Morgunblaðið - 18.11.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1987
51
Borað eftir jarðsjó. Við borun er notuð öflug loftpressa, svo að jarð-
sjórinn spýtist hátt upp í mastur.
sumar auk holu sem boruð var á
Kópaskeri sérstaklega fyrir Árlax
hf. Holurnar voru allar boraðar með
jarðbomum Loka, sem er í eigu
Jarðborana hf., og urðu 50—150 m
djúpar. Leitin að jarðsjó varð stærri
þáttur í borunum og kostnaðarsam-
ari en gert hafði verið ráð fyrir.
Árangursrík leit að jarðsjó var þó
talin lykilatriði, enda grundvallar-
forsenda matfiskeldis á svæðinu.
Fyrsta holan (D-l) var boruð
skammt vestan Brunnárósa, um 40
m frá sjó. Þama var talið vænlegt
að leita jarðsjávar og góðar aðstæð-
ur til nýtingar hans í nágrenninu.
Það er þó skemmst frá því að segja
að holan, sem varð 150 m djúp, gaf
engan sjó. í lok borunar runnu aft-
ur á móti 2—3 1/s af fersku vatni,
9° heitu, úr henni. Neðan 100 m
var komið í gamlan, þéttan berg-
grunn sem innihélt lítið eitt af söltu
vatni. Leitin að jarðsjó hafði mistek-
ist í fyrstu atrennu en holan gaf
mikilsverðar upplýsingar um
grunnvatnsrennsli.
Næst var borað um 1500 m vest-
ar, úti á sandinum, skammt frá
jarðhitanum í Skógalóni. Litlu vest-
ar hafði Seljalax hf. dælt niður
fjölda fóðurröra sumarið 1986, allt
niður á 40 m dýpi. Þessa boraðferð
höfðu heimamenn þróað undir
stjóm Bjöms Benediktssonar, odd-
vita í Sandfellshaga, og reyndist
hún vel í lausum sandinum. Sjávar-
tökuholan við Skógalón (Æ-2) varð
101 m djúp, boruð í sand alla leið
og gekk borun vel. Hún er fóðmð
með stálrömm í botn en neðsti hluti
fóðringarinnar er gataður með
örmjóum raufum. Pyrstu niðurstöð-
ur lofuðu góðu. Úr grannri holunni
mátti dæla yfír 10 1/s af um 34 °C
heitum jarðsjó, án mikils niður-
dráttar vatnsborðs. Efnagreiningar
bentu í fyrstu til að jámmengun
yrði undir hættumörkum. Við lang-
tímadælingu síðar um sumarið kóm
þó annað í ljós, og virðist þessi jarð-
sjór ekki nýtanlegur beint til físk-
eldis.
Þriðja jarðsjávarholan (D-2) var
bomð utan við sandinn í fasta klöpp
við svokallaða Buðlungahöfn og er
hún 50 m djúp. Efst er þétt hraun-
lag, sem nær niður á 24 m dýpi.
Sjór kom inn í holuna á mótum
hraunlagsins og kubbabergs sem
undir er. Þegar dýpra var borað
jókst gæfni í loftdælingu upp í 20
til 30 1/s af 7—8°C heitum jarðsjó,
nær fullsöltum. Efnamengun jarð-
sjávarins er ekki mikil, t.a.m. er
járninnihald vart mælanlegt en
manganinnihald þó í hærra lagi. í
• • #
„Oxarfjörður er ein af
útbyggðum Islands.
Byggðin stendur nokk-
uð höllum fæti vegna
samdráttar í landbún-
aði og niðurskurðar
bústofns vegna riðu-
veiki. Það er því lífs-
spursmál fyrir íbúa
Oxarfjarðar að fá úr
því skorið hvort mat-
fiskeldi er framtíðarat-
vinnuvegur í héraðinu.“
heild em niðurstöður lofandi og er
talið líklegt að þama megi vinna
nægjanlegt magn af nýtanlegum
jarðsjó á hagkvæman hátt.
Jarðhitaleit
Um 20 viðnámsmælingar vom
gerðar úti á söndunum og boraðar
tvær rannsóknarholur í hitasvæðin.
