Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 30

Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 30
~ 30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 42. Iðnþing íslendinga sett á Akureyri: Samkeppnishæfni þjóðar- innar ræðstaf árangriallra atvinnugreina landsmanna - sagði Haraldur Sumarliðason forseti sambandsins í ræðu sinni Morgunblaðið/GSV Haraldur Sumarliðason forseti Landssambands iðnaðarmanna í ræðustól á 42. Iðnþingi íslendinga. HARALDUR Sumarliðason forseti Landssambands iðnaðarmanna setti 42. Iðnþing íslendinga á Akureyri í gær, en þingið er haldið á tveggja ára fresti, síðast á Akureyri fyrir réttum tíu árum. Um 200 fulltrúar hafa rétt til setu. Fresta varð setningu þings um hálftima í gærmorgun vegna ófærðar í lofti, en þingfulltrúar voru flestir komnir f sæti sin fyrir hádegi í gær. Þó gat mennta- málaráðherra, Birgir ísleifur Gunnarsson, ekki mætt, en hann sendi hinsvegar ræðu sína á ákvörðunarstað og flutti Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjórnar, hana fyrir hönd ráðherrans. Hann fjallaði um stefnu stjómarflokkanna hvað varðar framleiðniátak og nýsköpun f iðnaði. Þá ræddi hann um fjármögnun, fjárfesting- arstefnu og skattamál og að síðustu fjallaði ráðherra um málefni iðnfræðslunnar, sem heyra undir menntamálaráðuneytið. Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf., flutti síðan ávarp er hann kallaði „Ný tækni og byggðaþróun". „Ríkisvaldið tekur ekki frumkvæði“ - segir Ingi Björnsson framkvæmda- stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. Efnahagsmál í ólestri Haraldur sagði meðal annars í ræðu sinni að þróun þessa árs hefði verið mjög hagstæð hvað varðar framleiðslu og tekjur þjóð- arinnar. Öðru máli gegndi um stjóm efnahagsmála. „Gætt hefur v- - mjög vaxandi eftirspumarþenslu og hafa útgjöld, bæði til ijárfest- ingar og neyslu, vaxið langtum meir en sem nemur hagvextinum. Sömuleiðis er feiknalegur vöxtur í verslun, innflutningur eykst óð- fluga, verðbólga magnast og samkeppnisstaða framleiðslu- greinanna versnar. Óeðlileg spenna hefur skapast á vinnu- markaðnum og að verulegu leyti ógilt þá annars hófsömu og skyn- samlegu kjarasamninga, sem gerðir voru í desember sl.“ Ekki mætti gleyma því að þótt fram- kvæmdir væm nú víða í hámarki, hefði reynslan sýnt að slíkt ástand varaði addrei lengur en þróun efna- “' hagsmála almennt leyfði og skapaðist þá oft þeim mun dýpri lægð, sem uppsveiflan var meiri. Skattar á skatta ofan Fyrstu aðgerðir nýrrar ríkis- stjómar hefðu ,alls ekki verið til þess að styrkja trú manna, enda hefðu þær nær eingöngu falist í auknum skattaálögum. Þá hefur sljómin ákveðið að þrengja mögu- leika fyrirtækja til þess að fjár- magna kaup á framleiðslutælqum með erlendu lánsfé og þar með afturkallað frelsi atvinnulífsins að hluta til, að sögn Haraldar. „Þegar á heildina er litið get ég þvi tekið undir með manninum sem sagði að það væm að vísu ýmsir ljósir punktar í þessum efnahagsráð- stöfunum, en þeir væm bara svo óljósir að erfítt væri að henda reið- ur á þeim." Haraldur sagði að miklum von- brigðum ylli hve misjafnlega tekið væri á málefnum atvinnuveganna í ijárlagaframvarpinu. Á meðan ætlunin væri að afíiema það fram- lag, sem ríkissjóði er ætlað að greiða til vömþróunar- og mark- aðsdeildar Iðnlánasjóðs, væri ráðgert að gauka litlum 429 millj. kr. að Framleiðnisjóði landbúnað- arins. Veiðileyfasala Landssamband iðnaðarmanna hefði ámm saman barist fyrir því að stjómvöld kanni hvaða áhrif það hefur á efnahags- og atvinn- ulíf að taka upp veiðileyfasölu eða auðlindaskatt í stað núverandi kvótakerfís. Gengi íslensku krón- unnar yrði þá lækkað á móti til þess að raska ekki afkomu í sjáv- arútvegi. Verðáhrifum vegna lækkaðs gengis yrði mætt með lækkun óbeinna skatta, sem næmi tekjum af veiðileyfasölu. Haraldur sagði að skortur á vinnuafli væri eitt helsta vandamál iðnfyrirtækja og sennilega fyrir- tækja almennt. Sem tímabundna lausn á þessum vanda hefur eink- um verið bent á innflutning vinnuafls. Menn verða þó að líta á þetta mál fordómalaust og hafa f huga að íslendingar vilja geta átt fullan aðgang að vinnu í öðmm löndum. Landssamband iðnaðar- manna hefur ekki tekið formlega afstöðu til þessara mála. í máli Haraldar kom fram að landssambandið hefði ákveðið að gangast fyrir átaki í því skyni að kynna nám og störf í iðnaði betur en gert hefði verið og hefur í því sambandi leitað til