Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 49

Morgunblaðið - 23.10.1987, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987 49 Póstur og sími: Svör við fyrirspurmim Til Velvakanda. Kona biður um skýringu á því hvers vegna gjald fyrir að láta talsímaverði Póst- og símamála- stofnunar vekja sig hafi hækkað í kr. 43,75 1. júlí sl. Einnig spyr hún hvort það sé rétt hjá sér að ein hringing í 03 teljist þijú skref. (Sjá Velvakanda 10. október sl.) Gjald fyrir handvirka vakningu hækkaði nokkuð við síðustu gjald- skrárbreytingu, en hafði verið svo til óbreytt í krónutölu sl. fjögur ár. Handvirka símaþjónustan hefur verið stofnuninni kostnaðarsöm og ekki staðið undir sér. Þess vegna hafa gjöld fyrir hana verið hækkuð til þess að þurfa ekki að láta aðrar símatekjur bera hana uppi. Þeir sem tengdir eru stafrænum símstöðvum og hafa síma með tón- vali og nauðsynlegum tökkum geta aftur á móti notfært sér sjálfvirka þjónustu stöðvar hvað varðar upp- hringingu í því skyni að láta vekja sig eða minna sig á. Slík þjónusta er í hvert skipti 5 skref eða 9,75 kr. Hátt í þijátíu þúsund símnotend- ur víða um land eiga nú kost á þessari þjónustu. Þeir sem láta talsímaverði vekja sig borga eins og fyrr segir 43,75 kr. í hvert skipti. En unnt er að fá fasta mánaðarvakningu fyrir 750 krónur. Þeir sem hringja í upplýsinga- þjónustuna 03 eiga að borga samkvæmt nýjustu gjaldskrá þijú skref eða 5,85 kr. við svar, en síðan er talið á 24. sek. fresti. Reikna má því með að fólk greiði almennt 5,85 kr. fyrir þessa þjónustu. Sama gildir um 08, upplýsingaþjónustu talsambandsins við útlönd. Allar fyrrgreindar tölur eru með söluskatti. Jóhann Hjálmarsson, blaðafulltrúi Póst- og símamálastofnunar. Um óskalagaþátt sjúklinga Til Velvakanda. Það var á haustdegi að síminn hringir. Ég var á leið upp í útvarp að sinna óskalagaþætti sjúklinga, jú, það er best ég svari, hugsa ég, þó ég hafi verið komin í kápu og stígvél. Það var Sigurður Einarsson, starfs- maður tónlistardeildar ríkisútvarps- ins, og segist vera að tilkynna mér að það hafi verið ákveðið að leggja óskalagaþátt sjúklinga niður. Nú, segi ég, jamm og jæja, takk fyrir að láta mig vita. Vertu sæll. Að vísu sngði ég Sigurði að það kæmi sér illa bæði fyrir mig og sjúklinga. Þeg- ar ég var búin að leggja símann á, settist ég niður að hugsa málið og fór í huganum dálítið aftur í tímann. Ég var búin að sinna þessum þætti i þijú eða flögur ár, hafði tekið við af Lóu Guðjónsdóttur. Aldrei allan þennan tíma hafði neitt komið upp á þannig að ég gæti ekki mætt og mér fannst það furðu sæta að Jón Öm Marinósson tónlistarstjóri skyldi ekki hringja í mig sem minn yfirmaður og tilkynna mér þetta sjálfur, og segja kannski svei þér fyrir þína vinnu að ég nú ekki tala um segja mér ástæðu fyrir því að þættinum væri lagt. En nei, auðvitað var ekki hafður sá háttur á, það veit ég vegna þess að ég starfaði í 15 á tónlistar- deildinni. Fyrir svo sem ári var ég stödd í þularstofu að kynna óskalögin og þá frétti ég af tilviljun að flytja ætti þáttinn & Rás II sem var fyrirfram dauðadæmt, það fólk sem hlustar á óskalagaþátt sjúklinga hlustar ekki á Rás II. Hvaðan komu þessi skilaboð, hver vill óskalagaþátt sjúklinga feig- an? Ég veit það ekki, en það er einhver sem hefir mikinn áhuga á því. Rás II heyrðist aðeins á tveimur sjúkrahúsum á landinu, Borgarspít- ala og Fjórðungssjúkrahúsinu á Akjrreyri. Þátturinn týndist gjörsam- lega. Svo fór fólk að kvarta, og eftir nokkra mánuði gáfust þeir upp á því að hafa hann á Rás II. Ég hitti Ólaf Þórðarson á ganginum á