Morgunblaðið - 18.11.1987, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
Ný félagsmiðstöð
fyrir aldraða opnuð
FÉLAGS- og þjónustumiðstöð
fyrir aldraða við Bólstaðarhlíð
43 í Reykjavík var opnuð fimmtu-
daginn 12. nóvember. Ráðgert
er að hafa fjölþætt félags- og
tómstundastarf fyrir Reykvík-
inga eldri en 67 ára í félagsmið-
stöðinni. Má þar nefna
handavinnu, hreyfiþjálfun, fé-
lagsvist og ýmiskonar námskeið
og kvöldvökur ásamt baðþjón-
ustu, hársnyrtingu og fótsnyrt-
ingu. Þá er einnig ráðgert að
hafa heitan mat til sölu í hádeg-
inu þegar fram líða stundir.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
opnaði félagsmiðstöðina og auk
hans fluttu stutt erindi þau Jóna
Gróa Sigurðardóttir varaformaður
Byggingarnefndar aldraðra, Ami
Sigfússon formaður Félagsmála-
ráðs, Katrín Fjeldsted formaður
Heilbrigðisráðs, Ágústa Helgadóttir
forstöðumaður í félagsstarfi nýju
félagsmiðstöðvarinnar og Eygló
Stefánsdóttir forstöðumaður
heimaþjónustu hennar.
Húsnæði þjónustumiðstöðvarinn-
ar er 930 fermetrar að flatarmáli
og eru 860 fermetrar á fyrstu hæð
sem er jarðhæð en í kjallara eru
70 fermetrar fyrir tækni- og lagna-
rými. Á fyrstu hæðinni eru matsal-
ur, eldhús, setustofa, skrifstofur og
búningsherbergi starfsfólks, vinnu-
stofur fyrir tómstundastarf og
þjónusturými fyrir hárgreiðslu,
fótsnyrtingu og böð. Heildarkostn-
aður við byggingu hússins og búnað
þess er 65.750.000 reiknað á verð-
lagi 1. nóvember 1987.
Að sögn Þóris S. Guðbergssonar,
yfírmanns ellimáladeildar Félags-
málaráðs, er ráðgert að gera nú í
fyrsta sinn tilraun með samræmda
heimaþjónustu í félagsmiðstöðinni
við Bólstaðarhlíð, það er að bæði
heimilishjálp og heimahjúkrun verði
skipulögð frá einni þjónustumiðstöð
og verður þjónustan takmörkuð við
svæði í nágrenni miðstöðvarinnar.
Markmiðið með þessari samþættu
starfsemi, að sögn Þóris, er að efla
þjónustu við aldraða sem búa heima
með leiðbeiningum, ráðgjöf, fræðslu
og ýmiskonar starfsemi sem fellur
undir heimaþjónustu.
Fyrirhugað er að í þjónustumið-
stöðinni verði félags- og tómstunda-
Gestir í setustofu
félagsmið-
stöðvarinnar.
starf fyrir aldraða og félagsleg
þjónusta, hársnyrting, fótsnyrting,
hreyfíþjálfun, aðstoð við böðun,
matarþjónusta, heimilishjálp og
heimahjúkrun.
Morgunblaðið/Þorkell
Davíð Oddsson, borgarstjóri, ávarpar gesti i matsal félagsmiðstöðvar-
innar við Bólstaðarhlíð.
Rjóma/jarðar-
berjaskyr
minnir á sunnudag í
sveitinni.
Jógúrt með
brómberjum og
hindberjum
Berjabragðið er betra
þegar niaður
sleppur við
bakverkinn af
tínslunni.
HAUSI
Sunnudagsjógúrt
með banönum og
kókos
Pað liggur við að
maður drífi sig í
sólfötin.
jogukt
Sunnudags-
.^önum og kókos
jiMi, „ %nm-
7,1
“ 17
pinu/n (g