Morgunblaðið - 23.10.1987, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1987
FIMLEIKAR / HM í HOLLANDI
Vawariotou
með forystu
í kvennaflokki
Bandaríkjamaðurinn Tim Daggettfótbrotnaði og gæti það
komið í veg fyrir að Bandaríkin kæmust með lið sitt til Seoul
Chan Cultlng, helsta von Kinveija 1 kvennaflokki, sést hár á flugi hátt
yfir jafnvægisslánni.
HÖRÐ keppni er nú á heims-
meistaramótinu í f imleikum
sem nu stendur yfir í Rotter-
dam, því aðeins 12 hœstu
lifiin á móti komast á
Ólympíuleikana í Seoul á
nœsta ári. Eins og stigin
standa f dag eru liðin í 7. til
15. sœti það jöfn að þau eiga
öll möguleika.
Lið frá 15 löndum hafa lokið
keppni í kvennaflokki. Gríski
meistarinn Fofo Varvariotou, sem
er einn af jmgstu keppendunum
á mótinu (13 ára),
Jónas hefur nú forystu í
Tryggvason kvennaflokki með
skrifar 75,45 stig. Gríska
liðið er einnig í
fyrsta sæti í liðakeppninni. Þær
hafa 364,95 stig og hafa tölu-
verða forystu á næsta lið sem er
frá ísrael, 356,875. Belgísku
stúlkumar em í þriðja sæti með
356,525 stig og Svíar koma næst-
ir með 356,425 stig.
Sænsku tvíburamlr
vekja athygll
Þátttaka sænsku tvíburanna
Chris og Ann Olsen vakti mikla
athygli og eins stóð María
Granström sig vel, eins má geta
þess að sænska klappliðið er mjög
fjölmennt á mótinu. Af öðmm
Norðurlandaþjóðum má nefna að
Noregur er með 346,80 stig og
Danmörk með 345,375 stig.
Finnar og íslendingar sendu ekki
lið á mótið.
Fimmtán þjóðir munu ljúka
keppni í kvennaflokki í dag og
þar á meðal em flest efstu liðin
eftir skylduæfinguna, t.d. Sov-
étríkin, Rúmenía, Austur-Þýska-
land, Kína o.fl. Nú þegar þetta
er skrifað (í gærkvöldi) stendur
yfir keppni síðustu liða í flokka-
keppni karla.
Daggett fótbrotnaðl
Af keppni piltanna í dag er það
helst að frétta að Tim Daggett
frá Bandaríkjunum fótbrotnaði
þegar hann kom illa niður úr
stökki yfir hest. Daggett er rejmd-
asti maðurinn í bandaríska liðinu,
hann var meðal annars í Ólympíu-
liðinu 1984. Eins var hann efstur
í sínu liði og í 17. sæti á mótinu
eftir skylduæfinguna.
Bandaríska liðið var í 7. sæti eft-
ir skylduæfinguna og þess vegna
gæti þetta slys sem gerðist í þriðju
umferð komið í veg fyrir að þeir
komist til Seoul. Meiri fréttir af
karlakeppninni verða í blaðinu á
morgun og þá ætti að vera hægt
að spá fyrir um úrslit í einstakl-
ingskeppninni.
Oiga Korbut helðruð
Ýmislegt hefur verið að gerast í
kringum mótið, meðal annars hef-
ur verið í gangi ráðstefna Al-
þjóðafimleikasambandsins, þar
sem verið er að hreinsa til í nafn-
giftum á fímleikaæfíngum, og
setja reglur í sambandi við það
hvemig fimleikamenn geta fengið
nöfn sín skráð á hinar ýmsu æf-
ingar. Eins hafa margir valin-
kunnir fimleikamenn verið
heiðraðir og þar má helsta nefna
Olgu Korbut sem var heiðruð fyr-
ir hennar tillegg til þróunar
fimleikanna.
Nýjar aaflngar
Ýmsar nýjar æfíngar eru að líta
dagsins ljós í fyrsta sinn á mót-
inu, meðal annars hafa tvær
kanadískar stúlkur tilkynnt að
þær verði með nýjar æfíngar.
Lori Strong hyggst framkvæma á
tvíslánni hopp af efri ránni yfír á
þá neðri með IV2 skrúfu. Janine
Rankin ætlar að gera uppstökk á
jafnvægisslána og enda í hand-
stöðu á annarri hendi. En það
kemur í ljós í kvöld hvort þær
útfæra æfingar sínar nógu vel til
að fá þær kenndar við sig.
