Morgunblaðið - 06.04.1988, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1988
59
um hugljúfa og milda manni sem
ekkert aumt mátti sjá. Hann hefur
nú leyst landfestar í síðasta sinn
og siglt á strönd eilífðarbirtu, þar
sem engir skuggar eru, en undan-
gengnir ástvinir taka honum fagn-
andi.
„Af eilífðar ljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir."
(Einar Ben.)
Við leiðarlok er mér efst í huga
þakklæti fyrir að hafa þekkt Hilmar
Norðfjörð og notið vináttu og
tryggðar sem hann sýndi mér og
fjölskyldu minni af hug og hjarta.
Eftirlifandi afkomendum hans
votta ég samúð mína. Megi hann
hvíla í friði.
Gunnar Valvesson
Á þessu ári eru 26 ár síðan Hilm-
ar Norðfjörð kom inn í stjórn Sam-
bands dýraverndunarfélaga ís-
lands. Hann tók þá við embætti
gjaldkera og gegndi hinu vanda-
sama starfi af stakri trúmennsku
alla tíð síðan.
Hilmar Norðfjörð fékk ég að
þekkja í fimmtán ár — eða síðan
við fórum að starfa saman með
dýraverndunarmálum og þar til
hann lést. Hann tók á móti mér
opnum örmum þegar ég kom inn í
stjórnina og á samstarf okkar bar
aldrei skugga.
Hilmar var einstaklega ráðhollur
maður og þess naut ég sannarlega.
Otal stundir áttum við saman í litlu
skrifstofunni hans eða við borð-
stofuborðið yfir kaffibolla og ég gat
notað allan þann tíma sem ég vildi
til þess að ræða málin, leita lausna
— eða bara kvarta yfir því illa mér
fannst stundum þetta ganga allt
saman. Aldrei nokkurn tíma varð
ég vör við að ég væri að sóa tíma
hans. Þvert á móti var tekið á
móti mér, í hvert einasta skipti sem
ég kom, eins og ekkert væri honum
meiri ánægja en að ég skyldi líta
inn. Á tímum hraða og streitu eru
slíkir menn fágætir og minningin
um að hafa átt slíkan mann.að vini
er óumræðilega hlý og góð.
Þeir eru margir sem áttu Hilmar
að vini. Hilmar hafði svo stórt hjarta
að það rúmaði alla sem þangað vildu
leita — hvort sem það voru skyld-
menni eða vandalausir.
Nú vorar á íslandi. Þetta vor
bíður ekki Hilmars Norðfjörð. Hann
lifði langa ævi þar sem skiptust á
skin og skúrir. Það var þroskaður
maður sem kvaddi á sínu ævikvöldi
— hann kunni þá list að njóta
augnabliksins og gefa það vinum
sínum, sem skínandi perlu í safn
minninganna. Ég kveð hann hinstu
kveðju með hluta úr ljóði eftir Stein
Steinarr:
„Ég sakna þín, ég syrgi farinn vin,
í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn,
er hóf sig yfir heimsins dægur-glys.
Á horfna tímans horfi ég ’endurskin,
ég heyri ennþá glaða, þýða róminn,
frá hreinni sál með hárra vona ris.“
Dætrum hans og barnabömum
votta ég innilega samúð.
Jórunn Sörensen
Minning:
Ingibjörg Judit
Sigmarsdóttir
Fædd 7. apríl 1928
Dáin 25. mars 1988
„í dag felldu blómin mín blöðin sín.
Og húmið kom óvænt inn til mín.
Ég hélt þó að enn væri sumar og sólskin."
(Tómas Guðmundsson)
Þessar línur skýra vel hvernig
mér varð innanbrjósts þegar ég
frétti að hún nafna mín, Ingibjörg,
væri alvarlega veik og ekki væri
von um neinn bata.
Fyrstu viðbrögð mín voru afskap-
lega barnaleg og eigingjöm því mér
fannst vera búið að rífa nógu mikið
í burtu frá mér þó að hún nafna
mín bættist ekki í hópinn. Svo fór
ég að hugsa um að ekki væri miss-
ir minn mestur því önnur eins eigin-
kona og móðir var vandfundin.