Fyrstu niðurstöður viðnámsmæl-
inganna styðja eldri hugmyndir um
öflugt jarðhitasvæði, líklega háhita-
svæði, á söndunum austan Bakka-
hlaups. Sömuleiðis benda þær til
að við Skógalón sé meiri jarðhiti
en fram kom í eldri mælingum.
Fyrri jarðhitaholan (Æ-l), sem
raunar var fyrsta rannsóknarhola
sumarsins, var bomð í hverasvæðið
við Skógalón. Hún er 71 m djúp
og var bomð í sand og sandstein,
neðan 50 m. Holan var fóðmð í
botn með stálröri og neðsti hluti
þess hafður raufaður. Holan fór
fljótlega í sjálfrennsli og mnnu úr
henni nokkrir sekúndulítrar, en
raufamar reyndust of víðar er til
kom svo að holan fylltist af sandi
og dró þá úr rennsli. Gert var við
holuna með því að dæla niður heilu
grennra röri alla leið í botn og fylla
holuna upp með perlumöl. Með því
móti mátti áfram dæla úr holunni
og ná djúpsýnum til efnagreininga.
Botnhiti er um 107°C en efnagrein-
ingamar benda til að hiti dýpra í
jarðhitakerfinu sé um 130°C. Selt-
an er um 4,5% og jám- og
manganinnihald lítið. Kemur þetta
ágætlega heim við niðurstöður sýna
sem tekin vom ú hveram á bor-
svæðinu sumarið 1984.
Hin jarðhitaholan (B-l) var bomð
í jarðhitasvæðið við Bakkahlaup.
Vegna flárskorts var ekkert hægt
að bora 150—200 m djúpa holu eins
og áætlað hafði verið og var því
ákveðið að forbora hana eingöngu.
Borað var niður á 81 m dýpi og
holan fóðmð í 72 m dýpi með
steyptri stálfóðringu með það í huga
að dýpka hana á næsta ári. Holan
var bomð í jarðhitaummyndaðan
sand og er ummyndunin það mikil
að skolvatn borsins varð dökkgrænt
á lit í bomn. Svipuð ummyndun
finnst nærri yfirborði á íslenskum
háhitasvæðum og er ólíklegt að
nokkuð annað en háhitavirkni hafí
valdið ummynduninni. Hitinn við
botn er 107°C. Æskilegt er að hol-
an verði dýpkuð á næsta ári í allt
að 300 m dýpi. Með því móti feng-
ist mat á því hvort gufuvinnsla
kæmi til greina af þessu svæði.
Staðfesting á jákvæðum niður-
stöðum jarðhitarannsókna sumars-
ins er lífsspursmál fyrir framtíð
fiskeldis í Öxarfirði. Jarðhitinn
kemur upp í allt að 1000 m þykkri
setlagasyrpu, sem er óþekkt annars
staðar á Islandi. Ekki er hægt að
yfirfæra beint þá reynslu og þekk-
ingu sem fengist hefur á öðmm
jarðhitasvæðum, og því full ástæða
til að vanda vel til framhaldsað-
gerða.
Helstu niðurstöður
1) Nægjanlegt ferskvatn til
seiða- eða matfiskeldis finnst í aust-
anverðum Öxarfírði.
2) Nýtanlegur jarðsjór finnst við
Buðlungahöfn. Ovissa ríkir um
magn hans og gæði, en ástæða er
til bjartsýni. Líklegt ertalið að finna
megi fleiri sjótökustaði.
3) Nýtanlegum jarðvarma virðist
mega ná við Skógalón og Bakka-
hlaup.
Framhaldsrannsóknir
Síðari áfanga verksins er ólokið.
Lagt er til að eftirtaldir verkþættir
verði unnir á næsta ári:
1) Kortlagning linda f Keldu-
hverfí, Öxarfirði og á vestanverðri
Melrakkasléttu verði lokið, og jafn-
framt verði mældar nokkrar
stærstu lindámar til að fá nákvæm-
ara mat á því magni ferskvatns sem
vinna má á svæðinu. Ennfremur er
nauðsynlegt að bora a.m.k. tvær
gmnnar rannsóknarholur. Þannig
fengist haldgott yfirlit yfir gmnn-
vatnsstreymi á svæðinu öllu.
