Morgunblaðið - 13.12.1987, Blaðsíða 56
56 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
Sigrún Oddsdóttir formaður kvenfélagsins Gefnar í ræðustól.
Mikið fjöhnenni var á afmælishátíðinni.
Morgunblaðið/Amór Ragnarsson
t\ý m v v ,•
l * —31111 r" B 83k '% Ém W ' , ^
Kvenfélagið Gefn í Garði 70 ára:
Stunduðu leiklist og lánuðu
til vegagerðar fyrr á árum
G&rði.
Kvenfélagið Gefn hélt glæsilega afmælishátíð í Samkomuhús-
inu i Garði sl. miðvikudagskvöld í tilefni 70 ára afmælis félagsins
en Kvenfélagið var stofnað 9. desember 1917. Voru þar saman
komin um 130 manns, en auk kvenfélagskvenna voru gestir frá
flestum starfandi félögum innan Garðsins, sveitarstjóri og hrepps-
nefndarfulltrúar, fjöldi kvenna innan Kvenfélagasambands
Gullbringu- og Kjósarsýslu auk ýmissa veiunnara félagsins gegn-
um tíðina.
Hátíðin hófst með matarveizlu
þar sem konumar höfðu sjálfar
útbúið matinn, glæsilegt hlaðborð
með heitum og köldum mat. Þá
flutti BjöUukórinn nokkur lög.
Að málsverði loknum tók Sigr-
ún Oddsdóttir formaður félagsins
til máls og rakti sögu félagsins í
stórum dráttum og kom hún viða
við.
Frá upphafí hefir Útskálakirkja
verið óskabam félagsins og em
gjafimar til kirkjunnar óteljandi.
Jólatrésfagnaði fyrir yngri kyn-
slóðina hefír félagið haldið frá
upphafi og voru þeir ókeypis fyrir
bömin til ársins 1976 að breyttur
tíðarandi krafðist þess að selja
þyrfti aðgang að skemmtununum.
Sigrún minntist einnig á leiksýn-
ingar sem félagið gekkst fyrir frá
1919 og fyrirlestrahald sem var
stór liður í starfsemi félagsins í
áratugi. Komu þar margir merkir
menn fram, bæði skáld og
skemmtikraftar. Þá nefndi Sigrún
að 1922 lánaði félagið 1000 krón-
ur til vegagerðar þannig að sjá
má að það var fátt sem kvenfélag-
inu var óviðkomandi. Stærsta
verkefni hin síðari ár var bygging
leikskóla. Sú ákvörðun var tekin
vorið 1968 og um haustið sama
ár var leikskólinn fokheldur. Það
var semsé ekkert verið að tvínóna
við hlutina í þá daga.
Sigrún Oddsdóttir sagði að það
hefði alltaf verið mikil lífsgleði
og bjartsýni ríkjandi hjá kvenfé-
lagskonum. Hér á árum áður
þegar samgöngur voru með öðr-
um hætti en nú myndi hún t.d.
eftir því að þegar mikið stóð til í
Samkomuhúsinu hefðu kvenfé-
lagskonur safnað saman bolla-
stelli út um allan Garð og borið
niður í Samkomuhús í þvottaböl-
um, oft í rysjóttu veðri. Þá gat
Sigrún þess að allar fundargerð-
arbækur félagsins væru til frá
upphafi að einu ári undanskildu
og vitnaði Sigrún oft í þær í tölu
sinni. Félagsfundir í kvenfélaginu
Gefn eru orðnir um 550 frá upp-
hafí og eru þá nefndarfundir
ótaldir en þeir skipta sjálfsagt
þúsundum.
Næst á dagskrá afmælishátí-
ðarinnar var einsöngur Hrafn-
hildar Guðmundsdóttur við
undirleik David Knowles, en
Hrafnhildur er dóttir sr. Guð-
mundar Guðmundssonar fyrrver-
andi sóknarprests í Utskálasókn
og konu hans frú Steinvarar Kri-
stófersdóttur. Þá voru þijár konur
gerðar að heiðursfélögum í Gefn,
Anna Sumarliðadóttir, Anna Vig-
fúsdóttir og Guðríður Sigurðar-
dóttir. Reyndar urðu heiðursfélag-
amir §órir því varaformaður
félagsins og stjóm fóru á bak við
formanninn og gerðu hann að
heiðursfélaga!
