Morgunblaðið - 31.10.1987, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1987
61
Þessir hringdu . . .
Bíllyklar
Tvær lyklakippur, önnur blá en
hin svört, með lyklum að Volvobif-
reið týndust fyrir nokkru. Síminn
hjá eigendum bflsins er 78460.
F\indarlaun.
Komum í veg
fyrir slysaöldu
Jónas hringdi:
Mikið hefur verið rætt um hrað-
ann í umferðinni að undanfömu
en án þess að mikill árangur sjá-
ist, því miður. Margir ökumenn
hafa ekki látið sér segjast og geis-
ast áfram án þess að skeyta um
hættuna sem af því hlýst. Nú fer
í hönd sá árstími sem er hinn
hættulegasti í umferðinni, fljúg-
andi hálka og slæmt skyggni.
Fjöldi bifreiða hefur aldrei verið
meiri og má ætla að fjöldi óvanra
ökumanna í umferðinni hafi au-
kist að sama skapi. Það er því
lífsnauðsyn að dregið verið úr
hraðanum og verður hver og einn
ökumaður að viðhafa varkámi í
umferðinni. Komum í veg fyrir
slysaöldu þegar aðstæðumar
verða verri með því að draga úr
hraðanum, aka varlega og sýna
meiri tillitsemi."
Bröndótt læða
Stór bröndótt læða með hvíta
bringu og hvítar lappir tapaðist
frá Njörfasundi 40 á föstudaginn
23. október. Þeir sem orðið hafa
varir við kisu em beðnir að hringja
í síma 32887. F'undarlaun.
Mál hinna réttlausu
Til Velvakanda.
Við viljum byija á því að þakka
Helga Jóhanni Haukssyni, skóla-
stjóra í Súðavík, hans mjög svo
skilningsríku slaif um ástand
kennslumála á íslandi og það er
alveg víst að með þessu móti tekst
að hrekja fjölda fólks, sem hefir
margra ára reynslu, frá störfum.
Svo verður að bjarga grunnskólun-
um með enn fleira óreyndu fólki.
Og hverra er hagurinn? Bamanna
eða kennarasambandsins? Það er
alveg með eindæmum hvemig farið
er að þvf fólki sem leggur og hefír
lagt fram krafta sína í áraraðir til
að skólastarf í landinu geti farið
fram með eðlilegum hætti. Hvar em
stóm orðin um að meta starfs-
reynslu?
Og það er ekki aðeins að launa-
bilið breikki milli kennara og
leiðbeinenda, heldur er einnig reynt
að hrelqa þetta fólk frá störfum
með því að tefja launagreiðslur til
þeirra, með alls konar málalenging-
um. Það þarf að fylla út eina
skýrsluna þá önnur er fengin, allar
nánast með sömu upplýsingum.
Við hér fengum okkar starfs-
heimild samþykkta 10. ágúst og
laun fyrir ágúst í framhaldi af því.
Eftir það hefir engin greiðsla verið
innt af höndum, alltaf vantar nýja
skýrslu eins og áður sagði.
Og við spyijum: Hvaða fyrirtæki
á íslandi liðist nú á dögum að borga
fólki ekki laun svo mánuðum skipti?
Nei, þar væri fólkið komið í verk-
fall fyrir löngu. Þess vegna hvetjum
við alla leiðbeinendur að taka hönd-
um saman. Við verðum að eiga
okkar talsmann í KÍ. Og við hljótum
að eiga að fá sömu laun og á sama
tíma fyrir sömu vinnu, eða er það
bara í frystihúsum sem það gildir?
Er meira virði að annast fiskinn
(með fullri virðingu fyrir þeim sem
því starfi sinna) en fræðsla og upp-
eldi bama okkar? Það er staðreynd,
að án okkar verður grunnskólum
landsins ekki haldið gangandi. Með-
an svo er að fólk með kennslurétt-
ingi sækir ekki meira í þessi störf,
en raun ber vitni, er ekki hægt að
bjóða þeim sem kennsluna annast,
svona misrétti.
Miðað við þær forsendur einnig,
að þetta fólk greiðir sín gjöld í KI,
innir af hendi sömu vinnu og ber
sömu ábyrgð. Það er orðið tíma-
bært að fólk þessa lands velti fyrir
sér hvemig þessum málum er hátt-
að og hvemig því þætti að fá launin
sín ekki greidd í 2—3 mánuði en fá
í staðinn inn um bréfalúguna
gluggapóst um öll sín gjöld, hót-
andi dráttarvöxtum og lögtaki, því
ekki borgar ríkið dráttarvexti af
launum sem það heldur ógreiddum
í marga mánuði.
Þetta er því ekki eingöngu hróp-
legt ranglæti samfélagslega séð,
heldur Qárhagslegt tap af þessum
fáum krónum sem þetta fólk ber
úr býtum.
Þrír grunnskólaleiðbeinendur
TIL SÖLU
Hvalsnes GK 376. Stærð 421.
Upplýsingar í
símum 92-37655 og 92-37578.
POTTRÖR OG
FITTINGS
Á LAGER
-r
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
HEILDSALA — SMÁSALA
v VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
BESTI
KOSTURINN!
Nýja ökumanns—
húsið er
þekkt fyrir
þægindi og
vandaðan frágang
NYJA LÍNAN - FORCE II
Nýtt ökumannshús í sérflokki, öflugri mótor en
sparneytnari og samhæfður gírkassi með fjölda
hraðastiga.
Eigum fáeina vel útbúna traktora,
á mjög hagstæðu verði.