Morgunblaðið - 25.10.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
Við hroturannsóknir eru notuð mælitæki til þess að fylgjast með
öndun manna, hér mundar Þórarinn mælitæki í þvi skyni
beitt handlæknisaðgerð sem er í því
fólgin að tekinn er burtu hluti
mjúka gómsins og úfurinn og einn-
ig hálskirtlamir, séu þeir til staðar.
Arangurinn við þessa aðgerð er sá
að nær ailir hætta að hijóta og
önnur einkenni hverfa oftast. Þessi
aðgerð heppnast að fullu hjá tveim-
ur þriðju sjúklinga en hjá einum
þriðja þarf að koma til framhalds-
meðferð. Ef aðgerðin misheppnast
geta menn orðið óþægilega varir
við til hvers þeir nota mjúka góm-
inn. Við notum hann til þess að
geta kingt og til þess að mynda
raddhljóðin. Fari mjúki gómurinn
getur fæðan leitað upp í nefkokið
og röddin legið of mikið upp í nas-
imar. Þetta er ekki algengt. Við
gerðum athugun á fyrstu 34 sjúkl-
ingunum sem skomir vom í
Uppsölum og aðeins einn hafði
minniháttar óþægindi við kingingu.
Nú vitum við að þessi meðferð
er ekki jafn heppileg fyrir alla en
eftir næturrannsókn má sjá hverjir
hafa gagn af henni og hveijir ekki.
Við skeram ekki þá sem veikastir
era þvi eftir misheppnaða aðgerð
er erfiðara að beita öðram aðferð-
um. Fyrir þennan hóp hentar best
sú meðferð að sofa með tæki sem
eykur þrýstinginn á innöndunarloft-
inu og hindrar þannig tunguna að
renna aftur í kok. Þetta er gríma
sem sett er yfír neííð og tengd er
blásara og þetta gerir það að verk-
um að menn hætta að hijóta og
öndunarhléin hverfa. Því miður
tekst ekki öllum að læra að nota
þetta tæki en ríflega helmingi
þeirra sem reyna tekst það þó og
heilsa þeirra gjörbreytist til hins
betra.
I einstaka tilvikum má beita
lyfjameðferð við kæfisvefni. Þá era
notuð þunglyndislyf í litlum
skömmtum, vegna þeirra eiginleika
slíkra lyQa að minnka draumasvefn
um allt að helming. Hjá þeim sjúkl-
ingum sem era með væg einkenni
og meginhluta öndunarhléa í
draumasvefninum getur þessi með-
ferð verið nægileg og árangursrík.
Séu þessi ljrf gefin fólki sem ekki
þjáist af þunglyndi er reynslan þó
því miður sú að allar aukaverkanir
af lyfinu era mun verri en hjá þeim
sem þjáist af þunglyndi, þá verður
fólk illa haldið af munnþurrki og
karlamir eiga í erfiðleikum með að
kasta þvagi svo frv.
Kæfisvefn var lengi kallaður
Picwick syndomre vegna þess að
Feiti-Jói, persóna í Æfíntýri
Picwicks eftir Dickens er sam-
kvæmt lýsingu dæmigerður fyrir
sjúkling sem haldinn er kæfísvefni.
í okkar fyrritíma bókmenntum hef
ég ekki getað fundið neitt dæmi
um mann með einkenni kæfisvefns,
þrátt fyrir að ég hafi bæði leitað
sjálfur og einnig fengið íslensku-
menn í lið með mér. Það er yfir
höfuð lítið talað um hrotur í íslensk-
um fombókmenntum. Þegar Þór fer
að finna Útgarðar Loka þá hijóta
þar að vísu jötnar og varðmenn sem
þykja varla starfi sínu vaxnir liggja
fýrir dyrarn og hijóta en að öðra
leyti er þar fátt um fína drætti
hvað þetta snertir. Höfundar fom-
sagnanna hafa líklega verið of
miklir fagurkerar til þess að skrifa
um svo leiðinlegt fyrirbæri sem
hrotur hafa alla jafna þótt. Það er
dálítið af hrotulýsingum í miðalda-
bókmenntum okkar en þær virðast
eingöngu vera notaðar til þess að
fylla upp í lýsingar á heldur auvirði-
legum persónum, það er t.d.
foiynjur sem hijóta en hreint ekki
talað um að glæstir kappar séu
þeim eiginleikum búnir."
TEXTI:
GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
HORPU-
SKJNi/s
HINN B JARTI ^TÓNN
gefur þér tilefni til að breyta skammdeginu.
Þú málar bara yfir það!
HÖRPUSKIN ný
innanhússmálning
með 10% gljástigi
sem gerir hana
áferðarfallega og
auðvelda í þrifum.
HÖRPUSKIN skaltu
nota á herbergin og
stofurnar. Hún er afar
einföld í notkun og
þekur mjög vel.
HÖRKI
SKIN J
GUÁSTia 10
■ noftutw é aMn. >tm og »«-
HÖRPUSKIN fæst í
10 björtum staðallitum
en litamöguleikarnir
eru mun fleiri.
Skiptu um lit á
skammdeginu - með
HÖRPUSKINI.
HARPA qei
lífinu lit.
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA
STARFSSVÆOI: LÖGSAONARUMOÆMI REYKJAVlKUR. KÓPAVOGSKAUPSTADAR. HAFNARFJAROAR-
KAUPSTADAR. KJÓSARSYSLU. SVO OO BESSASTAOAHREPPUR OG GAROABÆR
Félagsfundur
verður haldinn fimmtudaginn 29. okt. kl.
8.00 e.h. á Suðurlandsbraut 30,4. hæð.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Önnur mál
3. Erindi: Um nýtt skattakerfi
Hólmgeir Jónsson flytur.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Fólags Járniðnaðarmanna.
AUK hf. 111.7/SlA