Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 35

Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 35 Mynd/jóh. Hörður Steinbergsson og Örn Einarsson sigruðu í Bautamóti Brids- félags Akureyrar sem lauk fyrir nokkru. Þeir tóku forystu í mótinu og héldu henni til loka, hlutu 1.495 stig. Helztu keppinautar þeirra í mótinu voru Frímann Frímannsson og Pétur Guðjónsson sem hlutu 1.450 stig. Á myndinni hampa þeir félagar farandbikar auk bikara sem þeir unnu til eignar. Brids Arnór Ragnarsson Minningarmótið á Selfossi Eins og áður hefur komið fram fylltist fljótt skráningin í Minning- armótinu um Einar Þorfinnsson sem Bridsfélag Selfoss gengst fyrir nk. laugardag. 36 pör taka þátt í mótinu, alls 70 spil. Vakin er sér- stök athygli á því að spilamennskan hefst tímanlega kl. 9 (níu) um morguninn. Spilað er á Hótel Sel- fossi og sér Hermann Lárusson um stjómun. Verðlaun í mótinu em sem hér segir: 1. verðlaun kr. 30.000, 2. verðlaun kr. 20.000, 3. verðlaun kr. 14.000, 4. verðlaun kr. 10.000 og 5. verðlaun kr. 6.000. Þátttöku- gjald er kr. 3.000 fyrir parið (inni- falið er kaffí allt mótið). íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenningi 1987 Frestur til að tilkynna þátttöku í íslandsmót kvenna og jmgri spil- ara í tvímenningi, sem spilað veiður í Sigtúni helgina 7.-8. nóvember nk., rennur út um mánaðamótin næstu. Rétt til þátttöku hefur allt kvenfólk og spilarar fædd 1963 og síðar. Lágmarksþátttökugjald. Spil- að um gullstig auk verðlauna frá Bridssambandinu. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgensen en Vigfús Pálsson mun annast tölvuútreikn- ing para. Spilaður verður barometer í báðum flokkum með 3—5 spilum milli para og hefst spilamennska kl. 13 á laugardeginum. Skráð er hiá Bridssambandinu. Núverandi Islandsmeistarar í kvennaflokki eru þær Esther Jak- obsdóttir og Valgerður Kristjóns- dóttir en í yngri flokki þeir Bemódus Kristinsson og Þórður Bjömsson. AMNESTT^nCAN FANGAMÁLIV PARAGUAY NAPOLEON ORTIGOZA er 55 ára gamall yfirforingi í hem- um. Hann hefur verið innilok- aður í 24 ár og er í hópi þeirra pólitiskra fanga, sem lengst hafa setið í fangelsum í róm- önsku Ameríku, að þvi talið er. Lengst af hefur hann verið i einangrun og haft lftið sam- band við umheiminn. Hann var handtekinn í desember 1962 sakaður um þátttöku i samsæri um að steypa stjórninni og um vig liðsforingjaefnis. Sumir töldu hann þá pólitískan kep- pinaut Stroessners forseta. Hann var dæmdur til dauða árið 1963 ásamt öðrum meint- nm gamsœrismanni, en dómur- inn var mildaður i 25 ára fangavist, þegar prestur nokk- ur hótaði að birta persónulegar upplýsingar, sem myndu hreinsa mennina báða af morðákæru. Réttarhöldin fóru fram fyrir herrétti, enda þótt sakborningar væru ákærðir fyrir brot á almennum hegn- ingarlögum. Sakborningar voru ekki viðstaddir réttar- höldin, sem voru i hæsta máta óveqjuleg. Yfirlýsingar fengnar með pynt- ingum, að því er sagt er, voru notaðar sem sönnunargögn og veijanda Napoleons var ógnað. Eftir að hafa afplánað þijá fiórðu refsingarinnar átti Napoleon rétt á skilorðsbundinni reynslulausn, en til þess þurfti hann að veita lögmanni umboð. En þar sem hann fékk aðeins heimsóknir ná- inna skyldmenna var ekki hægt að fullnægja þessu formskilyrði fyrr en í byijun þessa árs. Þá sótti hann um að vera látinn laus, en var synjað vegna slæmrar hegðunar. Synjunin er talin byggð á því, að Napoleon hefði þá ítrek- að reynt að svipta sig lífi. Við synjunina hrakaði geðheilsu Napoleons Ortigoza, sem ekki var of góð fyrir. Hann truflaðist snögglega á geði og þjáist nú af svefnleysi og er með hljóðum í köstum. Hann fær litla sem enga læknishjálp og heilsu hans hrakar stöðugt. Hann dvelur nú í öryggis- fangelsi f Asuncoin — rammgerðu varðhaldsfangelsi — og Amnesty Intemational telur aðkallandi að hann sé látinn laus þegar f stað. Vinsamlegast sendið kurteis- legt bréf og farið fram á að Napoleon Ortigoza sé látinn laus þegar í stað og án allra skilyrða. Skrifið til: Exmo Sr. Presidente de la Republica General de Ejercito Alfredo Stroe8sner Palacio de Gobiemo Asuncion Paraguay. Orðstöðulykill að Bilbíunni FRÆÐIMENN frá fjórum há- skólastof nunum undirbúa nú tölvuvinnslu orðstöðulykils að Bibllunni, sem kom út 1981. í frétt Morgunblaðsins 17. októ- ber sl. féll niður nafn Jóns Svein- bjömssonar prófessors, sem tilnefndur var í Biblíulykilsnefndina af stjóm Guðfræðistofnunar Há- skólans. í fréttatilkynningu Biblíulykils- nefndarinnar segir m.a.: „Stefnt er NÝ ALMENN póst- og símaaf- greiðsla verður opnuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar föstudaginn 23. október kl. 9. Afgreiðslan sem er á fyrstu hæð verður opin frá kl. 9-17 alla virka daga. Þar gefst viðskiptavinum kostur á allri helstu póst- óg síma- þjónustu. Póst- og símaafgreiðslan á ann- arri hæð verður áfram opin flugfar- þegum við komu og brottför flugvéla. Fyrirlestur um kvikmynda- greiningu MARTIN Daníel, sem heldur um þessar mundir námskeið í gerð kvikmyndahandrita á vegum endurmenntunarnefndar Há- skóla íslands og Kvikmyndasjóðs íslands, flytur opinberan fyrir- lestur laugardaginn 24. október á vegum félagsvísindadeildar háskólans. Fyrirlesturinn verður í stöfu 101 í Odda kl. 14-17. Sýnd verður hin sfgilda mynd Johns Huston „The African Queen“. Martin greinir síðan myndina með tilliti til uppbyggingar hennar, þ.e. hvemig efnisþættir handritsins endurspeglast í myndmálinu. Martin Daníel er Bandaríkjamað- ur af tékkneskum uppruna, sem undanfarin ár hefur kennt gerð kvikmyndahandrita við háskóla og kvikmyndastofnanir bæði í Banda- ríkjunum og Vestur-Evrópu. Fyrirlesturinn er öllum opinn. að því að gera einn heildarlykil að allri Biblfunni, en byrjað verður á Nýja testamentinu og er fyrsti áfangi hafinn. Verið er að fara yfír frumdrög að orðstöðulykli. Fyrst er skipað saman þeim orðmyndum sem saman eiga, svo að ekki þurfi að leita á mörgum stöðum að mis- munandi beygingarmyndum eins og sama orðs, t.d. sagnarinnar ala (elur, ól, ölum o.s.frv.). Einnig þarf að sundurgreina samyrði. Þá Hjá Póst- og símamálastofnun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar starfa nú átta manns. Póst- og símstöðvar- sfjóri er Jóhann Pétursson. er til dæmis kannað hvort orðmjmd- irnar alin og ól eru nafnorð eða beygingarmjmdir af sögninni ala. Þetta er mikið verk, enda verður vélinni ekki við komið nema að tak- mörkuðu leyti í þessum áfanga. Biblíulykilsnefiid nýtur ekki fjár- hagsstuðnings þeirra stofnana sem þar eiga fulltrúa, heldur hefur hún sjálfstætt reikningshald. Til sér- stakra verkþátta hefur nefndin hlotið styrki úr Vísindasjóði (300 þús. kr.) og Rannsóknasjóði Há- skólans (120 þús. kr.). Auk þess hefur stjóm Hins íslenska Biblíufé- lags afhent nefndinni 100 þúsund króna styrk, og Ottó A. Michelsen forstjóri hefur ákveðið að sjóður, sem hann stofnaði á sextugsafmæli sínu, 10. júní 1980, skuli ganga óskiptur til þessa verkefnis. í sjóðn- um em nú um 150 þúsund krónur." Með 10% hreinum eplasafa Pósthús í Leifsstöð Sanitas sPöoug sókti Seglbrettasam- band stofnað AÐALFUNDUR og framahalds- stofnfundur hjá Seglbrettasam- bandi íslands verður haldinn laugardaginn 24. október í húsi Hjálparsveita skáta við Snorra- braut, norðanmegin. Fundurinn hefst kl. 14.00. Al- menn fundarstörf verða og farið yfír lög og reglur sambandsins og einnig önnur mál frá liðnu sumri. Ljóskastarar í miklu úrvali og mörgum litum. Verð frá kr. 460.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.