Morgunblaðið - 05.03.1988, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988
Stjörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
NámskeiÖ
í dag ætla ég að halda áfram
með námskeiðið í stjömu-
speki. Undanfama tvo laugar-
daga hefur birst listi yfir lykil-
orð pláneta, en í dag hefst
umQöllun um einstakar plán-
etur. Sólin er fyrst á dagskrá.
Sólin
Þegar þú segir að þú sért í
Hrútsmerkinu eða Tvíburan-
um ert þú í raun að segja að
Sólin hafí verið ( þessu merki
þegar þú fæddist. Þú ert að
segja að grunneðli þitt, vilji
og lífsorka taki mið af þessu
merki. Auk þessara þátta er
sagt að Sólin sé táknræn fyrir
sjálf okkar, ég-ið, meðvitund
og sjálfstjáningu. Sólin er
stjómandi Ljónsins, en það
merki þykir hafa eiginleika
Sólarinnar sterkt í fari sínu.
Konur
Sólin er lífsorkan og er því
gerandi afl, samsvarar t.d.
yang í kínverskri heimspeki.
Hún er því uppspretta hreyf-
ingar, lífs og athafna. Sagt
er síðan að hún sé hið „karl-
mannlega" eða gerandi í mót-
stöðu við hinn „kvenlega" eða
þolandi og móttækilegan yin-
þátt lífsins. Þegar hin hefð-
bundna kynjaskipting ræður
rikjum segir Sólin til um það
i korti konu hvemig manni
hún laðast að. Það er eðlilegt
þvi þegar kona er bundin af
heimili og baraauppeldi fær
hún að töluverðu leyti útrás
fyrir framkvæmdaþörf sína í
gegnum manninn sinn. Kona
sem hefur Sól í Hrútsmerki
eða Bogmanni og er bundin
yfír heimili ætti i ofanálag
erfitt með að þola rólegan og
hreyfingarlítinn karlmann.
Hvað varðar siðari ár og
kvennahreyfínguna má segja
að þar segi konur „Ég vil
vera mín Sól sjálf. “
SterkSól
Eins og gefur að skilja getur
Sólin verið mismunandi sterk
i kortum fólks. Segja má að
hún sé sterk ef hún er Rísandi,
í fyrsta húsi eða á Miðhimni,
f 10. húsi. Sólin er einnig oft
sterk ef hún er f Ljónsmerkinu
eða í mörgum og sterkum af-
stöðum. Sterk Sól skapar
ákveðna tegund persónuleika.
Hið neikvæða er sjálfselska
og eigingimi, ráðríki og það
að ráðskast með aðra, stela
sifellt senunni og atmennt að
yfirgnæfa umhverfið. Hið já-
kvæða er sterkur vilji og
sjálfstraust, ákveðni og stjóm-
unarhæfileikar, svo nokkuð sé
nefnL
VeikSól
Ef Sólin er veik, t.d. ótengd
eða i erfiðum afstöðum er
hætt við að persónuleiki við-
komandi verði óljós og hann
eigi erfitt með að beita vilja
sínum og vera hann sjálfur.
Viðkomandi verður ekki ger-
andi og að sjálfsögðu getur
hann skort lífsorku.
AldursskeiÖ
Þar sem Sólin tengist vilja og
þvf að framkvæma og vera
sjálfstæður þá er eðlilegt að
segja að hún tengist ákveðnu
æviskeiði. Það gefúr augaleið
að litið bam sem er í umsjón
foreldra sinna heftir ekki náð
að þroska Sól sína. Enda er
sagt að Tunglið sé sterkast á
fyrstu árum ævinnar, en að
Sólin mótist oft ekki fyrir al-
vöru fyrr en upp úr tvitugu.
Það má síðan segja að i sum-
um tilvikum verði Sólin aldrei
sterk. Maður sem lætur sig
fljóta með straumnum, tekur
við fyrirskipunum frá foreldr-
um og síðan maka og atvinnu-
rekanda verður akirei Sól, eða
sjálfstæður einstaklingur.
