Morgunblaðið - 06.04.1988, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
55
Jóhanna Þ. Einars-
dóttir-Minning
Það er með þökk til Guðs sem
við viljum minnast Jóhönnu Einars-
dóttur örfáum orðum. Jóhanna var
ekki sú manneskja sem lét mikið
yfír sér eða mikið bar á, en kær-
leiksríkt og gleðiríkt viðmót hennar
var öllum augljóst. Umhyggja henn-
ar og ástúð gagnvart öðrum var
einstök. Það hafði Guð gefið henni
í samfélaginu við sig. En umhyggj-
an náði lengra, því Jóhanna var
trúföst í fyrirbænastarfinu, þar sem
hún daglega bar menn og málefni
fram fyrir hástól Drottins. Hún bað
án afláts í trausti til fyrirheita hans
sem allt vald hefur á himni ogjörðu.
Það var hennar kall og því kalli var
hún trú í auðmýkt. í Jóhannesi 4.24
segir: „Guð er andi og þeir sem til-
biðja hann eiga að tilbiðja hann í
anda og sannleika." Slíkur tilbiðj-
andi var Jóhanna Einarsdóttir. Hún
jós með fögnuði af lindum hjálpræð-
isins í kirkjunni sinni, á kristniboðs-
samkomum og í KFUM og K, auk
einkalesturs. Þarna átti hún sælar
stundir við fætur frelsara síns,
Drottins Jesú Krists er var henni
allt. Hún var frátekin til þessarar
þjónustu fyrir hann. Jóhanna kunni
mikið í Ritningunni utan bókar, svo
og í sálma- og söngbókum og sífellt
þráði hún að gefa öðrum hlutdeild
í þessum auði sínum. Því var mál-
efni Drottins henni svo kært, hvort
heldur hér heima eða úti á kristni-
boðsakrinum. Fómfysin til þessa
málefnis var líka einstök. Margir
standa í þakkarskuld við hana og
þar á meðal þau er þetta rita. Við
viljum þakka Guði sem gaf okkur
hana og fyrir allt sem hún gaf og
var okkur.
Megi almáttugur Guð styrkja og
blessa alla ástvini hennar nær og
fjær, svo og málefnið sem henni
var svo kært, vitandi að trúr er
hann sem hefur kallað, að hann
muni koma því til leiðar.
„Guði séu þakkir sem gefur oss
sigurinn fyrir Drottin vom Jesúm
Krist." 1. Kor. 15.57.
Sigurlaug og Bjarni
SAMBAND FISKVINNSLU
STÖÐVANNA
BOÐARTIL
RAÐSTEFNU
UM NÝSKIPAN
GJALDEYRISMÁLA
■flflflHH^HHBHIHHI
Frummælendur:
Dr. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri,
dr. Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri
og dr. Þorvaldur Gylfason, prófessor.
Fundarstjóri:
Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri.
Staður:
Hótel Saga, salur A.
Tími:
Föstudagurinn 8. apríl kl. 12.15 - 15.30.
Ráðstefnan er öllum opin.
Þátttaka tilkynnist í síma 25455.
Þátttökugjald er kr. 1.500,-
Hádegisverður er innifalinn í verðinu.
Stjóm SF.
Með Ijósleiðara beint frá Skyggni fœrum
við þér það nýjasta og skemmtilegasta úr
öllum heiminum beint inn á herbergi til þín.
í þriðja lagi getur þú að sjálfsögðu horft á
ríkissjónvarpið og í fjórða lagi er okkar
vinsœla myndbandakerfi í gangi.
Þar að auki getur þú fylgst með nýjustu
fréttum í gegnum CNN fréttasjónvarp allan
sólahringinn.
HOTIIL
FLUGLEIDA
HOTEL
Við erum ekki bara í miðri borginni heldur
erum við í nánum tengslum við veröldina.
leiðandi hótel í stöðugri endurnýjun