Morgunblaðið - 06.04.1988, Síða 26

Morgunblaðið - 06.04.1988, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988 REYKLAUS DAGUR 7.APRÍL Gerum alla daga að reyklausum dögum — segirGuð- mundur Bjarna- son heilbrigðis- ráðherra Hvatningí baráttunni gegn reykingnm er alþjóð- legur reyklaus dagur á morgun, miðvikudaginn 7. apríl. Hér á landi hafa Tó- baksvarnanefnd, heilbrigð- isráðuneytið og landlæknis- embættið gert ýmislegt til þess að vekja athygli á reyk- lausum degi, m.a. með því að senda veggspjöld og ýms- ar upplýsingar á alla vinnu- staði landsins, í alla skóla landsins og á allar heilsu- gæslustöðvar, en þær munu standa fyrir sérstakri að- stoð til handa reykingafólki á reyklausa daginn og all- margar þeirra mimu einnig halda námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja. I sam- starf i við Tóbaksvama- nefnd birtir Morgunblaðið hvatningu heilbrigðisráð- herra og landlæknis í tilefni reyklausa dagsins og einnig álit fólks úr ýmsum áttum. Ávarp heilbrigðisráðherra „Hinn 7. apríl er alþjóðlegur reyklaus dagur á íslandi sem í öðrum löndum," segir Guðmund- ur Bjamason, heilbrigðisráð- herra. „En hver er tilgangurinn með reyklausum degi. Reyklaus dag^ur á að vera okkur öllum hvatning til að forðast þá hættu og skaðsemi sem að heilsu okkar steðjar af völdum reykinga. Hvatning til okkar, sem ekki reykjum, að venja okkur aldrei á þann ósið og hvatning til þeirra sem reykja að reyna einn dag án tóbaks í þeirri von að sú til- raun sanni þeim, að vel má án þess vera, alla daga. Það er ánægjulegt til þess að vita að reykingar eru á undan- haldi hér á landi og það sem mikilvægast er, einkum meðal bama og unglinga. Eftir því sem þeim flölgar er aldrei taka fyrstu sígarettuna, verða áfangasigr- amir í baráttunni gegn tóbakinu stærri og þeim fækkar örar sem þjást og deyja úr lungnakrabba- meini eða hjarta- og æðasjúk- dómum. Tökum höndum saman og gerum reyklausan dag að veru- leika. Einn reyklaus dagur er mikil- vægt skref í þá átt að gera alla daga að reyklausum dögum. Eg er í reyklausa liðinu, en þú?“ spyr Guðmundur Bjama- son, heilbrigðisráðherra. Reykingar stærsti sjúkdómsvaldurinn „Reykingar eru stærsti sjúk- dómsvaldurinn í samfélaginu í dag,“ segir Ólafur Ólafsson, landlæknir. „Rannsóknir hér- lendis hafa leitt í ljós, að 30 ára gamall maður, sem reykir einn pakka á dag er sem fertugur líkamlega. Ef þú reykir skaltu draga sem mest úr reykingum og helst hætta, og þú skalt leita til heilsugæslustöðvanna og taka þátt í reykingavamanámskeiði. Markmið heilbrigðisyfirvalda er að koma á fót reykingavama- námskeiðum á öllum heilsu- gæslustöðvum landsins fyrir árs- lok 1989,“ sagði landlæknir að lokum. Líkamlegt atgervi hefur stóraukist „Ég reykti einu sinni, því mið- ur,“ sagði Kristinn Sigmundsson söngvari í samtali við Morgun- blaðið, „en ég hef samanburðinn, því ég varð þeirra gæfu aðnjót- andi að hætta að reykja. Þessi samanburður er þannig að nú finnst mér ég vera lifandi á móti því að vera hálfdauður á meðan ég reykti. Líkamlegt at- gervi hefur aukist gífurlega, stóraukist, og heilsan er miklu betri." Óskynsamlegt og hall- ærislegt að reylga „Ég hef aldrei reykt, ekki svo mikið sem fíktað við það, því mér fínnst það yfírþyrmandi óskynsamlegt að reykja og að Kristmn Sigmundsson söngvari Páll Þorsteinsson útvarpsstjóri auki hallærislegt," sagði Val- gerður Matthíasdóttir, frétta- maður á Stöð 2 ,í samtali við Morgunblaðið um álit hennar