Reuter
Androw Morrls sést hér keppa f skylduæfíngum á bogahesti. Morris er
besti fimleikamaðurinn í breska liðinu sem er nú í 12. sæti á HM.
SKÍÐI
HANDKNATTLEIKUR
Marc Girardelli
mákeppaáÓL
MARC Girardelli, austurríski
skíðakappinn sem keppt hefur
fyrir Luxumborg undanfarin ár
í alpagreinum, er nú orðinn
löggildur ríklsborgari í Luxem-
borg. Hann má því keppa fyrir
Luxemborg á Ólympíuleiknum
sem fram fara í Calgary í Kanda
f vetur.
Girardelli er fæddur í Austurríki
en hætti að keppa fyrir land
sitt er hann komst ekki f aust-
urríska skíðalandsliðið 1980. Síðan
hefur hann keppt fyrir Luxemborg
í heimsbikamum í alpagreinum með
góðum árangri.
Þó svo að Girardelli hafi keppt fyr-
ir Luxemborg í heimsbikamum var
hann ekki með vegabréf og því
ekki gjaldgengur á ÓL í Sarajevo
í Júgóslavíu 1984. Hann sótti um
að gerast ríkisborgari í Luxemborg
í fyrra og nú hefur það verið sam-
þykkt. Hann fær því að keppa á ÓL
í Calgary fyrir Luxemborg í vetur.
„Þetta er stór stund fyrir mig,“
sagði Girardelli er hann hafði feng-
ið nýja vegabréfíð í hendumar á
fimmtudaginn. Hann sagðist hefja
undirbúning sinn fyrir ÓL í Calgaiy
innan fárra vikna, en vildi ekKert
segja um sigurmöguleika sína þar.
Girardelli hefur unnið yfir 20 mót
í heimsbikamum á sfðustu flórum
árum og virðist jafiivígur á allar
Qórar greinamar, svig, stórsvig,
risastórsvig og bmn.
Pokrajac þjálfar lands-
lið Bandaríkjamanna
JUGOSLAVINN Branislav
Pokrajac hef ur verlö ráðinn
þjálfari bandaríska landsliðs-
ins fram yfir ólympt'uleikana f
Seoul nœsta haust.
Pokrajac er fyrrum landsliðs-
þjálfari Júgóslavfu. Hann
gerði liðið að ólympíumeisturum
í Los Angeles 1984, gerðist síðan
■■■■■■ þjálfari spánska
Frá landsliðsins í
Jóhanni Inga skamman tíma
Gunnarssyni eftir það og tók þá
'Þyskaiand, & J ^
landsliðs Júgóslavfu. En Pokrajac
var látinn hætta með liðið í sumar.
Pokrajac, sem er fertugur, hefur
starfað sem prófessor við háskól-
ann í Belgrad, en heldur til
Bandaríkjanna í næsta mánuði.
Samningur hann við bandaríska
handknattleikssambandið gildir
frá þeim tíma og þar til ólympíu-
leikunum næsta haust lýkur.
Bandaríkjamenn era sem kunnugt
er í riðli með íslendingum, Jú-
góslövum, Sovétmönnum, Svíum
og Alsírbúum á leikunum í Seoul.
Talið er að Pokrajac fái um
200.000 dollara fyrir samninginn
við bandaríska sambandið, en það
er andvirði rúmlega 7,7 milljóna
íslenskra króna.
Mllkovic tll Egyptalands?
Annar júgoslavneskur þjálfari,
Josep Milkovic, sem einnig hefur
þjálfað landslið Júgóslavíu, hefur
fengið tilboð frá handknattleiks-
sambandi Egyptalands um að
taka að sér þjálfun landsliðs þess.
Milkovic er 44 ára. Talið er lfídegt
að hann taki tilboðinu. Milkovic
stjómaði landslíði Júgoslavíu þeg-
ar liðið varð í 3. sæti heimsmeist-
arakeppninnar 1974 f Vestur-
Þýskalandi og síðan hefur hann
þjálfað lið Gunsburg, Berlin og
Schwabing hér í landi; og varð
Schwabing bikarmeistari undir
hans stjóm í fyrra.