Morgunblaðið - 25.02.1988, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1988
Keflavík:
Albert Ólafsson
KE aflahæstur
Keflavík.
AFLI var fremur tregur síðustu
viku, sérstaklega hjá netabátun-
um, en línubátarnir sem róa með
tvöfalda setningu fengu sæmi-
legan afla. Albert Ólafsson KE
var aflhæstur með 37,3 tonn í
þremur róðrum, Búrfeíl KE var
með 33,9 tonn í þremur róðrum
og Eldeyjar-Boði KE var með
30,6 tonn í tveimur róðrum.
Skagaröst KE var aflahæsti
netabáturinn. með 34,4 tonn, en
aðrir voru með mun minna. Stafnes
KE var með 18,5 tonn og Happa-
sæll KE var með 15,7 tonn. Þuríður
Halldórsdóttir er á útilegu og land-
ar afla sínum einu sinni í viku og
var aflinn í síðustu viku 17 tonn.
Lítill friður var hjá dragnótabát-
unum og aflinn i samræmi við það,
Farsæll GK var með 18,6 tonn í 5
róðrum og Amar KE var með 13
tonn einnig í 5 róðrum. Nokkrir
Sandgerðidsbátar komu til
Keflavíkur til löndunar þar sem
þeir voru í landi þegar fjara var og
gátu því ekki siglt inn rennuna í
innsiglingunni til Sandgerðis.
- BB
Kannanir Skáís fyrir Stöð 2:
Rúmlega helming-
ur landsmanna vill
Frá vígsluathöfn Klébergsskóla.
Nýtt skólahús tekið í
notkun á Kjalarnesi
bjór og ráðhús
fengust í í könnun sem Skáís
gerði fyrir Stöð 2, þriðjudaginn
2. febrúar síðastliðinn. .
Könnunin náði til 714 einstakl-
inga 18 ára og eldri. Stærð úrtaks-
ins var ákveðin í réttu hlutfalli við
fjölda íbúa 18 ára og eldri í
Reykjavík, á Reykjanesi og á lands-
byggðinni. Spurt var hvort menn
væru með eða á móti bjórfrum-
varpinu og í framhaldi af því hvort
menn væru með eða á móti bygg-
ingu ráðhúss í Reykjavík. Þeir sem
sögðust fylgjandi byggingu ráðhúss
voru þá spurðir hvort þeir væm
með eða á móti byggingu ráðhúss
við 'Ijömina.
Eins og áður segir vora 52,4%
með bjórframvarpinu en 59,5%
þeirra sem tóku afstöðu. Á móti
voru 35,7%, 40,5% þeirra sem af-
stöðu tóku. Hlutlausir vora 11,9%.
Afstöðu tóku 88,1%.
54,2% aðspurðra vora fylgjandi
byggingu ráðhúss, 68,5% þeirra
sem afstöðu tóku. Á móti vora
24,9%, 31,5% þeirra sem tóku af-
stöðu. Hlutlaustir reyndust 20,9%.
Afstöðu tóku 79,1%.
Af þeim 54,2% sem vildu ráðhús,
voru 60,5% fylgjandi byggingu þess
við Tjömina, 63,1% sem afstöðu
tóku. 35,4% þeirra sem vildu ráð-
hús, vildu ekki að það yrði staðsett
við Tjörnina, 35,9% sem tóku af-
stöðu. Hlutlausir reyndust 4,1%.
95,9% tóku afstöðu.
RUMLEGA helmingur lands-
manna (52,4%) er fylgjandi bjór-
frumvarpinu sem lagt hefur ver-
ið fram. Svipaður fjöldi, (54,2%)
er með byggingu ráðhúss í
Reykjavík og af þeim sem af-
stöðu taka með ráðhúsi, vill
60,5% að það verði reist við
Tjömina. Þessar niðurstöður
Kjalnesingar og Kjósverjar
tóku i notkun fyrsta áfanga nýrr-
ar grunnskólabyggingar að Klé-
bergi á Kjalarnesi á laugardag-
inn. Var það gert við hátíðlega
athöfn að viðstöddum m.a. þing-
mönnum kjördæmisins ásamt
ráðhermm mennta- og sam-
göngumála.
