Morgunblaðið - 06.04.1988, Blaðsíða 19
8801 JÍ5HA .3 HUOAQUMIVQIM .qiQAJBWiDaOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
verða ábyrg. Seinni kaflamir fjalla
meir um það hvemig draga má úr
óæskilegri hegðun bama og fá þau
til að taka tillit til þarfa annarra,
þ.á m. foreldranna.
Böm hafa þörf fyrir hrós og hvatn-
ingu og það þarf að hlusta á þau og
gefa þeim heiðarleg svör. Böm hafa
þörf fyrir sjálfstæði um leið og þau
verða að reiða sig á aðra og em öðr-
um háð.
Foreldrar geta aðstoðað böm og
unglinga við að takast ábyrgð á hend-
ur og læra af árangri og mistökum.
Inn á alla þessa þætti og miklu fleiri
kemur dr. Gordon í bók sinni með
ljósum dæmum, bæði spumingum og
svörum.
Vissulega ber bókin þess merki að
hún er samin fyrir bandaríska for-
eldra, en ekki íslenska, og oft er erf-
itt áð staðfæra vissa þætti að íslensk-
um háttum. En Inga Karli Jóhannes-
syni hefur tekist vel að koma efninu
til skila yfir á mjög svo læsilegt og
lipurt mál. Fátt er um íslenskar hand-
bækur til ráðgjafar fyrir foreldra, en
gott getur verið að hafa slíka bók
handbæra. í bókinni „Samskipti for-
eldra og bama“ er að fínna ýmsar
góðar vísbendingar, hugmyndir og
ráðleggingar, sem geta opnað augun
og komið að liði.
Að lokum vil ég hvetja alla for-
eldra til að hugleiða hversu mikil-
vægu starfí þeir gegna og reyna sem
oftast að finna sér stund til sam-
skipta og sameiginlegra viðfangsefna
fyrir alla fjölskylduna.
Höfundur er fræðalusijóri i
Revkiavík.
mm
YX
M&to
sW
V/SA
Þar sem
þjónustan er traust
Hðnnuöur VHS og VHS-C
LAUGAVEGI 89
S- 91-13008
JVC VideoMovie klúbbur
FACO, JVC á Islandi, mun á næstunni stofna VideoMovie
klúbb til aö tryggja betri þjónustu viö hina fjölmörgu JVC
VideoMovie eigendur á (slandi. Eigendur JVC VideoMovie
véla, frá GR-C1 til GR-45, fá inngöngu í klúbbinn. Skráning
og útgáfa skírteina hefst í næsta mánuði. VideoMovie
klúbburinn mun veita félögum sínum ýmis-konar þjónustu
og einstök hlunnindi sem aðeins fyrirtæki eins og JVC/
FACO getur veitt. Þessi þjónusta verður kynnt félögum
persónulega við skráningu. Einnig býðst þeim 10% afslátt-
ur af spólum og aukahlutum fyrir VideoMovie vélar í versl-
uninni FACO. Athugið að aðeins JVC VideoMovie eigendur
geta gengið í klúbbinn.
Til þeirra sem ekki eiga VideoMovie:
JVC VideoMovie er öruggasta myndavélamerkið. Video-
Movie er myndavél í nútíð og framtíð. Verslið í FACO eða
hjá viðurkenndum JVC endursöluaðilum, þar sem þjónust-
an er og verður.
afsláttur hækka. Séu einstaklingar
of nærri skattfrelsismörkum þá bæt-
ast þeir við vandræðahópinn hér að
ofan.
Um launatekjur ofar skattfrelsis-
marka gildir almennt:
a) Þegar háar og lágar launatekjur
hækka til jafns í prósentum og
sé prósentuhækkun persónuaf-
sláttar minni en prósentuhækkun
launatekna, þá hækka ráðstöfun-
artekjur hinna hærra launuðu
hlutfallslega meira en hinna
lægra launuðu.
b) Ef á hinn bóginn að prósentu-
hækkun persónuafsláttar er meiri
en prósentuhækkun launatekna,
þá hækka ráðstöfunartekjur
hinna lægra launuðu hlutfallslega
meira en hinna hærra launuðu.
c) Hækki persónuafsláttur hlutfalls-
lega jafnt og launatekjur, hallar
ekki á neinn.
Athyglisvert er að skoða betur þá
sem eru rétt ofar skattfrelsismarka,
þvi að hækki launatekjur hlutfalls-
lega meira en persónuafslátturinn,
þá hækka ráðstöfunartekjur þeirra
hlutfallslega minna en bæði þeirra
sem hafa meiri launatekjur og þeirra
sem hafa minni launatekjur. Þessu
er öfugt farið ef persónuafsláttur
hækkar hlutfallslega meira en launa-
tekjur.
Við skulum hér til frekari skýring-
ar líta á dæmi um launþegasamtök,
sem hafa innan sinna vébanda ein-
staklinga með laun á bilinu frá 30
til 100 þúsund krónur á mánuði og
sjá í hvaða klemmu þau kynnu að
komast ef þau teldu rétt að krefjast
sömu hækkunar á allar launatekjur.
Niðurstöðumar eru sýndar í súlurit-
um og að lokum er sýnt dæmi um
hugsanlega niðurstöðu þeirra kjara-
samninga sem nú eru í gangi (tafla).
Þær tölur sem notaðar verða eru
þær sömu og oftast eru nefndar um
þessar mundir, þ.e. launahækkanir
allt að 20%, persónuafsláttur hækki
um ca. 10% í júlí og að verðlag
hækki um ca. 16% til áramóta. Þó
þessar tölur séu innbyrðis háðar
verður litið á þær sem fasta til ein-
földunar.
