Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.11.1987, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1987 Siglufjörður; Senda fisk á markaðina fyrirsunnan Sig’lufirði. SIGLFIRÐINGAR hafa á und- anförnum dögum sent fisk á fiskmarkaðina fyrir sunnan. Er fiskinum landað á Siglufirði og honum síðan ekið á bíl á höfuð- borgarsvæðið. Ágætt verð hefur fengist fyrir afla línubátanna Emmu, Drafnar og fleiri á fiskmörkuðunum, eða um 51 króna á kílóið. Það gerir 42—43 krónur á kílóið þegar flutn- ingskostnaður hefur verið dreginn frá, sem er 12—13 krónum hærra verð en fengist hefur fyrir aflann hér á Siglufirði. M.J. Þing VMSÍ: Stuðningur við húsnæðis- frumvarpið Akureyri. Frá Hjálmari Jónssyni blað&m&nni Morgunblaðsins Þrettánda þing Verkamanna- sambands íslands samþykkti samhljóða tillögu þar sem lýst er yfir stuðningi við markmið Jóhönnu Sigurðardóttur félags- málaráðherra um húsnæðismál, að þeim verst settu verði veittur forgangsréttur til húsnæðis- lána. Undirskriftalisti var látinn ganga á þinginu og skrifaði 121 þingfulltrúi undir hann. Tillagan var síðan borin upp og samþykkt samhljóða. í tillögunni segir einn- ig; „Þingið treystir því að sam- staða geti orðið um það fyrirkomulag sem tryggi best hag okkar fólks, þannig að þeirri neyð, sem ríkir í húsnæðismálum verði aflétt." Fjármálaráðherra: Næsta skref að tala bet- ur saman JÓN Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið i gær að næsta skref til að greiða fyrir kjara- samningum sé að tala betur saman, en það sé fyrst og fremst mál aðila vinnumarkaðarins. „Ríkisstjómin hefur skýrt sjón- armið sín,“ sagði fjármálaráð- herra. „Ég á von á því að að loknu þingi Verkamanrasambandsins muni forysta þess skýra ríkis- stjóminni frá niðurstöðum þings- ins og með hvaða hætti málin hafa skýrst eftir þing.“ ■ Stjómendur æfingarinnar, frá vinstri: Snorri Hafsteinsson frá Hjálparsveit skáta, Þór Sig- urðsson frá sveitum Slysavarnafélags íslands, Jón Gunnarsson frá Flugbjörgunarsveitinni og Þórður Guðmundsson fjarskiptamaður í ___________________ stjórnstöð. Á innfelldu myndinni sést einn Morgunbiaðið/Þorkeii leitarmanna á fullri ferð á vélsleða. Sameiginleg björgun- aræfing í fyrsta skipti ALLS tóku um 270 manns þátt í fyrstu sameiginlegu björgun- aræfingu sveita Flugbjörgun- arsveitarinnar i Reykjavik, Hjálparsveita skáta og Slysa- vamasveitanna á svæði 1, sem nær frá Hafnarfirði og upp i Kjós. Æfingasvæðið var í grennd við Botnssúlur og hófst æfingin að- faranótt laugardagsins þegar tilkynnt var um „tvo nauðstadda flallgöngumenn" og skömmu síðar barst beiðni um aðstoð við „ijúpnaskyttu" sem væri í vand- ræðum. Leitin hófst klukkan 3.30 og fundust göngumennimir slas- aðir og skyttan heil á húfi í Súlnadal á 10. tímanum í gær- morgun. Leitarmenn fengu þó ekki að fara heim við svo búið því þá höfðu borist fleiri beiðnir um aðstoð við nauðstadda, meðal annars vegna smábáts sem „sakn- að var“ á Hvalfirði. Jón Gunnarsson, einn þriggja manna í aðgerðarstjóm, sagði Morgunblaðinu, að æfingin hefði tekist mjög vel og gengi samstarf sveitanna vel. Þó sagði hann að það væri bagalegt að Landhelgis- gæslan hefði ekki treyst sér til að taka þátt í æfíngunni vegna kostnaðar. Mannekla hjá Landhelgísgæslunni - segir Gunnar Bergsteinsson forstjóri GUNNAR Bergsteinsson