Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 35

Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988 35 VIÐRÆÐUR eru hafnar milli stjómar Filippseyja og Banda- rikjamanna um framtíð banda- rískra herstöðva á Filippseyjum. Viðræðurnar snúast formlega um framkvæmd samkomulags milli rikjanna um að Bandaríkja- menn hafi afnot af herstöðvum í landinu. í raun er hins vegar rætt um hvað gerist árið 1991 þegar yfirstandandi samningur ríkjannna rennur út. Flótti Greg- orios „Gringos" ofursta um helg- ina flækir málið því margir Filippseyingar saka CIA, banda- risku leyniþjónustuna, um að hafa aðstoðað hann við flóttann. Gregorio „Gringo“ Honasan ofursti komst í fréttirnar á laugar- dag þegar hann slapp á gúmmíbát af fangaskipi ásamt 14 mönnum sem áttu að gæta hans. Svo virðist sem Gringo hafi mútað vörðunum. Gringo átti þátt í að steypa Marc- osi forseta af stóli á sínum tíma og uppreisn hans gegn Corazon Aquino forseta þann 28. ágúst síðastliðinn bar næstum árangur. Uppreisnin var bæld niður í blóðug- um átökum sem kostuðu 53 menn lífið. Gringo slapp sjálfur og sagði ástæðu uppreisnarinnar vera þá að Aquino væri of lin við kommúnista. Gringo sem er fertugur að aldri var tekinn höndum fyrir Qórum mánuðum þar sem hann hafði falið sig undir rúmi þjónustustúlku á heimili í úthverfi Manilu. En þó hann hefði verið færður í bönd var ljóst að hann naut enn nokkurs stuðnings hermanna, ekki síst vegna mikilla persónutöfra. Víðtæk leit hefur farið fram síðan Gringo slapp af fangaskipinu og herinn er í viðbragðstöðu af ótta við nýja uppreisn. I sjónvarpsræðu um helgina skoraði Aquino forseti á landsmenn að hjálpa til við leitina að Gringo. Hún sagði einnig að skipstjóri og áhöfn fangaskipsins hefðu verið handtekin. Jesse Jackson ásamt konu sinni og syni, Jacqueline og Jesse yngri. Forkosningar í Bandaríkjunum: Styttist í uppgjör Jacksons og Dukakis Milwaukec í Wisconsin, Reuter. KJÓSENDUR í Wisconsin gengu í gær til atkvæða í forkosningum þar, en úrslitin kunna að gefa visbendingu um hver hljóti end- anlega útnefningu Demókrata- flokksins til forsetaframboðs. Um hana takast nú á þeir Mic- hael Dukakis, rikisstjóri Massac- husetts, og Jesse Jackson, blökkumannaleiðtogi. Kjörsókn var mjög góð, en sérfræðingar voru ekki á einu máli um áhrif hennar á úrslitin. Talið er að George Bush, varaforseti Banda- ríkjanna, vinni auðveldan sigur meðal repúblikana, en hann fær tæpast nokkuð stöðvað eftir að aðalkeppinautur hans, Robert Dole, dró sig í hlé. í Wisconsin er aðeins kosið um 81 landsfundarfulltrúa, en sigurþar mun að líkindum auka sigurlíkur í New York, þar sem 255 fulltrúar eru í húfi. Forkosningar í New York-ríki fara fram eftir tæpar tvær vikur, eða hinn 19. þessa mánaðar. Talið er að hvorki Dukakis né Jackson takist að fá þá 2.082 lands- fundarfulltrúa sem þarf til þess að tryggja sér útnefningu fundarins, sem hefst í Atlanta í Georgíuríki hinn 18. júlí. Fari sem horfir má líklegt telja að hart verði barist á fundinum um þá fulltrúa, sem ekki hafa gert upp á milli þeirra Jack- sons og Dukakis. Slíkar erjur telja demókratar hinar óheppilegustu þar sem þær muni síst afla flokknum fylgist. Hins vegar er bent á að beijist þeir Dukakis og Jackson ekki af alvöru hvað úr hveiju sé ógjörningur að spá fyrir um endan- legar lyktir í kosningaslagnum. Jackson hlíft Dukakis þurfti að láta í minni pokanna fyrir blökkumannaleið- toganum í Michigan hinn 26. síðast- liðinn, en með sigri sínum þar sýndi Jackson að hann getur hæglega áunnið sér stuðning hvítra kjós- enda. Til þessa hafa frambjóðendur demókrata varast að gagnrýna Jackson af ótta við að flæma svarta kjósendur frá flokknum, en stuðn- ingur þeirra hefur löngum verið Demókrataflokknum nauðsynlegur. Reuter „Fæðinggyðju“ skiptir um eigendur Spánski málarinn Salvador Dali sem dregið hefur sig í hlé úr skarkala heimsins fékk heimsókn um daginn. Jordi