Morgunblaðið - 12.12.1987, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987
-W
AS E A Cylinda
uppþvottavélar ★sænskar og sérstakar
Taka 14 manna borðbúnað og fá hæstu
neytendaeinkunnir fyrir þvott, þurrkun, hljóð-
leika og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi
einkenna ASEA. Þú færð ekki betri vélar! _
3;^onix
HATUNI 6A SÍMI (91)24420
Þorsteinn Vilhjálmsson:
Heímsmynd á
hverfanda hvelí II
Heimsmynd á hverfanda hvelí er
umfangsmesta og vandaðasta verk sem enn
hefur verið skrífað á íslensku um sögu og
heimsmynd vísinda. I fyrra bíndinu var
fjallað um heimsmynd vísinda frá öndverðu
til Kópemikusar. Hér er haldíð áfram þar
sem frá var horfið og þróuninni fylgt fram
yfir daga Newtons. Hér segir frá trúvíll-
ingnum Gíordanó Brúnó sem predikaði
sólmiðjukennínguna á ofanverðri 16. öld, og
fjallað um danska stjörnufraeðinginn Týchó
Brahe og Þjóðverjann Jóhannes Kepler og
kenningar þeirra. Itarlegast er sagt frá
merkilegum æviferli Galíleó Galíleis.
vísindaafrekum hans og útistöðum við
Páfagarð en loks vikur sögunni að Isaac
Newton sem fullkomnaði byltingu Kópemik-
usar með aflfræði sinni.
Frésögnin er bæði skemmtileg aflestrar
og einkar fróðleg og dregur glöggt fram
tengsl vísinda við þjóðfélag og almenna
sögu. Bókin er 400 bls. að stærð, prýdd
fjölda mynda og skýringarteikninga og afar
vönduð að allri gerð.
Verð: 3.480,-
Mál og menning iBia W
I Morgunblaðið/Ámi Sæberg
A Lúsíuhátíð Sænsk- íslenska félagsins 10. desember, söng Lúsia,
„drottning ljóssins", ásamt þeraum sínum sálma tíl minningar um
heilaga Lúsíu. Heilagrar Lúsiu er minnst á þennan hátt 13. desember
í Svíþjóð og hafa sænsk ættuð böra haldið þessum sið hér á landi
um árabil.
Sjö verslanir í Kringlunni:
Nýtt greiðslukorta-
tímabil hefst í dag
Hagkaup framlengir greiðslutíma-
bilið í öllum verslunum sínum
SJÖ verslanir í verslunarmiðsöð-
inni Kringlunni hafa ákveðið að
nýtt greiðslukortatímabil taki
gildi frá og með deginum i dag.
Það þýðir, að þeir viðskiptavinir
viðkomandi verslana, sem gera
innkaup sin með greiðslukortum,
fá greiðslufrest fram í febrúar
á næsta ári.
Að sögn Ragnars Atla Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Kringlunnar, hafa verslanimar
Hagkaup, Byggt og búið, Verslunin
17, Steinar Waage, KEB-leikföng,
Stéfanel og Skæði riðið á vaðið
hvað varðar þessa þjónustu og
kvaðst hann búast fastlega við að
fleiri verslanir í Kringlunni myndu
fylgja á eftir. „Ég hef sent öllum
verslunareigendum bréf og tilkjmnt
þeim um ákvörðun þessara sjö
verslana og mér þykir líklegt að
aðrir muni fylgja þessu fordæmi,"
sagði Ragnar Atli.
Að sögn ÞorsteinS Pálssonar,
sölustjóra Hagkaups, gildir framl-
einging greiðslutímabilsins fyrir
allar verslanir Hagkaups. Ennfrem-
ur gildir framleingingin í verslun-
inni Skæði við Laugarveg.
270 atvinnulaus-
ir í nóvember
Atvinnuleysi fjórðungnr þess sem verið
hefur að meðaltali undanfarin fimm ár
SKRÁÐIR atvinnuleysisdagar (
landinu voru 5.800 í nóvember-
mánuði, sem svarar tíl þess að
270 manns hafi að meðaltali ver-
ið á atvinnuleysisskrá, en það
jafngildir 0,2% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði. At-
vinnuleysisdögum hefur þannig
fjölgað um 26% frá októbermán-
uði, en fækkað um 1200 eða 44%
frá þvi í nóvember f fyrra.
Þetta kemur fram í yfirliti um
atvinnuástandið, sem Vinnumála-
skrifstofa félagsmálaráðuneytisins
hefur látið frá sér fara. Þar segir
að breytingin á atvinnuleysinu í
nóvember sé ennþá meiri en þessar
tölur gefa til kynna, því undanfarin
fimm ár hefur að meðaltali verið
um að ræða 20 þúsund atvinnuleys-
isdaga í nóvember og atvinnuleysis-
dagamir nú séu aðeins um
fjórðungur þess.
Þar segir ennfremur að fjölgunin
frá október til nóvember flokkist
undir árlega árstfðasveiflu, sem sé
þó minni nú en jafnan áður, þar sem
að aukninginn tnilli þessara mánuða
hafi að jafnaði verið um 60%.
Drefíng atvinnuleysisins er mjög
mismunadi eftir landshlutum.
Þannig er hlutdeild höfuðborgar-
svæðisins aðeins 9,2%, sem jafn-
gildir því að 25 manns hafi verið
að meðaltali á atvinnuleysisskrá í
mánuðinum.
Atvinnuleysi jókst eftir því sem
á leið nóvembermánuð. Á skrá á
landinu öllu voru 368 manns síðasta
dag mánaðarins, en voru að meðal-
táli eins og fyrr sagði 268 manns.
Silki- og bómullar-
/ /
4-