Morgunblaðið - 13.12.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
G 15
Sefkofar á Titícacavatni
Foraar „Inkasturtur".
það rígnir aldrei inn í þau. Þetta
fólk þekkir vitaskiild engin þægindi
á okkar mælikvarða. í húsum þess
eru engin húsgögn og konumar
fæða böm sín á gólfínu. Titicaca-
vatn er mjög tært og fólkið lifir á
fískveiðum og notar við þær veiðar
báta úr þurrkuðu sefi. Siðan notar
það fiskinn til vöruskipta, fær fyrir
hann helstu nauðsynjar upp á landi.
Þær nauðsynjar em þó ekki marg-
brotnar því fæði þeirra er mjög
einfalt, bömin fá t.d. enga mjólk
þegar móðurmjólkinni sleppir. Þess-
ar eyjar em mjög litlar og þær dúa
þegar maður gengur á þeim. Þegar
íbúar þeirra deyja er vitaskuld ekki
hægt að grafa þá heldur er siglt í
land með líkin og þau grafin þar.
Það er merkilegt að þetta frum-
stæða fólk hefur komið sér upp
bamaskóla á einni eynni og inni í
honum eru einu húsgögn eyjanna.
Eyjamar em líka greinilega óhent-
ugar fyrir húsgögn því ég sá að
stól- og borðfætur vom I mörgum
tilvikum alveg sokknar ofan í sefið.
Frá Puno var ferðinni heitið aftur
til Lima. Þangað var áætlað að
koma á hádegi en margra tíma sein-
kun á flugvélinni orsakaði það að
við vomm ekki komin til Lima fyrr
en klukkan sjö að kvöldi. Þrátt fyr-
ir það tókst okkur að fara í
skoðunarferð um borgina um kvöld-
ið. Lima er rétt eins og hver önnur
stórborg. í henni em margar fagrar
byggingar, flestar I spönskum stíl
því Spánveijar byggðu Lima eftir
að þeir lögðu Perú undir sig. Morg-
uninn eftir fómni við til Iquitos sem
er 300 þúsund manna borg við
Amasonfljótið. Þessi borg og fleiri
borgir við Amasonfljót byggðust
upp mjög hratt og beinlínis vegna
þess að gúmmíplantan var upp-
götvuð. Þá uxu þessar plöntur
hvergi annars staðar og þeir sem
uppgötvuðu þær urðu milljónerar
nánast á einni nóttu, svo mikið var
ríkidæmið að þeir fluttu inn heilu
húsin og hallimar frá Evrópu. Lengi
vel höfðu menn einokun á gúmmí-
markaðinum, en svo hmndi þetta
allt saman þegar Breti einn smy-
glaði fæum gúmmítrésins úr landi.
Fræin vom svo gróðursett m.a. í
Asíu og þar með var einokuninni
aflétt.
Til Iquitos er ekki hægt að kom-
ast nema sigla á skipi eða með
flugi. Við fómm fljúgandi. Þar var
tekið á móti okkur og farið með
okkur í smábát og siglt á Amason-
fljóti að þeim stað sem okkur var
ætlað að gista í tvær nætur. Húsa-
kynnin sem við bjuggum í vom
svipuð þeim sem Indíánamir sjálfir
búa í, að viðbættum smá þægindum
sem við nutum, en þeir hafa ekki,
svo sem salemi og rennandi vatn.
Það er mjög ódýrt og einfalt að
byggja þama því nánast allur efni-
viður fæst í skóginum. Þakið er
fléttað úr laufum pálmatijáa og tré
og tijágreinar em söguð niður og
notuð til húsbyggingarinnar og til
að smíða úr húsgögn.
Við fórum í margar skoðunar-
ferðir um fmmskóginn, bæði til
þess að skoða dýralífið og plönturík-
ið sem er mjög fjölskrúðugt. Einriig
fengum við tækifæri til þess að
heimsækja Indíánaþjóðflokk sem
enn býr við mjög fmmstæðar að-
stæður. í skóginum em um fimmtíu
ættbálkar en eftir því sem siðmenn-
ingin þrengir að þeim því lengra
hörfa þeir inn í skóginn, því sið-
menninguna vilja þeir ekkert hafa
með að gera. Fólkið sem býr við
fljótsbakkana virðist búa við betri
kjör en fólkið í Andesflöllum, því í
frumskóginum vaxa ávextimir villt-.
ir, nóg er þar af vatni og fiski, og
þeir hafa hitann.
