Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
37
Reuter
VIÐBUNIR
Félagar úr sérþjálfaðri suður-kóreskri „víkingasveit“ renna sér
niður kaðla ofan af stúkuþaki ólympíuleikvangsins í Seoul. Gífur-
leg öryggisvarzla verður viðhöfð á Ólympiuleikunum í Seoul
næsta haust.
Páskaboðskapur páfa:
Lagði áherslu á
frið og trúfrelsi
Páfmrarðí Ronf or
Páfagarði. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi II hvatti
til þess í ræðu á páskadag, að
trúfrelsi yrði virt um allan heim
og bað fyrir frelsi og jafnrétti
meðal manna. 150.000 pílagrím-
ar hlýddu á páfa tala til fólksins
af svölum Péturskirkjunnar en
ræða páfa þennan dag kallast
Nagomo-Karabakh:
Gjaldþrot í
kjölfar verk-
fallanna
Moskvu. Reuter.
FJÓRAR verksmiðjur hafa orð-
ið gjaldþrota í héraðinu Nag-
orno-Karabakh vegna verkfalla
fólks af armenskum uppruna
en það krefst þess, að héraðið
verði fært undir Armeníu.
Sagði sovéska fréttastofan Tass
frá þessu í gær.
í frétt frá Stepanakert, höfuð-
borg héraðsins, sagði, að fram-
leiðslutap vegna verkfallanna
næmi meira en fjórum milljónum
rúblna (rúmlega 170 millj. ísl. kr.)
og hefði það meðal annars valdið
því, að fjórar verksmiðjur væru
gjaldþrota. Ekki er samt búist við,
að verksmiðjunum verði lokað
enda hefur Sovétstjórnin heitið að
blása nýju lífi í atvinnumál héraðs-
ins.
Verkföllin eru enn mjög víðtæk
í Nagomo-Karabakh og sagði
Tass, að þeir, sem rækju áróður
fyrir þeim, hétu hvetjum þeim
manni þijár rúblur á dag, sem
mætti ekki til vinnu.
í Ízvestíu sagði í gær, að ákveð-
ið hefði verið að greiða fyrir send-
ingum armenska sjónvarpsins til
Nagomo-Karabakh og ráðamenn
í Azerbajdzhan voru sakaðir um
að hafa vanrækt héraðið árum og
áratugum saman. Þá voru komm-
únistaflokkarnir í Armeníu og
Azerbajdzhan harðlega gagnrýnd-
ir fyrir að mistúlka ástandið.
„Urbi et Orbi eða „Til borgar-
innar og allrar heimsbyggðar-
innar“.
Páfi helgaði mál sitt Maríu mey
og bað hana að biðja fyrir „rétti
allra manna til að játa trú sína í
friði, kristinna manna og ann-
arra“. Sagði hann, að það væri
óviðunandi, að 40 árum eftir sam-
þykkt mannréttindaskrár Samein-
uðu þjóðanna væri fólk enn ofsótt
fyrir trúna. Kvaðst hann vona, að
friður gæti ríkt í hjörtum allra
manna en bað sérstaklega fyrir
þeim, sem byggju við ófrið, órétt-
læti og skort.
Páfí óskaði öllum gleðilegra
páska á 52 tungumálum, þar á
meðal á 19 tungum, sem talaðar
eru í Austur-Evrópu. Við messu í
kirkjunni á páskadag lét páfi
syngja foman, slavneskan sálm en
á þessu ári eru liðin 1.000 ár frá
kristnitöku í Rússlandi.
LOGSUÐUTÆKI
FREMSTIR I 100 AR
ARVIK
ÁRMÚLI I -REYKJAVlK- SÍMI 687222 -TELEFAX 687295
Pravda gagnrýnir flokks-
málffaffn fyrir íhaldssemi
Moskvu, Reuter. ^ ^ •'
PRA VDA, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins, sakaði í
gær málgagn kommúnistaflokks
Rússlands um íhaldssemi og að
birta það sem kallað er stefnu-
skrá fyrir andstæðinga „per-
estrojku", umbótastefnu Míkhails
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga.
Árás Prövdu á Sovetskaja Rossíja
er nýjasta dæmi þess að hugmynda-
fræðilegur ágreiningur í efstu þrep-
um sovéska _ valdastigans er enn
óútkljáður. { einnar síðu langri
stjómmálaskýringu í Prövdu segir
að grein í Sovetskaja Rossija þar sem
Jósef Stalín er varinn sé full söknuð-
ar og trega til þeirra tíma er fáir
útvaldir settu lög og hinir hlýddu
undirgefnir. „Hægt er að skilja sökn-
uð sumra en það er ekki viðeigandi
að ijölmiðill reki áróður fyrir slíku
tilfínningaástandi,“ segir í Prövdu.
I bréfí sem Pravda gagnrýnir
einkum og birt var þann 13. mars
í Sovetskaja Rossíja segir að of mik-
ið sé gert úr kúgunum í valdatíð
Stalíns óg að gagnrýnin á Stalín
leiði til þess að ungdómurinn tapi
áttum og ruglist í hugmyndafræð-
inni.
Sovetskaja Rossíja hefur hneigst
til íhaldssemi undanfama mánuði
eftir að hafa verið í fararbroddi
„glasnost“-stefnunnar fyrst á ferli
Gorbatsjovs. Sovéskir menntamenn
vilja sjá þessa þróun í víðara sam-
hengi og segjast hafa áhyggjur af
því að rússnesk þjóðemishyggja fari
vaxandi á kostnað annarra þjóð-
flokka í landinu.
Philips uppþvottavei
• OrkusParandis^Jöáefrjkörfu
; wjr stóra po®v»Fv*man uppÞxott).
Philips „^v0«avél