gerhards Stolten- berg f Slésvík-Holstein. Stolten- berg, núverandi fjármálaráðherra vestur-þýska sambandslýðveldisins, hafði mikla trú á honum og lagði til að hann tæki við starfí sínu sem foreætisráðherra þegar hann tók við ráðherraembættinu í Bonn árið 1982. Barechel var sjálfkjörinn' í embættið. Hann var lögfræðingur að mennt. Hann var greindur, iðinn og affarasæll, en þótti heldur litlaus leiðtogi. Skjótur frami hans kom Líbanon: „Heilagt stríð“ hefur í hótunum við vestræn ríki Reuter. SAMTÖKIN Heilagt strið í Líbanon sem eru á bandi írana hótuðu í gær að standa fyrir sj&lfsmorðs&rásum & herlið og herstöðvar Bandaríkjanna og evrópskra rfkja í borgum múhameðstrúarmanna. „Á næstu dögum mun koma í ekki betri," segir í fjögurra síðna Ijós hvereu ófær Bandaríkin em um vélritaðri tilkynningu frá samtök- að standa upp í hárinu á múslímum unum. Yfírlýsingin barat alþjóðlegri ... staða Evrópubúa verður heldur fréttastofu í gær. Tilkynningunni San Francisco: Minniháttar jarðskjálfti San Francisco, Reuter. Aðfararnótt miðvikudags tjón af völdum skjálftans sem átti varð vart við minniháttar jarð- sér stað klukkan 8:48 að staðar- sbjálfta & svæðinu umhverfis tíma. Fyrr f þessum mánuði olli San Francisco. Skjálftinn stærri jarðskjálfti allmiklu tjóni f mældist 4.1 stig & Richter. Los Angeles og sex manns létust. Lögreglu er ekki kunnugt um fylgdu tvær svart-hvftar ljósmyndir af gíslunum sem samtökin hafa f haldi, Bandaríkjamanninum Terry Anderson og Frakkanum Jean-Paul Kauffmann. Einnig fylgdu tilkynningunni tvær litmyndir af herstöðvum Bandarfkjamanna og Frakka í Beir- út. Þær voru teknar áður en sjálfs- morðssveitir gerðu sprengjuárás á heretöðvamar þann 23. október árið 1983. í þeim árásum létust 300 manns og samtökin Heilagt strfð lýstuábyrgðáhendursér. íyfirlýs- ingu Heilags strfðs er hótað fleiri slfkum árásum f borgum múha- meðstrúarmanna. Herlið Bandarfkjamanna er nú f viðbragðsstöðu vegna hótana írana um hefndaraðgerðir við Pereaflóa eftir árásir Bandarfkjamanna á franska olfupalla á mánudag. Ballet- dansari yfirgefur Sovét- ríkin Sovéski ballet- dansarinn Andrei Ustinov handleikur eft- irmynd frelsis- styttunnar með bros & vör. Ust- inov bað um hæli f Banda- ríkjunum f sfðustu viku þegar ballet- flokkur frá Moskvu kom við f Dallas.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.