Rás II og hann tilkynnti mér að næsta laugar- dag ætti ég að vera á Skúlagötunni, sem sagt aftur á Rás I. Svei mér ef það er ekki hægt að steindrepa þátt á svona flakki, þá veit ég ekki hvem- ig á að fara að því. Jæja, ég átti að fá 35 mínútur á laugardagsmorgnum frá 10.25—11.00. Þessar 35 mínútur urðu nú brátt að 27 mínútum, vegna tilkynningalesturs. Fók varð að leita að þættinum eins og að nál í hey- stakk, en samt gekk þetta sæmilega. Rétt eftir að við fluttum í nýja út- varpshúsið í Efstaleiti í sumar, bar það við að aðeins barst ein kveðja í þáttinn, en það er alltaf minna af kveðjum á sumrin þvi þá er mörgum deildum á sjúkrahúsum lokað. Ég var í léttu skapi og glettist með það að nú ætti að kalla þáttinn óskalag sjúkl- ings en við myndum bara spila eitthvað af góðum lögum til að bæta upp bréfleysið. Þetta fór nú heldur betur fyrir bijóstið á útvarpsráði því nú er verið að hegna sjúklingum og gamalmennum fyrir bréfletina með því að fella þáttinn út af dag- skránni. Ég hef lagt það tii að aðstandendur sjúklinga mættu skrifa eða jafnvel hringja í mig, og senda sínu fólki kveðjur í sjúkrahús og elli- heimili, ekki endilega að binda sig við að sjúklingamir skrifi sjálfir en það hefur ekki verið leyft. Hvers vegna? Ég hef lfka stungið upp á því að ég hefði símatíma strax að þættin- um loknum en það hefur verið talað út f buskann. Þessi þáttur er elsti óskalagaþáttur ríkisútvarpsins og á fullkomlega rétt á sér og ég veit vegna þess að nú hef ég undanfarin ár stjómað þættin- um að það er stór hópur fólks sem hefur ánægju og gleði af að heyra lögin sín og kveðjumar, það er fólk sem á í raunverulegum erfiðleikum, á við erfiða sjúkdóma að strfða og einmanaleika og þarfnast smá hlýju, en það þykir nú bara væmið og púka- legt að sýna þessu fólki einhveija virðingu. En við höfum sólarhrings útvarpsrás fyrir unga fólkið og þá sem njóta popptónlistarinnar. Kurteisi kostar ekkert og ég held að rfkisútvarpið ætti að sjá sóma sinn f þvf að koma þá með eitthvað annað að bjóða þessu fólki úr þvf að yfir- mönnum útvarpsins finnst Óskalaga- þáttur sjúklinga þvf ekki samboðinn. Helga Þ. Stephensen HEILRÆÐI Sjómenn Innan skamms er áætlað að björgunarbúningar verði komn- ir í flest íslensk skip. En eins og með önnur björgunartæki koma þeir að litlu gagni ef menn læra ekki notkun þeirra og umhirðu. — Það ásamt fleiru er kennt í Slysavamaskóla sjómanna. hægterað gretðafyrirmeð kreditkorti. föstudaga frákl. 9.00 til 17fi0 oglaugardaga frákl. 9fl0fl 13:30. LEIKVIKA 9 Leikir 24. október 1987 K 1 X 2 1 Arsenal - Derby 2 Coventry - Newcastle 3 Everton - Watford 4 Luton - Liverpool 5 Nott’m Forest - Tottenham 6 Oxford - Charlton 7 Q.P.R. - Portsmouth 8 Sheffield Wed. - Norwich 9 Southarnpton - Chelsea 10 Birmingham - Middlesbro 11 Reading - Bradford 12 Shrewsbury - Oldham f' SÍMAÞJÖNUSTUNA ! ! ! TOSHIBA • Við fengum sendingu af þessum skemmtilega ofni, ER 665 á aðeins 20.900 kr. - 19.900 kr stgr. og við bjóðum 6000 kr. útborgun og eftir- stöðvar á 6 mánuðum. • TOSHIBA ER 665 örbylgjuofninn er búinn hinni viðurkenndu DELTAWAVE-dreifingu og stórum snúningsdisk. • Góðar leiðbeiningar á íslensku fylgja með og þér stendur til þoða matreiðslunámskeið án endurgjalds hjá hússtjórnarkennara okkar, Dröfn H. Farestveit. Aðeins 10 eigendur á hverju námskeiði. • Ennfremur býðst þér að ganga í TOSHIBA uþþ- skriftaklúbbinn. • Eigum ávallt ótrúlegt úrval áhalda fyrir ör- bylgjuofninn. GRÍPTU NÚ TÆKIFÆRIÐ Einar Farestveit &Co.hf. Borgartúni 28, sími 16995.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.