þegar litið er til baka þá finnst
mér þessi ferð hafa verið alveg stór-
kostleg. Þó að við sæjum margt
dapurt, þvi kjör fólksins em yfir-
leitt mjög slæm, þá sáum við iíka
ýmislegt merkilegt, því landið á sér
svo merkilega sögu. Þar sem við
fómm ansi víða fengum við tæki-
færi tii að sjá mannlífið í mismun-
andi mynd sem gerir svona ferð svo
eftirminnilega og hefur mildl áhrif
og verður til þess að maður kann
enn betur að meta þau kjör sem
við búum við hér á Islandi. Kjömm
manna þama er afar misskipt, það
er annarsvegar mikið rfkidæmi og
hinsvegar mikil fátækt Lífsgæða-
kapphlaupið hefur að sjálfsögðu
ekki náð til almúgafólks í Perú,
takmark þess er fyrst og fremst
það að halda í sér lffí. 1 dag rfkir
mikil óvissa f landinu, því nú er
verið að bijóta niður hið mikla veldi
fáeinna ætta sem nánast hafa ráðið
ferðinni varðandi efnahag landsins.
T. d. höfðu, stuttu áður en við kom-
um til landsins, allir einkabankar
verið þjóðnýttir og kostaði það ein-
hveijar óeirðir í Lima. Mikil verð-
bólga er f landinu og mikil
eAirspum er eftir Bandaríkjadölum
á svörtum markaði. Gengið hækk-
aði um 30 prósent þá ellefu daga
sem við vomm f landinu. Það er
mjög ódýrt að ferðast í Perú t.d.
kostar góð máltfð á þokkalegum
veitingastað aðeins um 40 krónur.
Fólkið er velviljað, en hafa verður
í huga þegar maður er að ferðast
um í landi sem þessu, þar sem
nútíma menning er skammt á veg
komin, að maður verður að aðlag-
ast þeirra siðum og reglum, þó
margt sé ólíkt þvf sem við eigum
að venjast. Fyrir þá sem gaman
hafa af því að fara á framandi slóð-
ir og ég tala nú ekki um þá sem
stunda fjallgöngur þá er þetta land
algjör paradís."
TEXTI:
GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
#CITIZEN
Jólagjöf tölvueigandans!
CITIZEN LSP-10 hefur verið eixm,
mest seldi prentarinn hérlendis undan-
farin ár og ekki að ástæðulausu.
Nú bætir CITIZEN um betur,
með LSP-100, meiri íjölhæfni og
afköst en áður. Mesti prenthraði
er 175 stafir á sekúndu, 30 stafir
á sekúndu í spariletri (NLQ).
Stafastærðir eru firá 5 stöfum á
tommu upp í 20, hægt er að
hafa stafi í tvöfaldri hæð fyrir
fyrirsagnir. CITIZEN LSP-
100 er einnig gerður til að endast, verksmiðjuábyrgð í tvö ár,
tvöfalt lengri en hjá öðrum! CITIZEN LSP-100 hentar öllum
tölvum, sérstaklega PC og AT samhæfðum.
Tölvueigandinn fær hér sérstaklega Qölhæfan prentara sem
hentar einstaklega vel sem einkaprentari á skrifstofuna eða heim.
Atvinnumenn treysta CITIZEN prenturum. Þú getur treyst því
að tölvueigandinn verður hæstánægður með LSP-100.
MICROTOLVAN
Síöumúla 8 - 108 Reykjavík - sími (91)-Ú88944
FROTTE-
SLOPPAR
stuttir-síðir
16 gerðir
Verð frá 1.990.-
lympil
Laugavegi 26. «. 13300 - Gianubae. «. 31300
Eigum ennþá fjölbreytt úrval heimilistækja
frá ARISTON, t.d.:
Kæliskápar.
Tegund Lítr. Hæð sm
KS-140 140 85
DF-230 230 139
DF-280 280 160
DF-330 330 170
Þvottavél.
AR-870 85
Hellur/bökunarofnar
4ra hellna, stál Kr.9.170,-
4ra hellna, ceramic Kr. 29.350,-
4ra hellna, ceramic Kr. 30.260,-
Bökunarofnar, blástursofn Kr. 20.925,-
Bökunarofnar, blástursofn Kr. 26.560,-
Br. sm Dýpt sm Verð m/söl- usk.
50 56 Kr. 18.480,-
55 60 Kr. 28.075,-
55 60 Kr. 28.590,-
55 60 Kr. 30.670,-
60 55 Kr. 31.900,-
Gufugleypar
Gufugleypir, útdreginn Kr. 9.425,-
Gufugleypir Kr. 7.435,-
Kjölursf.
Hverfisgata 37, símar 21490 og 21846.
Keflavík: Víkurbraut 13,92-2121.