Morgunblaðið - 13.12.1987, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1987
C 61
vampíran inni í skápnum.
Móðirin hrökk í kút. „Rauða saft
á ég ekki til,“ sagði hún, „en app-
elsín."
„Appelsín — oj,“ hvæsti vampíran.
„Jæja, þá það,“ sagði móðirin
móðguð, „ég ætla alla vega að hita
te.“ Og með það staulaðist hún út
úr herberginu.
Hún var varla komin úr augsýn
þegar Runólfur skjögraði út úr
skápnum. Hann náði varla andanum
og var enn fölari en venjulega og
tennumar glömmðu hræðilega í
munninum.
„Hvað eigum við nú að gera?“
spurði Anton og gekk taugaóstyrkur
fram og aftur. „Ég flýg!“ sagði
vampíran með jarðarfararsvip.
„Þú getur ekki bmgðist mér
núna,“ sagði Anton.
„Hvað á ég að segja mömmu þeg-
ar hún spyr hvar þú sért?“
„Segðu henni...“ byijaði vampír-
an, en í því heyrðu þeir fótatak
móðurinnar frammi á ganginum.
„Emð þið að koma?“ kallaði hún.
Án þess að segja orð hóf vampíran
sig til flugs og sveif á braut.
„Hvar er vinur þinn?“ spurði móð-
irin undrandi í dymnum.
„Hann, emm“, sagði Anton, Ja,
hann fór á grímuball."
„Á grímuball," hváði móðirin
undrandi. „Um hásumar?"
„Og hvað með það?“ tautaði An-
ton.
Móðirin leit efins á hann. „Þú átt
svei mér undarlega vini,“ sagði hún.
„Hvað áttu við með vini,“ mmdi
í Antoni, „þetta var bara einn.“
„Mjög sérstæður vinur!“ sagði
móðirin hlæjandi. „Vonandi verður
hann ekki inni í skáp þegar ég hitti
hann næst! Undarlegt að ég skyldi
ekki taka eftir þegar hann fór.
„Hann er mjög tillitssamur," sagði
Anton. Úff, hugsaði hann, nú spyr
hún ömgglega af hveiju hann hafi
ekki hringt bjöllunni þegar hann
kom. Og hvað segi ég þá? En til allr-
ar hamingju hringdi mínútuklukkan
í eldhúsinu.
„Ó,“ hrópaði móðirin, „teið er til-
búið. Ætlarðu ekki að koma koma
fram?“
Anton kinkaði kolli.
Ágætt," sagði hún, „en gleymdu
ekki að loka glugganum. Annars
gætu komið mölflugur inn í herberg-
ið.“
„Eða vampímr," sagði Anton en
það heyrði móðir hans ekki. Anton
gekk að glugganum dapur í bragði.
Svona endaði þá þessi laugardagur
sem hann var búinn að hlakka svo
mikið til. Nú jæja, kannski tekst
betur til f næstu viku. Hann lokaði
glugganum og dró gluggatjöldin fyr-
ir.
„Ég er að koma,“ kallaði hann,
„ég kem með lúdóið!"
Á meðan þau dmkku teið spurði
móðirin: „í hvemig búningi var hann,
þessi vinur þinn?“
„Æi, hann héma...“ muldraði
Anton og ræskti sig vel og lengi,
„það er að segja...“ ætti hann að
segja sannleikann? Móðir hans myndi
hvort eð er ekki trúa honum.,
Hún fór að hlæja. „Er svona erfitt
að útskýra það?“
„Já, að vissu leyti," sagði Anton,
„hann var — vampíra!"
„Vampíra?" hrópaði móðirin og
hló hjartanlega. „Þvílík synd að ég
skyldi ekki fá að sjá hann.“
„Hann á ömgglega oft eftir að
vera í þessum búningi," sagði Anton
til að hughreysta hana. Svo bætti
hann kæmleysislega við: „Hann er
reyndar næstum alltaf í honum."
Móðirin trúði náttúmlega ekki
einu orði. Hún hló bara enn hærra
og sagði: „Anton, þú lest allt of mik-
ið af hryllingssögum! Nú vantar bara
að þú segir mér að hann hafi ekki
gengið út um dymar heldur flogið
út um gluggann!"
„Nú fyrst þú veist þetta hvort eð
er,“ sagði Anton móðgaður. Full-
orðna fólkið þóttist alltaf vita allt.
„Anton minn,“ sagði móðirin sátt-
fús, „við ætlum þó ekki að fara að
rífast um vampímr! Nú verður spilað
lúdó, sammála?"
„Já,“ muldraði Anton. Eins og
hann hafi eitthvað ætlað að fara að
rífast um vampímr? Hann andvarp-
aði og stillti spilabrettinu upp,
úthlutaði p>eðunum og ýtti teningum
yfir til móður sinnar. „Þú átt að
byrja."
„Af hveiju ég?“
„Sá lélegri á alltaf að byija."
