Morgunblaðið - 12.12.1987, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987
Gjafahlutir
úrítölsku
eðalstáli
Kjörgripir til gjafa, eða bara til
þess að gleðja sjálfan sig
og fjölskylduna-
— Þú gengur
að gæðunum vísum.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartún 29 Simi 20640
DRY”
ESPRESSO KAFFIKÖNNUR ÚR STÁLI
STÁLKETILL
i
Saga íslenskra
mormónatrúboða
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar hefur gefið út bókina Gekk
ég yfir sjó og land eftir Kristján
Róbertsson.
í kynningu útgefanda segir um
efni bókarinnar: „Hér segir frá þeim
miklu umbrotum sem áttu sér stað
í lífí fólks í Vestmannaeyjum á
síðari hluta 19. aldar, þegar íslensk-
ir mormónatrúboðar birtust þar og
fóru að boða nýtt fagnaðarerindi.
Furðu margir létu skírast og flutt-
ust vestur um haf til hins fyrir-
heitna lands. Hér er sagt frá ferðum
þessa fólks og ótrúlegri þrautseigju
við að komast til „himnaríkis á
jörðu", hvemig því famaðist og
hvers vegna sumir fluttust von-
sviknir aftur heim til íslands. Þetta
er bæði furðuleg og fróðleg saga,
sem margir munu áreiðanlega hafa
gaman af að kynna sér.“
Kristján Róbertsson
Prentun og bókband annaðist
Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Aldnir hafa orðið
BÓKAÚTGÁFAN Skjaldborg
hefur gefið út bókina Aldnir
hafa orðið eftir Erling Davíðs-
son.
í kynningu útgefanda segir m.a.
að bókaflokkurinn Aldnir hafa orðið
varðveiti hinar merkilegustu frá-
sagnir eldra fólks af atburðum
löngu liðinna ára og um það sjálft,
atvinnuhætti, siðvenjur og bregði
upp myndum af þjóðlífmu, ömm
breytingum og stórstígum fram-
forum.
Þeir sem segja frá í þessari bók
eru: Gerður Magnúsdóttir, Halldór
Sigurðsson, Kjartan Ragnars,
Kristinn Jónasson, Sigríður Helga-
dóttir, Stefán Valgeirsson og
Þorsteinn Steingrímsson.
Erlingur Davíðsson
rGEGN STAÐGREIÐSLUn
EIMSKIP
*
Kaupum og seljum hlutabréf Eimskips gegh
staðgreiðslu. Kaupverð nú er kr. 3.490.- fyrir hverjar
1.000,- kr. nafnverðs.
sími Hlutabréfamarkaóurinn hf.
21677 Skólavörðustíg 12, 3.h., 101 Reykjavík.
NAMSAÐSTOÐ
Innritun á vormisseri fer fram vikuna
14.-18. desember.
Vegna mikillar aðsóknar er þeim, sem
telja sig þurfa námsaðstoð fyrir vorið,
bent á að láta ekki dragast fram yfir ára-
mótað innrita sig.
Aðstoð við flestar bóknámsgreinar grunn-
skóla og framhaldsskóla, auk raungreina
á háskólastigi.
Misserisnámskeið og styttri námskeið.
Skrifstofan eropin kl. 15.30-17.30.
Símsvari utan þess tíma.
1®
LEIÐSÖGN SF.
Þangbakka 10, sími 79233.