Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 54

Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri stjörnuspekingur. Mig langar að biðja þig um lýsingu á manninum mínum. Hann er fæddur í Tvíbura- merkinu, en mér fínnast ein- kenni Tvíburamerkisins eiga mjög lítið við hann. Kannski átt þú einhverja skýringu á þessu. Hann er fæddur á Barðaströnd, 20.06. 1947 rétt fýrir hádegi. Með fyrirfram þakklæti." Svar: Maður þinn hefur Sól, Venus og Miðhimin í Tvíbura, Tungl og Merkúr í Krabba, Mars í Nauti og Meyju Rísandi. Uppeldi og umhverfi Ástæður fýrir því að þér finnst hann ekki dæmigerður fýrir merki sitt geta verið nokkrar. í fyrsta lagi þær að það um- hverfi sem hann ólst upp í, bæði hvað varðar fjölskyldu og þjóðfélagsaðstæður, getur hafa verið andstætt upplagi Tvíburamerkisins. í slíku til- viki er líklegt að hann hafí þroskað önnur merki sín, eða Krabba, Naut og Meyju. ‘ Ólík merki í öðru lagi má einfaldlega segja að þar sem hin merki hans eru ólík Tvfburanum þá verði hann víkjandi eða lítt sjáanlegur. Krabbi, Naut og Meyja eru þung, varkár og íhaldssöm merki. Fjölhœfur Ég myndi segja að maður þinn sé í grunneðli sínu jákvæður, félagslyndur og fjölhæfur eða a.m.k. að hann þurfi á fólki og fjölbreytileika að halda til að viðhalda fullri lífsorku og lífsgleði. Ef hann er á ein- hvem hátt daufur gæti ástæð- an legið í því að lifsmunstur hans er of einhæft. Tvíburi verður alltaf Tvíburi þó ein- kennin sjáist ekki á yfirborð- inu. Það þýðir að hann þarf á fjölbreytileika að haida. íha/dssamur Það sem gæti dregið úr hon- um og gefur vísbendingu um togstreitu er að hann hefur tilfinningar og hugsun í Krabbamerkinu. Krabbinn er frekar hlédrægt og stundum feimið merki, oger íhaldssam- ara en t.d. Tvíburinn. Hann þarf á öryggi að halda t.d. hvað varðar heimili. Krabbinn er einnig viðkvæmur og til- finningaríkur. Þrjóskur Mars í Nauti táknar að hann er jarðbundinn í athafhaorku sinni og á til að vera þrjósk- ur. Þessi staða gerir að hann hefur meira úthald og er fastari fyrir heldur en gengur og gerist með Tvíbura. Hógvœr Meyja rísandi táknar að hann er frekar varkár, hlédrægur og hógvær i fasi og fram- komu. Hún táknar einnig að hann á til að vera smámuna- samur og gagnrýninn og hef- ur þó nokkra þörf fyrir að hafa umhverfí sitt ( röð og reglu. JarÖbundinn Ég myndi segja þegar á heild kortsins er litið að maðurinn þinn sé frekar eirðarlaus per- sónuleiki en samt sem áður fastur fyrir, jarðbundinn, stundum gagnrýninn og íhaldssamur. Hann er næmur og tilfmningalega viðkvæmur. Einnig tel ég ltklegt að hann sé töluverður náttúruunnandi. Það er erfítt að túlka kort í svo stuttu máli sem hér, ekki síst þegar ekkert er vitað um fyrri aðstæður. Ég vona þó að þessi svör hjálpi þér að skiljaTvíburann örlítið betur. GARPUR /HOHTX/isS/hlN F/ER. NÝTT V/OFANGSBF/J/ Þegar. G4RPUR JÆJA, LJÓS/ LOKK- UR,ÞÚ KA//NT AE> &ERJAS T'VERSTAO E/rr SVERÐ/ GRETTIR þó EKT 5VO