GARPUR
GRETTIR
DYRAGLENS
UOSKA
FERDINAND
TíTTTTTTTTTTTTTTT^T^TT?: -TT?TTrrTTTT?TT?TTT^??T^TT??TT?!TrTTTr:
:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
SMAFOLK
I COULPNT PECIPE IF I
IUANTEP MARBLE FUP6E,
CH0C0LATE, ROCKV ROAp
N/ANILLAORBUTTER PECAN..
I FINALLV PECIPEP TO
TRVMARBLE FUP6E..
THEN I HAPTO CH00SE
BETWEEN A PLAlN CONE
0R A 5UGAR CONE...
I PECIPEP ON THE 5U6AR
CONE..50 WHAT HAPPENEP?
I WENT OUT THE P00R, ANP
PROPPEP THE WHOLE THIN6
ON THE 5IPEUUALK!
Ég gat ekki ákveðið hvort ég
vildi maTmarahjúp, gúkkulaði,
vanilla eða valhnotu ...
Loks ákvað ég að taka marm-
ara ... og þá varð ég að ve(ja
hvort ég vildi venjulegt form eða
sykurform ...
Ég valdi sykurform ... og hvað
skeði? Ég fór út og miasti allt á
gangstéttina!
Gkki að segja að Iff mitt sé ekki
harmleikur eftir Shakespeare.
Ég skal ekki segja það.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Algeng afsökun fyrir því að
segja of mikið á spilin er slæm
staða í leik. „Það varð eitthvað
að gera,“ segja menn stundum
sér til málsbóta, en sveitarfélag-
amir hafa litinn áhuga á rökum
af því tagi. Nema, auðvitað,
þegar áhættan skilar arði. Það
hefur enginn neitt út á árangur
að setja, hvemig sem til hans
er stofnað.
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁD64
V72
♦«? í™r83
VD95 VKG103
tG105 Suður
4 K872 ^ 4 ÁG64
¥Á864
♦ ÁD87432
*-
Sagnimar þola illa prentun,
bæði 'norður og suður teygðu sig
við hvert fótmál og niðurstaðan
varð að lokum sex tíglar í suður.
Vestur spilaði út spaða, og
þrátt fyrir að drottningin héldi
slagnum, virtust vinningsmögu-
leikar suðurs harla litlir. En þeg-
ar neyðin er stærst er hjálpin
næst. Sagnhafi spilaði laufi úr
borðinu f öðmm slag og austur
liðkaði til með því að stinga upp
ás. Nokkuð skiljanlegt, því hann
var hræddur um að suður ætti
kónginn blankan. En þetta kost-
aði það og nú kom það í hlut
vesturs að valda laufið.
Næst spilaði suður litlu hjarta.
Hugmyndin var að trompa í það
minnsta eitt hjarta í blindum.
Vömin hefði átt að gefa sagn-
hafa færi á að stinga tvö hjörtu
í borðinu, því þá fengi vestur
trompslag. En austur trompaði
út. Sagnhafi varð þá að lfa sér
lynda að stinga eitt hjarta. Kast-
þröng var síðasta vonin, og hann
spilaði næst trompunum til enda:
Norður
♦ Á6
V-
Vestur ♦ d Austur
♦ K9 ♦ 108
r- 11 ♦ K
♦ - ♦ -
♦ k Suður ♦ 7 ♦ 8 ♦ 8 ♦ - ♦ -
Hún var fyrir hendi og tígul-
áttan batt svo endahnútinn á
verkið.
Þegar upp var staðið reyndist
þessi hetjulega barátta NS
óþörf, því andstæðingamir á
hinu borðinu létu sér nægja að
spila þijá tígla. Þannig gengur
það.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Wijk
aan Zee f Hollandi í janúar kom
þessi staða upp í skák ungs hol-
lensks alþjóðameistara, Jeroen
Piket, og norska stórmeistarans
Simen Agdestein, sem hafði
svart og átti leik. Hvitur lék siðast
20. g2 — g3, sem lftur vel út en
svartur á öflugt svar:
20. - HxgSI, 21. Rf3 - Bc6, 22.
Bxa6 - Hd5!, 23. Rg5 - Hxe3+,
24. fxe3 - Dxe3+, 25. Be2 -
Dg3+ og hvítur gafst upp.