Nú þegar ég heyri um andlát
hennar er efst í huga mér þakklæti
til hennar fyrir allt það, sem hún
hefur gert fyrir mig og mína fjöl-
skyldu, þó sérstaklega hversu góð
hún var ömmu minni eftir að móðir
mín dó. Þá sýndi Bússa, eins og
hún var alltaf kölluð, hversu stór-
kostleg manneskja hún var því hún
kom ömmu í dóttur stað á svo
margan hátt þó hún hefði vafalaust
nóg á sinni könnu fyrir. Þetta lýsir
Bússu betur en margt annað því
hún var ætíð reiðubúin að hjálpa
og hugga ef eitthvað á bjátaði.
Ekki get ég greint frá bernsku
Bússu, til þess veit ég of lítið. En
frá því að ég man fýrst eftir mér
var Bússa besta vinkona mömmu.
Þær ólust upp í Innbænum á Akur-
eyri og voru alltaf mjög samrýndar
þó ólíkar væru. Þegar þær hittust
var alltaf kátt á hjalla og margur
kaffibollinn drukkinn og margar
sögur sagðar og sumar alveg ótrú-
legar.
Ég gleymi því aldrei þegar ég
var 5 ára og var send til Bússu í 3
vikur meðan mamma var veik. Þá
reyndist Bússa mér afskaplega góð
og skilningsrík því ég hafði aldrei
farið frá mömmu og pabba fyrr,
og var ábyggilega ekki þægasta
bam, sem til var. Eftir að mamma
dó og ég fór í skóla suður sáumst
við sjaldan, en þó kom ég til henn-
ar þegar ég kom til Akureyrar og
urðu þá alltaf fagrraðarfundir. Þeg-
ar við Bússa sátum í eldhúsinu og
þömbuðum kaffi eins og okkur var
einum lagið, var eins og mamma
væri aldrei langt undan. Ég mun
sakna þeirra alveg afskaplega mik-
ið. Þó er huggun harmi gegn að
nú fá þær að hittast á ný, allar
vinkonurnar þrjár úr Innbænum,
það er að segja Sigrún, sem var
æskuvinkona þeirra en dó úr berkl-
um aðeins 18 ára, Ásta móðir mín
sem dó fyrir 8 árum og nú bætist
Bússa í hópinn.
Ég votta Ragnari, Sigurði og fjöl-
skyldu hans samúð mína og veit
að minningin um frábæra konu sef-
ar sorgina þó að sama rósin vaxi
aldrei aftur, eins og sagði í uppá-
haldslagi þeirra vinkvenna.
„Og nú kom haustið! Á kné ég kraup.
Að köldum veggnum ég höfði draup.
Og kyssti blómin sem blikknuð láp.“
(T.G.)
Ingibjörg S. Benediktsdóttir
Hinn 25. mars sl. lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri góður
vinur, Ingibjörg Judit Sigmarsdótt-
ir, sem við kölluðum ávallt Bússu.
Hún hafði þá átt við veikindi að
stríða en engan óraði fyrir því að
hún yrði kölluð til annarra starfa
svo skjótt.
Eiginmaður hennar, Ragnar
Malmquist, sonur og aðrir fjöl-
skyldumeðlimir, hafa átt erfíða
daga um hríð þegar ljóst var að
hveiju stefndi og að hinn mannlegi
máttur gat ekki fengið stöðvað vilja
skaparans hvernig svo sem reynt
var. Hún lifir nú í minningunni og
verk hennar tala fyrir hana nú eins
og alltaf áður.