Sigrún kom nú í ræðustól og
tilkynnti að kvenfélagið væri
þessa dagana að fá peninga út
úr leikskólanum Gefnarborg sem
þær seldu hreppnum í fyrra og
væri ekki seinna vænna að eyða
þeim en það hafí verið stefna fé-
lagsins frá upphafi að safna ekki
peningum og hefði félagið reyndar
aldrei átt peninga. Stjóm félags-
ins hefði ákveðið að gefa 500
þúsund krónur til Útskálakirkju,
leikskólans og Gerðaskóla auk
ýmissa styrktar- og líknarfélaga.
Þá færði Sigrún þremur velunnur-
um félagsins gjafír, Jóni Haralds-
syni, Jónínu Guðmundsdóttur og
Amóri Ragnarssyni.
Félaginu bárast margar góðar
gjafir á afmælinu og komu eftir-
taldir aðilar í ræðustól af þessu
tilefni: Ólöf Guðnadóttir kvenfé-
lagasambandi Gullbringu- og
Kjósarsýslu, Margrét Sigurðar-
dóttir kvenfélagi Lágafellssóknar,
Sigríður Ingibergsdóttir kvenfé-
laginu Hvöt í Miðneshreppi, Bima
Sófusdóttir kvenfélagi Keflavíkur,
Guðný Bjamadóttir kvenfélagi
Bessastaðahrepps, Rebekka Guð-
finnsdóttir kvenfélagi Njarðvíkur,
Hallveig Amadóttir kvenfélaginu
Fjólu ■Vatnsleysuströnd, Guðrún
Sveinbjamardóttir slysavamar-
deild kvenna og f.h. björgunar-
sveitarinnar Ægis í Garði, Þómý
Jóhannsdóttir Litla leikfélaginu,
Björk Gránz Tónlistarfélagi
Gerðahrepps, Garðar Steinþórs-
son kiwanisklúbbnum Hof,
Guðveig S. Sigurðardóttir kvenfé-
lagi Grindavíkur, Ema Kristinsd.
Kolbeins Kvenfélaginu Seltjöm
Seltjamamesi.Guðríður Jónsdótt-
,ir kvenfélagi Garðabæjar, Asdís
Káradóttir eiginkona Sigurbergs
H. Þorleifssonar fyrram vitavarð-
ar á Garðskagavita, Jón Hjálm-
arsson formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Gerðahrepps,
Richard Woodhead lionsklúbbnum
Garður.Sigurður Ingvarsson
formaður knattspymufélagsins
Víðis, Jóhann Jónsson annar karl-
heiðursfélagi Geftiar sem sendi
konunum.kveðju í stöku-formi.
Einnig má geta þess að kvenfé-
laginu barst ræðupúlt að gjöf frá
stúkunum Siðsemd og Framfor
hannað af Þorvaldi Kjartanssyni.
Þá kom sveitarstjóri Gerða-
hrepps Ellert Eiríksson í ræðustól
og hafði hann meðferðis afsal og
kaupsamning fyrir leikskólann
sem stjóm Gefnar skrifaði undir
í 130 votta viðurvist. Hann af-
henti konunum skuldabréf að
núvirði kr. 1,8 milljónir og gat
þess í leiðinni að þetta væri ekki
slakari eign en gull í Englands-
banka.
Finnbogi Bjömsson oddviti
Gerðahrepps þakkaði konunum
fyrir samstarfið á undanfömum
áram en gat þess i leiðinni að
honum litist svöna mátulega vel
á samstarfið í ffamtíðinni ef héldi
fram sem horfði. Hann hefði ætl-
að að halda hefðbundinn hrepps-
nefndarfund í samkomuhúsinu þá
um daginn en svarið hefði verið
eitthvað á þessa leið: Það er ekki
rúm fyrir ykkur hér í dag...
Samkomunni lauk með því að
konumar skemmtu gestum með
dans og leikþætti þar sem þær
gerðu óspart grín að sjálfum sér.
í kvenfélaginu Gefn er nú 61
kona.
— Amór
Frá undirskrift afsals á leikskólanum. Talið frá vinstri: Ellert
Eiríksson sveitarstjóri, Sigrún Oddsdóttir, Kristín Guðmunds-
dóttir og Guðrún Eyvindsdóttir.
Þrír af heiðursfélögum kvenfélagsins, Anna Sumarliðadóttir,
Anna Vigfúsdóttir og Sigrún Oddsdóttir.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fjölskyldudeild.
FÓSTURHEIMILI
Fósturheimili óskast fyrir 8 ára dreng.
Nánari upplýsingar gefur Aslaug Ólafsdóttir fé-
lagsráðgjafi í síma 685911 e.h. alla virka daga.
0,D pioimeer
HUOMTÆKI
GEYMIÐ
I BÆKLINGINN
1 1877 ÍSAFOLD 1987