2) Bomð verði að minnsta kosti
ein fullvíð dælingarhola við Buðl-
ungahöfn, 50—100 m djúp og hún
dælauprófuð. Ef niðurstöður verða
jákvæðar er ekkert því til fyrirstöðu
að hefja vinnsluboranir, ef efnasam-
setning sjávarins setur ekki strik í
reikninginn.
3) Bomð verði 500 m djúp rann-
sóknarhola við Skógalón. Jafnframt
verði holan við Bakkahlaup dýpkuð
um 200 m. Hagkvæm jarðhitanýt-
ing er eins konar ljfæð matfiskeldis
í austanverðum Öxarfirði, en úr
hagkvæmninni fæst ekki skoríð
nema með boranum. Jarðhitasvæð-
ið við Skógalón er betur í sveit sett
til samnýtingar jarðhita, jarðsjávar
og ferskvatns en svæðið við Bakka-
hlaup. Gufuvinnsla er hins vegar
hugsanleg við Bakkahlaup. Til þess
að fá úr því skorið verður að dýpka
holuna sem forbomð var í surriar.
Niðurlag'
Öxarfjörður er ein af útbyggðum
íslands. Byggðin stendur nokkuð
höllum fæti vegna samdráttar í
landbúnaði og niðurskurðar bú-
stofns vegna riðuveiki. Það er því
lífsspursmál fyrir íbúa Öxarfjarðar
að fá úr því skorið hvort matfi-
skeldi er framtíðaratvinnuvegur í
héraðinu. Fyrstu niðurstöður jarð-
fræðirannsókna em jákvæðar og
því er mikilvægt að þeim sé fylgt
eftir eins og best verður á kosið.
Niðurstöður rannsóknanna munu
skera úr um hagkvæmni þessa
hugsanlega búskaps framtíðarinnar
í héraði og má því nokkm til kosta.
Helstu heimildin Rannsóknir í
Öxarfirði 19897, stáðan í október
1987. Lúðvík S. Georgsson, Guð-
mundur Ómar Friðleifsson, Magnús
Ólafsson, Þórólfur H. Hafstað og
Freysteinn Sigurðsson. Orkustofn-
un, OS-87044/JHD-26B.
Lúðvík S. Georgsson er verk-
fræðingur og Guðmundur Ómar
Friðleifsson jarðfræðingur hjá
Orkustofnun.
Formanna- og sambandsstj órnarf undur SSÍ:"
Sjómenn fylgjandi
frumvarpi um
sljórnun fiskveiða
Athugasemdir þó gerðar við kvóta-
skerðingu vegna útf lutnings
á ferskum fiski og sölu aflakvóta
FUNDUR formanna- og sam-
bandsstjórnar Sjómannasam-
bands íslands samþykkti um
helgina ályktun, þar sem lagt er
til að við mótun fiskveiðistefn-
unnar til næstu ára verði í megin
atriðum stuðzt við núgildandi lög
og reglur um fiskveiðisljórnun-
ina. Fundurinn studdi þær
meginreglur, sem fram koma í
frumvarpi til laga um stjórn fisk-
veiða og leggur til að það verði
samþykkt með nokkrum athuga-
semdum.
Athugasemdir fundarins em:
„Fundurinn áréttar þá skoðun sína
vegna umræðna í þjóðfélaginu að
undanfömu um skiptingu afla-
kvóta, að eðlilegast sé að skipta
aflanum á þau atvinnutæki, sem
ætlað er að sækja aflann.
Fundurinn mótmælir þeirri ráða-
gerð, sem fram kemur í fmmvarp-
inu, um að afli sem fluttur er
óunninn á erlendan markað skuli
skerða aflakvóta viðkomandi skips
um 20%.
Fundurinn lýsir andstöðu við
þann hluta 12. greinar fmmvarps-
ins, sem fjallar um sölu á aflakvót-
um. Fundurinn telur að sala á
óveiddum afla eigi ekki að viðgang-
ast, þar sem slíkt bjóði aðeins upp
á misrétti og gróðabrask með afla,
sem ekki er vitað hvort náð verður.
Hins vegar getur fundurinn
fallizt á þann hluta greinarinnar
sem fjallar um tilfærslu á kvóta
milli skipa innan sömu útgerðar og
innan sama byggðarlags.