Bússa _ var æskuvinkona móður
minnar, Ástu Ottesen, sem lést fyr-
ir nokkrum árum, og lágu leiðir
þeirra oft saman og iðulega þrátt
fyrir að mamma flytti frá Akur-
eyri. Dvöldum við systkinin oft heilu
vikurnar hjá Bússu og Ragnari og
var hugsað um okkur eins og við
værum þeirra eigin börn. Heimiíið
þeirra var rólegheitastaður og allt
svo skipulagt og fallegt í kringum
þau, róleg og yfirveguð hjón sem
létu ekki mikið á sér bera en gáfu
meira af sér en flestir sem ég hef
kynnst. Þegar mamma dó gekk hún
þegjandi og hljóðalaust í hennar
hlutverk og annaðist ömmu mína,
Jónínu Jónsdóttur, svo og Eið Bald-
vinsson, eins og hún væri þeirra
eigin dóttir. Gestrisnin var mikil og
hún var snillingur í veisluhöldum,
en Bússa valdi vinina vandlega, var
hlédræg þegar ókunnugir voru í
kring en lék á alls oddi við fjól-
skyldu og vini. Ég minnist þess aldr-
ei að hafa heyrt hana tala illa um
nokkurn mann en án efa hefur ein-
hvern tíma verið gert á hennar hlut.
Gleðistundirnar, sem við áttum
saman fjölskyldurnar heima á
Húsavík, eru efstar í huga núna
þegar við systkinin hugsum til
Bússu. Við rifjum upp þegar
mamma og hún voru oft óstöðvandi.
af hlátri út af ótrúlegustu hlutum,
svo sem misheppnuðum tertubotn-
um. Einnig á Italíu þegar við misst-
um þær báðar út af hjólabát og
máttum hjóla með þær báðar, skelli-
hlæjandi, varla syndar, í togi alla
leið að ströndinni. Einnig þegar þær
stöllur tvímenntu á stóru reiðhjóli,
hjóluðu síðan beint á tré og sátu
þar algjörlega ósjálfbjarga enda
hafði hvorug hjólað síðan í bam-
æsku.
Þessar stundir gleymast ekki og
um leið og ég þakka þessari bestu
vinkonu mömmu alla greiðasemina
votta ég Ragnari, Sigurði og fjöl-
skyldunni samúð mína og fjölskyldu
minnar. Við vitum að án efa er vel
tekið á móti henni á því heimili sem
hún nú gistir. Sorg okkar og sökn-
uður er mikill þó svo að vitað sé
að gleði fylgir nýju lífi.
Þrátt fyrir að við gleðjumst þeg-
ar bam fæðist í þennan heim höfum
við enn ekki náð þeim andlega
þroska að gleðjast þegar vinir fæð-
ast inn í annan.
Góður Guð, fylgdu henni og fjöl-
skyldu hennar alla tíð.
Jónína Benediktsdóttir
SOKKABUXURNAR
SEM PASSA.
C
Fjölbreytt úrval!
Örugglega eitthvað fyrir þig.
Þú velur þína stærð eftir stærðatöflunni á Leggs söluhillunum.
Þunnar og fallegar á fæti,
falla þétt að maga og mjöðmum,
styrkt tá, stærðir A,B,Q.
Blátt egg og hólkur.
A
Nuddsokkabuxur, sem örva,
blóðrásina við hverja hreyfingu
Falleg glansáferð.
Styrkt tá, stærðir A,B,Q.
Silfurlitt egg og hólkur.
Nuddsokkabuxur, mjög stífar
að ofan hafa sömu
eiginleika og Sheer Energy.
Stærðir B,Q.
Silfurblátt egg og hólkur.
Leggs hnésokkar, 2 pör í eggi, extra breið teyja.
Samkvæmissokkabuxur.
Líta út og eru viðkomu eins
og silki. Einnig fáanlegar
stífar að ofan.
Stærðir A,B,Q.
Glært egg - grár hólkur.
Vetrar Leggs. 50 den þykkar,
í fallegum litum.
Einnig fáanlegar stífar að
ofan. Stærðir A,B,Q.
Glær egg - hólkar lýsa litum
s
Tískulitir frá Leggs.
Vanalegar sokkabuxur og
einnig stífar að ofan.
Stærðir A,B,Q.
Glær egg.
Einkaumboð:
íslens£7////
Ameríska