Morgunblaðið - 06.04.1988, Síða 22

Morgunblaðið - 06.04.1988, Síða 22
GOTT FÓLK / SlA 22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988 Landlæknir: Ef þú ert ívafa um hvaða ávöxtunarleið er hagstæðust sparifé þínu, kynntu þér þá kosfli spariskírteina ríkissióðs' Tek ég einhverja áhæftu með sparifé mitf? Ávöxtun sparifjár með spariskírtein- um ríkissjóðs fylgir engin áhætta. Að baki þeim stendur öll þjóðin og ríkis- sjóður tryggir fulla endurgreiðslu á gjalddaga. Slíkt öryggi býður enginn annar en ríkissjóður. innlent lánsfé og draga því úr erlendri skuldasöfnun. Þetta gerir spariskírt- eini ríkissjóðs að enn betri fjárfest- ingu. Hvernig óvoxta ég sparifé mitt, svo það beri háa vexti umfram verðtryggingu? 8,5% ársvöxtum umfram verðtrygg- ingu. Ríkissjóöur býður nú til sölu þrjá flokka verðtryggðra spariskírt- eina: 1« Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 2 ár með 8,5% ársvöxtum. 2. Söfnunarskírteini sem greiðast eftir 3 ár með 8,5% ársvöxtum. 3. Hefðbundin spariskírteini með 7,2% ársvöxtum. Binditíminn er 6 ár en lánstíminn allt að 10 ár. Að binditíma liðnum eru skírteinin innleysanleg af þinni hálfu og er ríkissjóði einnig heimilt að segja þeim upp. Segi hvorugur skírteinunum upp bera þau áfram 7,2% ársvexti út lánstímann, sem getur lengst orðið 10 ár. Verðtryggð spariskírteini til sölu núna: Flokkur Lánstítni Ávöxtun Gjalddagi l.fl. D 2 ár • 8,5% l.feb'90 l.fl. D 3 ár 8,5% l.feb '91 l.fl. A 6/10 ár 7,2% 1. feb '94-98 Með spariskírteinum ríkissjóðs getur þú ávaxtað sparifé þitt með allt að Hvad med telcju- og Spariskírteini ríkissjóðs eru tekju- og eignaskattsfrjáls eins ög sparifé bönkum. Að auki eru spariskírteini Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla- banka íslands og hjá löggiltum verð- bréfasölum, sem m. a. eru viðskipta- bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlar- ar. Einnig er hægt að panta skírteinin með því að hringja í Seðlabankann í síma 91-699863, greiða með C-gíró- seðli og fá þau síðan send í ábyrgðar- pósti. RlKISSJÓÐUR ÍSLANDS Fyrirlestrar um alnæmi Á VEGUM landlæknis verður á næstu mánuðum farið á vinnu- staði í Reykjavík og nágrenni og fluttir fyrirlestrar um al- næmi á vinnustöðum. í frétt frá landlæknisembættinu segir, að megin markmiðið með fræðslunni sé að stuðla að aukinni þekkingu á kynsjúkdómnum al- næmi og að hvetja einstaklinga til að koma í veg fyrir smit og hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Áhersla er lögð á sjúkdómsferil, smitleiðir, mótefnamælingar, for- vamir og útbreiðslu sjúkdómsins. Gert er ráð fyrir fýrirspumum og umræðum í lok erindisins, sem hjúkrunarfræðinema á lokaári við Háskóla Islands eða sérráðnir starfsmenn sjá um. Er þetta hluti af námi hjúkrunarfræðinga í heil- brigðis- og kennslufræðum. Farið verður á um 100 fjöl- menna vinnustaði, m.a. hótel, banka, leikhús, iðnfyrirtæki og stórverslanir. Fræðslufundimir em auglýstir á hvetjum vinnustað og dreift bæklingnum „Alnæmi og atvinna“, sem saminn er af landlæknisembættinu og Vinnu- eftirliti ríkisins. Grindavík: Nýi togar- inn heitir Gnúpur GK257 Grindavík. TOGARINN Ásþór RE, sem Þorbjörn hf. í Grindavík keypti af Granda hf. í Reykjavík nýve- rið, hefur verið skírður Gnúpur GK 257, í höfuðið á fyrsta land- námsmanninum i Grindavík. Skipstjórinn á skipinu verður Hilmar Helgason, en var 1. stýri- maður og afleysingaskipstjóri á Júlíus Hafstein ÞH frá Húsavík. Ásgeir Magnússon, skipstjóri í Grindavík, verður 1. stýrimaður og afleysingaskipstjóri á Gnúpi GK, en hann var skipstjóri á Hrafni Sveinbjamarsyni II. GK í nokkur ár. Áhöfninni á togaranum sem fyrir var var boðið að vera áfram og þáðu nokkrir skipvetjar það en síðan hafa verið ráðnir nokkrir Grindvíkingar á skipið. Gnúpur GK fer á hefðbundið togarafiskirí fljótlega og mun landa afla sínum i Grindavík. — Kr. Ben. KYOIIC lyktarlausi hvítlaukurinn er kominn aftur. 20 mánaða kæli- tæknivinnsla gerir KYOLIC algerlega jafngildi hráhvítlauks. Engin sambærileg hvítlauksræktun eða framleiðsla fyrirfinnst í veröldinni. KYOLIC, líkami þinn finnur fljótt muninn. Helstu sölustaðir: Heilsu- og lyf javerslanir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.