Pujal leið- togi héraðsstjómarinnar í Katalóníu sótti málarann heim og tók fyrir hönd stjórnar sinnar við gjöf frá Dali. Málverkið heitir „Fæðing gyðju“ og er eitt af uppáhaldsverkum Dalis. Umdeild eldflaugakaup Saudi-Araba: Bandaríkj amenn fá að rannsaka flaugarnar Abyrgjast að f sraelar ráðist ekki á landið Á síðustu dögum hefur þetta þó breyst, aðallega vegna bréfaskrifta Jacksons við Noriega, hershöfð- ingja í Panama. Dukakis fór þó varlega í sakirnar og lét nægja að segja að borgarar ættu ekki að skipta sér af viðkvæmum milliríkja- málum, sem betur færi á að væru í höndum starfsmanna utanríkis- ráðuneytisins og Hvíta hússins. Albert Gore, sem einnig sækist eftir útnefningu Demókrataflokks- ins og ekki hefur verið feiminn við að gagnrýna utanríkisstefnu Jack- sons, kvað fastara að orði og gagn- rýndi Dukakis þar að auki fyrir að þora ekki að átelja Jackson af þeirri ástæðu einni að hann væri blökku- maður. HVAÐ EIGA FISKIÐJA STALIÐJAN, HAMPIÐJAN OG GRÍNIÐJAN SAMEIG- INLEGT MEÐ Amman, Reuter. SAUDI-Arabar eru reiðubúnir til að heimila bandarískum sérfræð- ingum að rannsaka eldflaugar, sem þeir hafa keypt frá Kina, gegn þvi að Bandaríkjamenn ábyrgist öryggi landsins fyrir árás frá ísrael. Að sögn ónefnds arabísks embættismanns verður samkomulag í þessa veru undir- ritað á morgun er George Shultz, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, ræðir við saudi- arabiska embættismenn. Israelskir embættismenn hafa lýst áhyggjum sínum vegna eld- flauga þessara sem eru meðaldræg- ar og geta borið kjarnaodda. Að- stoðarmaður Yitzhaks Shamirs, for- sætisráðherra Israels, gaf í skyn í blaðaviðtali í síðasta mánuði að Israelar kynnu að ráðast á Saudi- Arabíu sökum þessa. Bandaríkja- menn mótmæltu einnig sölunni á þeim forsendum að eldflaugarnar yrðu síst til þess að auka stöðug- leika í þessum heimshluta. Saudi- arabískir og kínverskir embættis- menn hafa lýst yfir því að tilgangur- inn með kaupunum sé eingöngu sá að efla vamir Saudi-Arabíu og að ekki sé ráðgert að koma kjarnaodd- um fyrir í eldflaugunum líkt og gert hefur verið í Kína. Arabískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði í viðtali við fZeuters-fréttastofuna á mánudag að Saudi-Arabar væru reiðubúnir til að heimila banda- rískum sérfræðingum að rannsaka eldflaugamar gegn því að Banda- ríkjamenn ábyrgðust að ísraelar réðust ekki á land þeirra. Sagði heimildarmaðurinn að Saudi-Aröb- um væri mjög í mun að treysta samskipti sín við Bandaríkin og því hefði boði þessu verið komið á fram- færi við stjómvöld í Bandaríkjun- um. Sagði embættismaðurinn að samningur í þessa veru yrði undir- ritaður á morgun, fimmtudag, er Shultz utanríkisráðherra Banda- ríkjanna ræðir við saudi-arabíska embættismenn en hann er nú í frið- arför um Mið-Austurlönd. Embættismaðurinn ónefndi sagði ráðamenn í Saudi-Arabíu hafa af því áhyggjur að ísraelar létu til skarar skríða vegna eldflauganna líkt og þeir hafa áður gert þyki þeim öryggi sínu ógnað. Því yrði kveðið á um það í samningnum að Bandaríkjamenn ábyrgðust öryggi Saudi-Araba gagnvart árás frá Israel. Moskva: 15 kíló af heróíni gerð upptæk Moskvu, Reuter. TOLLVERÐIR á Shere- metjevo-flugvelli í Moskvu hafa gert upptæk um 15 kíló af her- óíni, að því er skýrt var frá í dagblaðinu Komsomolskaya Pravda á sunnudag. í fréttinni kom ekki fram hven- ær þetta gerðist en að sögn blaðs- ins fannst eitrið í farangri ungs Afríkubúa og konu einnar, sem var með honum í för. Fólkið milli- lenti í Moskvu á leið frá Nýju Delhí til Cotonou í Afríkuríkinu Benín og fannst heróínið í fölskum botni einnar ferðatöskunnar. í frétt Komsomolskaya Pravda sagði að söluverðmæti eitursins væri um 400 milljónir íslenskra króna og að smyglaramir hefðu umsvifalaust verið hnepptir í gæsluvarðhald. N.Ö.R.D.? Filippseyjar: „Gringo“ ofursti gengur enn laus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.