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag' Reyðar-
fjarðar/Eskifjarðar
Að loknum fjómm kvöldum af
fímm í aðaltvímenningi félagsins,
er staða efstu para orðin þessi:
Ásgeir Metúsalemsson —
Friðjón Vigfússon 971
Sigurður Freysson —
Einar Sigurðsson 946
Ámi Guðmundsson —
Gísli Stefánsson 910
Aðalsteinn Jónsson —
Sölvi Sigurðsson 903
Bemharð Bogason —
Pétur Sigurðsson 893
Búi Birgisson —
Haukur Bjömsson 885
Guðmundur Magnússon —
Jónas Jónsson 852
Kristján Kristjánsson —
Jóhann Þorsteinsson 841
Bridsféiag Kópavogs
Barómeterkeppni félagsins er
lokið. 30 pör tóku þátt í henni og
var keppnin mjög spennandi allt til
loka og munur á efstu pömm lítill.
Úrslit urðu þessi:
Úlfar Friðriksson —
Þröstur Ingimarsson 287
Ragnar Bjömsson —
Helgi Viborg 256
Bemharður Guðmundsson —
Ingólfur Böðvarsson 252
Óli M. Andreasson —
Vilhjálmur Sigurðsson 236
Magnús Asperlund —
Steingrímur Jónasson 229
Haukur Hannesson —
Guðrún Hinriksdóttir 212
Sigrún Pétursdóttir —
Gunnþómnn Erlingsdóttir 192
Næsta fimmtudagskvöld er
síðasta spilakvöld fyrir jól, þá verð-
ur slegið á létta strengi og verðlaun
verða veitt fyrir keppnir haustsins.
Á fyrsta spilakvöldi eftir áramót
verður spilaður eins kvölds
tvímenningur. Síðan hefst sveita-
keppni vetrarins. Verður hún með
öðm sniði en venjulega. Allir spila
sömu spilin sem verða tölvugefin,
einnig verður keppnin reiknuð út
sem tvímenningur og verðlaun veitt
fyrir hæsta skor.
Bridsfélag
Hornafjarðar
ÚRSLIT í Vísismóti, 3ja kvölda
barómetertvímenningi:
Guðbrandur Jóhannsson/Ingi Aðal-
steins. (Ingvar Þórðarson) 65
Öm Ragnarsson
— Ragnar Snjólfsson 52,5
Jón Sveinsson
— Ámi Stefánsson 51
Sigfinnur Gunnarsson
— Bjöm Gíslason 40
Ragnar Bjömsson
— Birgir Bjömsson 28,5
Staðan eftir fyrstu umferð í
Garðeyjarmótinu, hraðsveita-
keppni:
Guðbrands Jóhanns. 527
Gests Halldórsssonar 458
Ragnars Snjólfssonar 439
Jóns Sveinssonar 422
Svövu Gunnarsdóttur 399
Bridsfélag Akureyrar
Akureyrarmótið í sveitakeppni
er nú hálfnað. Alls taka 14 sveitir
þátt í keppninni og em spilaðar 32
spila leikir.
Staðan:
Hellusteypan 143
Kristján Guðjónsson 139
Stefán Vilhjálmsson 127
Grettir Frímannsson 126
Zarioh Hamadi 120
Næsta umferð og síðasta fyrir
jól verður spiluð nk. þriðjudags-
kvöld í Félagsborg. Keppnin heldur
svo áfram á nýja árinu. Milli jóla
og nýárs (27. des.) verður svo jóla-
tvímenningurinn spilaður í Vín.
DAGSKRA KVOLDSINS
Húsið opnað kl. 19 með fordrykk.
Glæsilegur fjórréttaður kvöldverður
ásamt drykkjarföngum með mat.
Hótel Saga og hin harðsnúna poppflugsveit
Suðurnesja tilkynna brottför flugs SAG 66 til Dægurlanda.
Velklæddir og eldhressir farþegar með brottfararspjald á SAGA-
CLASS gjöri svo vel að ganga um borð 1. janúar. Flugstjórar
íferðinni verða Maggi Kjartans, Rúnar Júl., Jóhann Helga.,
Hljómar, Júdas, Anna Vilhjálmsdóttir, Einar Júlíusson, Pálmi
Gunnarsson og fleiri réttindalausir áhugaflugmenn. Flogið verð
ur í öruggri hæð og millilent á Mímisbar.
Munið að hafa góða skapið og hláturinn í handfarangri, þvítil
þess þarf oft að grípa meðan flogið er.
Hótel Saga og Gildi hf. óska ykkur góðrarferðar, ánægjulegrar
dvalar í Dægurlandi og spennandi heimkomu.
Kynnir kvöldsins verður Hemmi Gunn.
Verð miða kr
7.300.-
LUXUS-
fT ILBOÐ
. °"nm n?ars9estum býðst
Forsala aðgöngumiða er
alla virka daga frá kl. 9-17
í síma 29900, söludeild. .
Hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur fyr-
ir trylltum dansi fram á
rauða nótt.
álmuhótelsinsfy^Xns^
/ 50 kr. a mann. Miðaðvið
berg?9^ ' *Ve99ja manna her'
GILDIHF
tíl ckeycvdcwdei