menntamála- ráðherra og iðnaðarráðherra. Þá hefur nefnd, sem fyrrverandi menntamálaráðherra skipaði sl. vetur, skilað áliti um svokallaðan meistaraskóla og er það til athug- unar í ráðuneytinu. „REYNSLAN hefur sýnt að ríkis- valdið mun ekki taka frumkvæði né vera leiðandi í þvi að skapa iðnfyrirtækjum á landsbyggðinni betri starfsgrundvöll. Því verða sveitarfélögin og aðrir heimaað- ilar að taka frumkvæðið og ég held að Eyfirðingar hafi sýnt fram á að afraksturinn er meiri en tilkostnaðurinn, “ sagði Ingi Björnsson framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. meðal annars í ræðu sinni á 42. Iðnþingi íslendinga. Ingi sagði að í hinum dreifðu byggðum leyndust víða hugvits- menn, sem vantaði faglegt um- hverfí og væm úr tengslum við fjármagnseigendur. Annars staðar í samfélaginu sætu fjármagnseig- endur og þá vantaði hugmyndir sem gætu leitt til arðbærrar Ijárfesting- ar. Á einhvem hátt yrði að leiða þessa aðila saman. Ljóst væri að fyrirtæki á landsbyggðinni stæðu lakar en fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu hvað varðar að nýta sér tækninýjungar. Það væri því stórt hlutverk sem Iðntæknistoftiun hef- ur, sem og Iðnþróunarfélögin. „Það tapast mikið ef iðnaður á landsbyggðinni verður undir í sam- keppni, dregst saman og jafnvel deyr út, þá töpum við að stómm hluta þeim möguleika að nýta þekk- ingu okkar á gmndvallaratvinnu- vegum þjóðarinnar til nýsköpunar og þróunar á þeim sviðum sem við eigum helsta möguleika. Við meg- um aldrei falla í þá gryfju að halda aftur af tækninýjungum í þeim til- gangi að halda uppi atvinnu því það þýðir einfaldlega að við verðum undir í samkeppni og við töpum að lokum öllum störfunum." Ingi sagði að nú þegar við byggj- um við kvótakerfí í sjávarútvegi væri ljóst að afkoma sjávarútvegs- og fískvinnslufyrirtækja yrði ekki bætt með aukinni sókn og meiri afla. Því yrðu menn að bæta nýt- ingu, auka afköst, auka gæði og verðmæti ef afkoman ætti að batna. „Þetta sjónarmið breiðist síðan út til annarra greina og stefnan er að breytast frá þvf að vera „meira magn“ í að verða „aukin verð- mæti“.“ Leikfélag Akureyrar: Frumsýnir Lokaæfingu í kvöld LEIKFÉLAG Akureyrar frum- sýnir f kvöld „Lokaæfingu" eftir Svövu Jakobsdóttur. Verkið er siðasta leikverk Svövu til þessa, en það var sýnt á litla sviði Þjóðleikhússins árið 1983. Það var hinsvegar frum- sýnt í Norðurlandahúsinu í Færeyjum fyrr það sama ár. Svava gerði nýja útgáfu af leik- ritinu árið 1985 og gerði þá töluverðar breytingar á verkinu sem helst em fólgnar í því að leik- urinn byijar á æfingunni sjálfri. Svava er væntanleg til Akureyrar á fmmsýninguna, en í gær kom hún frá Japan þar sem var í tengslum við sýninguna „Scand- inavia Today“. Bátsleikhúsið í Kaupmannahöfn tók Lokaæfingu upp í september sl., og einnig hafði verið gerð sjónvarpsupptaka af verkinu hjá Pólveijum. Þá hef- ur sovéska menningarmálaráðu- neytið keypt sýningarrétt til að setja upp verkið í leikhúsi hjá sér og sömuleiðis má vænta uppsetn- ingar á verkinu í London, að sögn Péturs Einarssonar leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar. Leikurinn gerist í kjamorku- byrgi, sem útbúið hefur verið í kjallara undir kjallara og er líklega eitt sérhannaðasta lqam- orkubyrgi á íslandi, að sögn, Péturs. „Vitað er að nokkur einka- kjamorkubyrgi hafa verið útbúin á íslandi og er byrgið í Lokaæf- ingu allt tölvustýrt. Verkið gerist í nútímanum og fjallar um það hvemig einangmnin fer með manneskjumar. Ég á von á því að það sem gerist, komi áhorfend- um vemlega á óvart," sagði Pétur. Leikarar í Lokaæfíngu em þrír, Sunna Borg, Theódór Júlfusson og Erla Ruth Harðardóttir, sem nýkomin er úr leiklistamámi frá Guildford-leiklistamáminu. Hún er jafnframt fyrsta manneslqan, sem hlaut styrk úr sjóði sem kenndur er við leikarann Michael Redgrave. Pétur sagðist vænta þess að verkið gengi fram undir jólafrí og yrði þá tekið til við sýningar á jólaleikriti LA, Pilti og stúlku. Leikfélagið sýnir um þessar mundir bamaleikritið „Halló, Ein- ar Áskell" víða á Norðurlandi og er gert ráð fyrir að það verði sýnt í skólum á Akureyri í byijun nóv- ember. Þá er meiningin að nokkrar sýningar fari fram í leik- húsi þeirra Akureyringa. Áskriftarkort em nú í sölu hjá leikfélaginu og gilda þau á fjórar sýningar, Lokaæfíngu, Pilt og stúlku, Horft af brúnni og Fiðlar- ann á þakinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.