Þeir sem af einhveijum ástæðum
geta ekki nýtt þann aflakvóta sem
þeim er úthlutaður eiga að skila
honum til sjávarútvegsráðuneytis-
ins aftur. Ráðuneytið á síðan að
úthluta aflakvóta, sem þannig er
skilað, í samráði við hagsmunaaðila
í sjávarútvegi."
Fundurinn lýsti einnig áhyggjum
sínum vegna aukinanr slysatíðni,
sem orðið hefur_ meðal sjómanna
undanfarin ár. „Á síðastliðnum 20
ámm hefur slysum á sjó íjölgað
vemlega. Árið 1966 slösuðust 286
sjómenn við störf sín, en árið 1986
slösuðust 503 sjómenn. Þessi aukn-
ing slysa á sér stað á sama tíma
og veruleg fækkun hefur orðið í
íslenzkri sjómannastétt. Fundurinn
telur fræðslu á þessu sviði ömgg-
ustu ieiðina til að snúa þessari
óheillaþróun við. Þrátt fyrir að þess-
ar staðreyndir blasi við er íjárveit-
ing til öryggisfræðslu sjómanna
felld niður í fjárlagafmmvarpi
næsta árs. Fundurinn skorar á íjár-
veitinganefnd Alþingis að beita sér
fyrir því að verulegu fjármagni
verði veitt á næsta ári til öryggis-
fræðslu sjómanna.
Þá lýsir fundurinn yfir fullum
stuðningi við ályktun frá öryggis-
málaráðstefnu sjómanna, sem
haldin var 18. september síðast lið-^-
inn, þar sem skorað er á ríkisstjórn
Islands að hefjast nú þegar handa
um uppbyggingu þaulskipulagðrar
öryggis- og björgunarþjónustu sjó-
mönnum til handa, sem væri meðal
annars útbúin fullkominni björgun-
arþyrlu, sem bæri að minnsta kosti
24 menn og væri búin afísingar-
tækjum."
Fundurinn lýsti ennfremur
áhyggjum sínum vegna þróunar í
íslenzkri kaupskipaútgerð og mót-
mælir harðlega takmarkalausum
leigutökum íslenzkra kaupskipaút-
gerða á erlendum kaupskipum sem
mönnuð em erlendum sjómönnum.
„Á undanfömum ámm hefuc^
íslenzkum kaupskipum stórlega
fækkað á sama tíma og þau stækka
sem eðlilegt má teljast í þeirri flutn-
ingaþróun sem nú á sér stað.
Þessari þróun hefur fylgt veruleg
fækkun í íslenzkri farmannastétt.
Og enn blasir við fækkun íslenzkrar
farmannastéttar í ljósi þeirra stað-
reynda að sífellt fjölgar erlendum
leiguskipum, sem stunda reglu-
bundnar siglingar til og frá
landinu."
Taflfélag
Reykjavíkur:
Bikarmótíð
hefst í dag
BIKARMÓT Taflfélags Reykja-
víkur hefst i dag, miðvikudag, í
félagsheimilinu að Grensásvegi
klukkan 20.
Teflt er eftir útsláttarfyrirkomu-
lagi og falla keppendur úr keppni«p*
eftir fimm töp. Umhugsunartími er
30 mínútur á skák fyrir hvom kepp-
anda. Teflt verður á miðvikudögum
klukkan 20 og á sunnudögum
klukkan 14.
Bikarmót Taflfélags Reykjavíkur
fór fyrst fram árið 1965. Jóhann
Hjartarson, alþjóðlegur stórmeist-
ari, hefur oftast borið sigur úr
býtum eða þrívegis, fyrst aðeins 14
ára gamall árið 1977. Núverandi
bikarmeistari er Þröstur Árnason.
OTDK
HREINN
HUÓMUR
&
Á morgun,funmtudag, kl. 09.00
opnar HlíÖablóm stcerri verslun á horninu á
Miklubraut og LönguhlíÖ.
Fjölbreytt úrval afgjafavörum og skreytingum.
VeriÖ velkomin.
MuniÖfimmtudaginnkl. 09.00.
Heitt ákönnunni.
KVEÐJA,
Ath! Sðlntumina, Miklubranl 68, flvtur við hliftina á HhMlómi siuna dag kl, 13.00.
&
4*^