Húsið er byggt í samstarfi Kjal-
ameshrepps, Kjósarhrepps og ríkis-
ins. Þetta nýja hús bætir úr brýnni
þörf þessara byggðarlaga fyrir að-
stöðu til skólahalds, að sögn Péturs
Þórðarsonar sveitarstjóra Kjalar-
neshrepps. Gamla skólahúsið að
Klébergi var byggt árið 1928 og
þá gert ráð fyrir 20 nemendum.
Nú era nemendur 90 og verða
næsta ár um 110 í öllum bekkjum
grunnskólans.
Nýja húsið verður alls 800 fer-
metrar, þessi fyrsti áfangi er 500
fermetrar, síðar er gert ráð fyrir
allt að helmings stækkun hússins.
Með tilkomu nýja hússins þarf ekki
lengur að aka nemendum efstu
bekkjanna í skóla til Mosfellsbæjar,
eins og verið hefur.
Við athöfnina fluttu ávörp Jón
Ólafsson oddviti Kjalameshrepps,
Pétur Þórðarson sveitarstjóri Kjal-
ameshrepps, Birgir Isleifur Gunn-
arsson menntamálaráðherra,
Magnús Sæmundsson oddviti Kjós-
arhrepps og Matthías A. Matthiesen
samgöngumálaráðherra. Kristín
Ámadóttir, skólastjóri Klébergs-
skóla veitti húsinu viðtöku og flutti
ávarp. Þá var kynnt í máli og mynd-
um vinna nemenda, sem höfðu unn-
ið þemaverkefni næstu viku á und-
an. Þemað var bókmenntir og listir
og gerðu gestir góðan róm að kynn-
ingunni, að sögn Péturs Þórðarson-
ar.
Hönnuðir hússins era Haukur
yiktorsson arkitekt og Ásmundur
Ásmundsson verkfræðingur. Aðal-
verktaki við bygginguna var Loft-
orka hf, Borgamesi. Húsið er byggt
úr steinsteyptum einingum frá Loft-
orku hf.
Klébergsskóli mun . síðan verða
skreyttur listaverkum og verður hið
fyrsta frá gleriðjunni Gler í Bergvík,
■sem er í næsta nágrenni við skól-
ann.
Framkvæmdir hófust 15. maí
1987 og kostnaður er nú kominn í
U.þ.b. 17,5 milljónir króna, sem er
innan kostnaðaráætlunar segir Pét-
ur Þórðarson sveitarstjóri Kjalar-
neshrepps.
Kór skólans söng við athöfnina undir stjórn tónmenntakennarans, Pálínu Skúladóttur.
.
Bandarískur hárgreiðslumeist-
ari sýnir o g heldur námskeið
GARY Bray, bandarískur hár-
greiðslumeistari, mun dveljast
hér á landi, dagana 27. febrúar
til 1. mars. Hann kemur i boði
Hárgreiðslumeistarafélags ís-
lands og heldur námskeið og
sýningu á vegum félagsins. Sýn-
ingin verður á Hótel Borg,
sunnudaginn 28. febrúar ki. 14
til 17 og er eingöngu ætluð
meðlimum félagsins og gestum
þeirra. Oll módelin verða í fatn-
aði frá Karakter og Flónni.
Gary hefur starfað sem hár-
greiðslumeistari í 20 ár -og hefur
á þeim tíma starfað að öllum
greinum hárgreiðslu og áunnið sér
viðurkenningu fyrir vel unnin
störf, segir í frétt frá Hárgreiðslu-
meistarafélaginu. Hann erþekktur
sem kenrvari og rithöfundur. Hann
Hárgreiðslumeistarinn Gary
Bray, sem kemur til landsins i
lok mánaðarins.
og kona hans, Ann, hafa margoft
þjálfað keppendur í heimsmeist-
arakeppnum, auk annara stórra
keppna, auk þess sem þau hafa
sjálf keppt. Gary mun einnig hafa
áunnið sér gott orð sem kaupsýslu-
maður og var útnefndur besti
framkvæmdastjóri lítils fyrirtækis
árið 1987.
Hann kom hingað til lands í
nóvember síðastliðnum og dæmdi
í Norðurlandakeppninni í hár-
greiðslu.
INNLENT.