Morgunblaðið - 12.12.1987, Side 72

Morgunblaðið - 12.12.1987, Side 72
72 MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1987 Ödýr og gðð letkföng Púsluspil fró 79,- tll 195,- Tónllstar bóndabœr 726,- Ferðabfll 357,- Dúkkur fró 494,- tll 1.582,- Köttur 1.023,- Kubbahani 280,- Kerra m. kubbum 714,- Segulkubbar 1.495,- Dúkka f kerru 375,- KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT. ^ ^.$ - 1 -r <#■ A. HÚN STÆKKAR MEÐ ÞÉR. GETUR BYRJAÐ SMÁTT OG SVO... IBM PS/2 Rúnar Þór og ljóð- rænar melódíur Hljómplötur ÁrniJohnsen Rúnar Þór er enn á ferðinni með plötu, ljóðrænn í lögum sínum með markvissan takt en textamir eru svona og svona einir sér. Rúnar Þór er í spjallstíl á plötunni sem ber nafnið Gísli eftir Gísla á Upp- sölum. Hlið A er sérstaklega þægileg og að sumu leyti í Cohen- stíl, en með sérstæðum svip Rúnars Þórs án nokkurs vafa. í fyrstu þremur lögunum eru dæmigerðir spjalltextar, eins og mælt af munni fram út í eilífðina án þess að sterk sannfæring sé að baki, en lögin vega upp losaralegan takt í textum og þar nýtur Rúnar Þór sín til fulls. í textanum um Gísla lætur Rúnar Þór að því liggja að af- skipti manna af Gísla síðustu árin hafi gert honum erfiðara fyrir, en hið sanna er að hjálpsemi ýmissa góðra manna við Gísla, sérstaklega Omars, gerðu honum ævikvöldið léttara og hlýrra. Það er enginn vafi að Gísli hafði betri aðbúnað vegna þess að hann komst í sviðs- ljósið og varð eins konar þjóðar- eign. A hlið A bregður Rúnar Þór sér til Reykjavíkur á eldfjörugri melódíu, sem er eins og sólargeisli í fremur dapurlegum en ljúfum takti pjötunnar og þá má nefna lagið Ástin, texta Jónasar Frið- geirs við lag Rolling Stones. Þetta lag kemur einnig ljómandi vel út í flutningi Rúnars Þórs og félaga. Á hlið B eru hryssingslegir text- ar áberandi, eða daprir, og er einhvem veginn meiri lausung þeim megin á plötunni þótt þeir félagar Megas og Rúnar Þór taki snaggaralega lotu í laginu Ég spyr. Bestu kaflar plötunnar eru mjög góðir en þeir verstu eru ekki aðlað- andi eins og Iögin Kok og Láki. Besti texti Rúnars Þórs er Ertu í takt, þar sem hann skeggræðir um lífið og tilveruna á látlausan hátt og einlægan án þess að vera í neinum stellingum og það er ein- mitt styrkur plötunnar að vera ekki í neinum uppskrúfuðum stell- ingum. Gísli er leikinn af fingrum fram, vinaleg plata af flestu leyti án þess þó að hrópa nokkuð á mann. Rúnar Þór hefur fengið afbragðs hljómlistarmenn til liðs við sig á plötunni eins og gítarleikarana Þorstein Magnússon, Sigurgeir Sigmundsson og Tryggva Hubner, Jón Ólafs og Stefán Ingólfs á bassa, Sigurð Reynisson og Steingrím Guðmundsson á tromm- ur ox, Lárus Grímsson á hljómborð, Sigurð Centaur á munnhörpu og Rúnar Vilbergsson á fagot. Rúnar leikur á gítar hljómborð og syng- ur, en Sveinn Kjartansson stjómaði upptöku. 0 PIOMEER ÚTVÖRP > JÓLAVÖRUHÚS VESTURLANDS eru smavörur, busahöld, leikföng og bækur, tilvalin staður til að finna jólagjöfina. um Vo ; í NAÐARVÖRUDEILDINNI. st jólaföt á alla fjölskylduna ;kar, skór, buxur, jakkar, ir, skor, bu lar, allt þe erki. \ Senn líður að jólum. Samkvæmt okkar dagatali er ekki seinna vænna að hefja jólaundirbúning- inn. Við erum byrjaðir okkar undirbúning. Hann felst í því að safna saman þeim vörum sem ykkur vanhagar um og búa okkur undir heimsókn ykkar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.