á reykingum og reyklausum degi. „Þegar ég var unglingur þótti það fínt að reykja, en innbyggt mótþróaeðli í mér leiddi til þess Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra Valgerður Matthíasdóttir fréttamaður Bessi Bjarnason leikari að ég valdi mína leið. Þá reyktu unglingar í gagnfræðaskólum mjög mikið, en nú fordæma ungl- ingar reykingar og það er stór- kostlegt. Þeim fjölgar sem betur fer stöðugt sem fínnst það hálf bjánalegt að reykja, að maður tali nú ekki um heilsuspillandi Ólafur Ólafsson landlæknir Björk Guðmundsdóttir SÖngvarí Ljósmvnd/BS þáttinn. Að mínu mati þýðir ekk- ert að banna fólki að reykja, þótt sjálfsagt sé að ætlast til til- litssemi og mér líður ekkert illa í návist reykingafólks, en ég mæli eindregið með reyklausum dögum alla daga ársins." Óþægilegt að vera innan um reykingafólk „Persónulega tel ég reykingar tilgangsiausar," sagði Björk Guðmundsdóttir, söngvari Syk- urmolanna, í samtali við Morg- unblaðið, „og mér fínnst mjög óþægilegt að vera innan um fólk sem reykir. En ég álít að fólk eigi að gera það sem það vill og mér fínnst skrítið að hafa ein- hvem reyklausan dag. Þeir sem reykja vilja ugglaust fá að reykja i friði, en þeir eiga að sýna tillits- semi. Aðalatriðið er að menn geti valið sjálfír hvað þeir gera.“ Subbulegt og heilsu- spillandi, en . . . „Ég er stórreykingamður sjálfur og vildi mikið gefa til þess að vera laus við þann kaleik," sagði Páll Þorsteinsson, útvarpsstjóri á Bylgjunni, „en ef ég gæti hætt að reykja í einn dag þá væri bjöminn lklega unn- inn. Það virðist hins vegar vera álíka erfítt að hætta þessum ósið eins og að byija í megmninni, sem er löngu orðið tímabært. Því miður er maður tvöfaldur í roðinu, en vissulega fínnst mér subbulegt að reykja. Það er heilsuspillandi, það er dýrt, en maður er fastur í netinu og mik- ið er ég búinn að bölva fyrstu sígarettunni. Á hverjum degi bölva ég sígarettum og er alltaf að hneykslast á sjálfum mér. Ég á þá von að það komi að því að maður gangi skrefíð til fulls og hætti þessum ósóma.“ Algjörlega á móti reykingum „Ég er algjörlega á móti reykingum og styð heilshugar reyklausan dag í baráttunni gegn tóbaki," sagði Kamilla Rún Jóhannsdóttir, nýkjörin fegurð- ardrottning Norðurlands. „Reykingar eru algjör vitleysa, heilsuspillandi, peningaeyðsla og hafa engan tilgang nema til ills. Ég mæli því hiklaust með bar- áttu gegn reykingum." Allt annað líf „Ég reykti í 30 ár, en hætti á einu augabragði fyrir nokkrum árurn," sagði Bessi Bjarnason leikari og vék síðan að aðdrag- anda þess að því hann hætti: „Eg Kamilla Rún Jóhannsdóttir nemandi var að ieika í Gæjum og píum og í leikhlénu fór ég niður í kaffi- stofu eins og venjulega, en komst ekki að til að kaupa tóbak, því það biðu svo margir. Ég vatt mér þá að hringborði þar sem Qöldi leikara sat, veifaði hundr- aðkallinum sem ég hafði ætlað að nota til þess að kaupa tóbak, og sagði um leið að nú væri annaðhvort að hætta að reykja eða kveikja í hundraðkallinum. Þessu var tekið með flissi, en ég var ekkert að tvínóna við það, kveikti á eldspýtu, bar hana að hundraðkallinum og á meðan hann fuðraði sagði ég ósköp ró- lega: „Nú er maður hættur að reykja." Það datt á dauðaþögn, en þetta hefur gengið eftir og þetta er allt annað líf, maður er miklu hressari og léttari á morgnana og líður betur á allan hátt. Ég mæli því með reykleys- inu, því fyrr því betra .“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.