I súluritinu sjáum við hvaða áhrif
10% hækkun launatekna og 0%
hækkun persónuafsláttar hefur á
hækkun ráðstöfunartekna.
í súluriti 1 hefur þeirri ólíklegu
stöðu verið komið upp að persónuaf-
sláttur hækki ekkert. Varla þarf að
skýra niðurstöðuna frekar því eins
og allir sjá hækka ráðstöfunartekjur
mismikið og kemur „vandræðahóp-
urinn" einkar illa út.
Annað súluritið sýnir okkur áhrifin
af 10% hækkun launatekna og 10%
hækkun persónuafsláttar á prósentu-
hækkun ráðstöfunartekna.
Ef sú staða kemur upp eins og
súlurit 2 sýnir verður varla annað
GR45 VideoMovie upptöku- og afspilunarvél
Vélin sem beðið hefur verið eftir
Einföld, létt og mjög fjölhæf
Byltingarkennd /2” myndflaga
(CCD) með 390.000 virkum ögnum:
400 línu upplausn
8 myndhausar, 4 fyrir SP og
4 fyrir LP
4 lokhraðar (shutter speeds), 1/so,
1/25o, 1/soo og Víooo úr sek.
Stór skuggastafasýnir (LCD)
HQ myndbætirásir
10 lúxa Ijósnæmi
Sexfalt súm meö tveimur hrööum
Tíma- og dagsetning
Hljóö og mynddeyfir
Samstýrö klipping (master edit
control) frá GR-45 yfir á stofu-
myndbandstæki
Núllramma klipping (zero frame
editing) sem gefur lýtalaus skil
milli upptaka
Tekur upp á stóra spólu með
afritunarkapli
VHS-C upptökukerfiö, mest ráð-
andi og hannað af JVC
Mikið úrval af aukahlutum
Alsjálfvirk fyrir lit, Ijós og skerpu,
handvirkni möguleg.
Þyngd: 1,2 kg, stærö 11(B) x
15(H) x 24(D) sm
Launatekjur fyrir hœkkun Ráðst.tekjur fyrir hækkun Launatekjur eftir hækkun Ráðst-tekjur eftir hækkun Hækkun ráðst.tekna í%
30.000 30.000 36.000 36.000 20,0%
35.000 35.000 42.000 42.000 20,0%
40.000 40.000 48.000 47.381 18,5%
45.000 43.957 54.000 51.269 16,6%
50.000 47.197 60.000 55.157 16,9%
55.000 50.437 66.000 59.045 17,1%
60.000 53.677 72.000 62.933 17,2%
65.000 56.917 78.000 66.821 17,4%
70.000 60.157 84.000 70.709 17,5%
75.000 63.397 90.000 74.597 17,7%
80.000 66.637 96.000 78.485 17,8%
85.000 69.877 102.000 82.373 17,9%
90.000 73.117 108.000 86.261 18,0%
95.000 76.357 114.000 90.149 18,1%
100.000 79.597 120.000 94.037 18,1%
séð en nokkuð „réttlát" staða hafí
komið upp og allir geti unað við sitt.
Þetta er náttúrulega háð því að
menn telji 10% hækkun launa nægi-
iega.
Þriðja súluritið sýnir okkur áhrifin
af 10% hækkun launatekna og 20%
hækkun persónuafsláttar á prósentu-
hækkun ráðstöfunartekna.
Eins og dæmið er sett upp í súlu-
riti 3 þá erum við aftur komin í klípu
því lægstu launahópamir voru skildir
eftir. Þeir þurfa því meiri hækkun,
en að vanda má búast við því að sú
hækkun ijúki upp allan launastig-
ann. Það kynni svo aftur að leiða til
þess að sama staða kæmi upp og
sýnd er í súluriti 2 (hækkunin yrði
reyndar 20% í þessu tilviki) og allir
fengju þá „réttláta hækkun “ og
væntanlega nægjanlega.
Taflan hér á eftir sýnir okkur
áhrifín af 20% hækkun launatekna
og 10% hækkun persónuafsláttar á
prósentuhækkun ráðstöfunartekna.
Staða sú sem sýnd er í töflunni
er einna líklegust til að koma upp
eins og staðan í samningamálum er
í dag. Og miðað við þær verðlags-
forsendur að verðlag hækki um ca.
16% til áramóta myndu svona samn-
ingar þýða óbreyttar ráðstöfunar-
tekjur til þeirra sem hafa á milli 40
og 50 þúsund krónur í laun, á meðan
aðrir launaþegahópar hækka um allt
að 4% umfram verðlagshækkanir.
Eins og sjá má hér að ofan gætu
ofangreind launþegasamtök auðveld-
lega lent í vandræðum ef þau krefð-
ust sömu hækkunar launatekna á
öll laun. Launþegasamtök þurfa því
að reyna að spá hver hækkun per-
sónubóta verður, til þess að geta
metið hver hækkunin verður, fyrir
hvem launþegahóp.
Af ofangreindu má ráða að óæski-
legt er að laun hækki mikið fram
yfir hækkun persónuafsláttar, sé
ekki hægt að tryggja hag þessa milli-
hóps, sem fær minnstar prósentu-
hækkanir ráðstöfunarlauna (m.v.
töflu). Þetta er vissulega háð því að
launahækkanir fari nær allar út í
verðlagið eins og efnahagsráðgjafar
halda fram að gerist.
Höfundur er deildarviðskipta-
frseðingur hjá Pósti og síma.