PaGFUR- / \ PÁLONN ,GRETTlR. I MUNPO BARA, t?ESAR piJ \ UöðOR X BAKiNU SETURPO AÐEINS HORFT UPP NU ER Bö < V- ,'SJÁLFSMORÐS*-' HU6LEJÐINGJ,,“a DYRAGLENS UOSKA Ecs CaLeyMI ALDREI 7F BRÚDA RXJÓ l n U M I FERDINAND SMAFOLK HELL07TMI5 15 MAKCIE A6AIN..MAV I 5PEAK TO CHARLE5? HE ISNT HERE..HE HAPTOTAKE HI5 D06 TOTHE VE6ETARIAN... ialló? Þetta er Magga aft- ur... Má égtala við Karl? Hann er ekki við ... hann þurfti að fara með hund- inn sinn til dýratæknis ... Dýralæknis Eða þannig BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Sveit Flugleiða vann sannfær- andi sigur á íslandsmótinu, sem fram fór um páskana á Hótel Loftleiðum. Helsti keppinautur- inn, sveit Fatalands, var í efsta sæti þegar hún mætti Flugleiða- mönnum í næstsíðustu umferð. Fataland hafði yfir í hálfleik, en Flugleiðir náðu að snúa blaðinu rækilega við í síðari hálfleik og sigra örugglega. Fataland datt svo niður í þriðja sæti þegar sveitin tapaði fyrir Polaris í loka- umferðinni. Sveit íslandsmeist- aranna er þannig skipuð: Jón Baldursson, Valur Sigurðsson, Aðalsteinn Jörgensen, Ragnar Magnússon og Sigurður Sverris- son. Eitt athyglisverðasta spil mótsins kom upp í töfluleik Flugleiða og Verðbréfamarkaðs Iðnaðarbankans. Það leit þannig út: Suður gefur; AV á hættu. Norður ♦ KDG65 ♦ 9732 ♦ 1042 ♦ 3 Vestur Austur ♦ 10943 4872 ♦ 65 11 ♦ AD10 ♦ G53 ♦ A976 ♦ DG106 ♦ ÁK5 Suður ♦ Á ♦ KG84 ♦ KD8 ♦ 98742 í opna salnum varð Sigurður Sverrisson í norður sagnhafi í þremur hjörtum og vann Qögur — 170 í NS. En það var harðar barist í lokaða salnum. Þar sátu Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen í AV gegn Ásmundi Pálssyni og Jóni Ásbjömssyni í NS. Sagnir gengu: Vestur J.B. Pass Pass 3 lauf Pass Norður Á.P. Austur A.J. 1 spaði Pass 2 spaðar Dobl Pass Pass Pass Pass Suður J.Á. 1 tígull 1 grand Pass Dobl Áhorfendur í sýningarsalnum ætluðu ekki að trúa sínum eigin augum þegar þeir sáu töluna 670 í AV fyrir þijú lauf slétt staðin. „Hvemig I ósköpunum var hægt að gefa þann samn- ing?“ spyrðu menn hver annan, hneykslaðir upp fyrir haus. Margir töldu að spilið ætti að fara tvo niður í það minnsta, ef ekki þijá. Sannleikurinn er allur annar — með hnitmiðaðri vöm má meija þijú lauf einn niður. Ás- mundur í norður kom út með spaðakóng og Jón Ásbjömsson skipti yfir í lauf í öðram slag. Jón Baldursson lagðist nú undir feld í 18 mínútur! Ákvað svo að taka fjóram sinnum tromp og spila tígli á níu blinds. Jón Ás- bjömsson drap á drottningu, tók síðasta trompið og spilaði tígul- kóng. Þar með var spilið í höfn. Jón Baldursson drap á ás, tók tígulgosa og spilaði hjarta á tíuna. Fékk þá níunda slaginn á hjartadrottningu. ^ Til að hnekkja spilinu verður suður að geyma síðasta trompið sitt og spila hjarta upp í gaffal- inn! Og endurtaka þann leik þegar hann lendir inni á tígul- kóng! Þá getur hann trompað flórða tígulinn og norður fær siðasta siaginn á spaða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.