Morgunblaðið - 13.12.1987, Qupperneq 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ,-SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
ÍÞRÓTTABÚÐIN
BORGARTÚNI20
SÍMI20011
rl/R0O-U/fi&fi
7/Í7/
THE ULTIMATE POWER PRESSURE WASHER
ÞV07TATÆK/Ð
Alhlida þvottatæki tengt beint vid garðslönguna.
„SOFT-SUDS“ sápubrúsi fylgir hverju tæki.
„TURBO-WAX“ bóni ersprautaö á bílinn með tækinu.
Tilvalið á:
★ bílinn
★ húsið
★ gluggana
★ stéttina og margt fleira.
Tilvalin jólagjöf
immmsii? 1
Varahlutaverslun
Bíldshöfða 18 - Reykjavík - Simi 91-672900
Ólafsvík:
100 ára afmælis
bamafræðslu minnst
ólafsvik.
100 ÁRA afmælis barnafræðslu
í Ólafsvík þ.e. skipulegs sam-
fellds skólahalds var minnst fyrir
nokkru. Hinn rétti afmælisdagur
var 19. nóvember því þann dag
árið 1887 var bamaskólinn stofn-
settur. Árin 1856-1863 var þó
skólahald hér en lagðist af vegna
erfiðs árferðis að talið er. Upp-
hafsmaður skólahalds i Ólafsvik
mun hafa verið danskur verslun-
armaður, Frydenlund að nafni,
en fyrsti skólastjórinn var Jó-
hannes Stefánsson síðar kaup-
maður í Reykjavík.
Afmælishátíðin hófst í Grunn-
skólanum með því að Gunnar
Hjartarsson skólastjóri setti sam-
komuna. Þá léku nemendur á ýmis
hljóðfæri og kirkjukór Ólafsvíkur
söng. Skólastjóri rakti sögu skólans
auk þeirra atriða sögunnar sem
greint er frá hér í upphafi. Kom
fram í máli Gunnars að hin fyrsta
skóladag voru nemendumir 16 tals-
ins, 7-14 ára að aldri, og voru 8
af hvoru kyni. Þessi skóladagur
hófst með inntökuprófi í Kverinu,
Biblíusögum, lestri og skrift.
Jóhannes Stefánsson var eitt ár
við skólann en þá tók við Ágúst
Þórarinsson síðar kaupmaður í
Stykkishólmi. Alls hafa 18 skóla-
stjórar starfað við skólann, lengst
var Jónas Þorvaldsson eða frá 1932
til 1957.
Ávörp fluttu Jenný Guðmunds-
dóttir formaður skólanefndar,
Snorri Þorsteinsson fræðslustjóri
Vesturlandsumdæmis, en hann var
jafnframt fulltrúi menntamálaráð-
herra við þetta tækifæri, einnig
fluttu ávörp Hörður Zophoníasson
fyrrum skólastjóri hér, Kristján
Pálsson bæjarstjóri og Herbert
Hjelm formaður bæjarráðs.
Skólanum bárust margar góðar
gjafir s.s. frá ráðherra, fræðsluráði
og starfsfólki þess, skólum ná-
grannabyggða, fyrirtækjum, ein-
staklingum og eldri árgöngum
nemenda.
Opnuð var sýning í myndum og
máli með kennslugögnum og áhöld-
um frá ýmsum tímum. Einnig var
sýnd handavinna nemenda allt aftur
til 1950 svo og myndlist. Samkom-
unni í grunnskólanum lauk með því
að sóknarpresturinn sr. Friðrik J.
Hjartar flutti bæn og ámaðaróskir.
. Um kvöldið var síðan skemmtun
í félagsheimilinu á Klifi. Þar fluttu
hinar ýmsu bekkjardeildir skólans
skemmtiatriði, hver við sitt hæfí.
Eitt þeirra atriða var leikið og lesið
brot úr skólasögu Ólafsvíkur.
Gladdi marga að þar var m.a. getið
um undirbúningskennslu Kristjönu
heitinnar Einarsdóttur en hún rak
forskóla á heimili sínu í áraraðir
og minnast margir að góðu þeirrar
skólavistar. Fjöldi fólks var á þess-
ari skemmtun sem tókst hið besta.
Núverandi skólastjóri Grunnskóla
Ólafsvíkur er Gunnar Hjartarsson
eins og fyrr greinir. — Helgi.
Bók eftir
Stephen King
FRJÁLST framtak hf. hefur sent
frá sér bókina Eymd eftir banda-
ríska rithöf undinn Stephen King.
í kynningu útgefanda segir m.a.
um efni bókarinnar: „Sagan Eymd
fjallar um rithöfund sem hefur öðl-
ast miklar vinsældir fyrir bóka-
flokk. Hann ákveður að snúa sér
að öðru viðfangsefni en lendir í
bílslysi og verður fyrir alvarlegum
meiðslum. Hjúkrunarkona með
vafasama fortíð tekur hann upp á
arma sína og hefjast þá raunir rit-
höfundarins fyrir alvöru. Hjúkrun-
arkonan skipar honum að vekja
aftur þær söguhetjur sem hann
hafði kastað fyrir róða og staða
höfundarins er þannig að hann á
einskis úrkosta."
Karl Birgisson þýddi bókina. Hún
er 351 bls. og er prentunnin að öllu
leyti í Prentsmiðjunni Odda hf.
Jólatilboð
Borð og fjórir stólar
kr. 37.000,- stgr.
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, sími 82275