for- stjóri Landhelgisgæslunnar segir að ástæða þess að Gæslan tók ekki þátt í sameiginlegri æfingu björgunarsveita á Reykjavíkursvæðinu sé mann- ekla lyá stofnuninni. Stundum þurfum við að gefa okkar fólki frí,“ sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að samstarf við hinar ýmsu björgunarsveitir væri Gæslunni mikilvægt og væri reynt að taka þátt í æfíngum með þeim eftir föngum. Mikið mæddi hins vegar á þeim fáu mönnum sem ynnu við þyrlufiugið og þeir þyrftu hvfld svo einhver væri til taks þegar á þyrfti að halda vegna útkalla. Einkum væm helgamar erfiðar. Kreppa kemur síðast niður á neyzlu matvæla - Fiskgæðin mikilvægust komi til kreppu segir Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater forstjóri „MENN eru ekki sammála um hvort efnahagskreppa sé yfir- vofandi i Bandaríkjunum, þrátt fyrir verðfall á verð- bréfum. Komi hins vegar til samdráttar, kemur hann líklega síðast niður á neyzlu matvæla. Fyrir okkur verður þá mikilvægast að halda áfram ótvfræðum yfirburðum í fisk- gæðum og áreiðanleika í afgreiðslu fisksins," sagði Óvenju mikið sorp frá einkaheimilum SORP frá einkaheimilum hér á landi er óvenju mikið miðað við nágrannalöndin, segir í grein- argerð Katrínar Fjeldsted, sem lögð hefur verið fyrir borgar- ráð ásamt tillögu um að leitað verði leiða til að draga úr því. í svari Þórðar Þ. Þorbjamar- sonar, borgarverkfræðings, segir að miðað við önnur lönd búi íslendingar við tiltölulega lágan sorpeyðingarkostnað og að hér á landi sé ekki endur- vinnsla á sorpi. Tillaga Katrínar er til komin vegna umræðu um pöntun á nýj- um sorpbifreiðum og leggur hún til að: „Leitað verði leiða til þess að draga úr því sorpi, sem nú leggst til í borginni. Verði það gert með því að hvetja fólk að fiokka sorp í heimahúsum með það fyrir augum að aðgreina hreinan pappír og pappa frá öðru sorpi, svo og gler og málma. Að auki verði reynt að draga úr plast- notkun eins og hægt er, t.d. með því að nota sterka bréfpoka í stað plastpoka." Borgarverkfræðingur bendir á í svari sínu að aðstæður ráði hvort flokkun á sorpi, eins og tíðkast víða erlendis, nái tilgangi. Fyrir hendi þurfí að vera aðilar sem vilji kaupa og endurvinna það sem til fellur. „Kostnaður við að eyða sorpi hefur og áhrif en hér á landi er tiltölulega lítill kostnaður vegna sorpeyðingar. Niðurstaðan er því sú að í augnablikinu eru engar markaðsforsendur fyrir því að flokka sorp í heimahúsum. Ef einhver aðili gefur sig fram sem vill standa fyrir slíkri söfnun er sjálfsagt fyrir borgina að ræða við þann aðila um það hvort um gagnkvæmt hagsmunamál sé að ræða,“ sagði borgarverkfræðingur. Magnús Gústafsson, Coldwater. Magnús sagði, að staðan nú væri þannig, að ekki hefði verið unnt að afgreiða allan þann físk, sem óskað væri eftir. Meðal ann- ars vegna þess og yfírburða í fískgæðum, hefði tekizt að halda verði á fiskinum háu. Ef kreppa yrði, myndi samkeppni um verð harðna og þá væri mikilvægast að viðhalda gæðunum og auka áreiðanleika á afgreiðslu. „Við verðum þá, enn frekar en nú, að greina okkur frá öðrum með séreinkennum, sem falla neytandanum í geð. Gæðin hafa verið vörumerki okkar og þau verða áfram sterkasta vopnið í baráttunni á þessum markaði ásamt áreiðanleika," sagði Magnús Gústafsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.