Morgunblaðið - 06.04.1988, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 06.04.1988, Qupperneq 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988 Dr. Þorbjöm Sigurgeirs- son prófessor - Minning Sjá bls. 30-31 hagnýtrar þekkingar, jafnvel þótt starfsaðstaða tii slíks væri afar bágborin. Þetta vakti fyrirheit um enn betri árangur með bættri að- stöðu, þannig að framsýnir stjóm- endur treystu sér til að leggja fé til uppbyggingar hennar úr lands- sjóðum. Þorbjöm Sigurgeirsson, sem nú er kvaddur, var einn þeirra sem áttu mestan þátt í að byggja upp tiltrú á íslenska rannsóknastarf- semi. Hann hafði þegar komist í fremstu röð vísindamanna á fleiri en einu sviði eðlisfræðinnar, er hann var skipaður fyrsti prófessor í þeirri grein við Háskóla íslands 1957. Oðrum er eflaust betur kunnugt en undirrituðum að greina frá starfi hans að kennslu, stjómun og bygg- ingaframkvæmdum við háskólann, en hann ýtti um það leyti úr vör mörgum verkefnum í jarðeðlis- fræði. Má telja upphaf hvers um sig stóratburð í sögu íslenskra rann- sókna: segulmælingastöð, tvívetnis- og geislavirknimælingar, athuganir á segulstefnu hrauna, flugsegul- mælingar, ýmsar eðlisfræðilegar eldfjallarannsóknir og aldursgrein- ingar á bergi svo eitthvað sé nefnt. Lausnum Þorbjöms á þessum verk- efnum fylgdu meiriháttar nýjungar í tækjasmíð og tilraunaaðferðum, og var sérstaklega lærdómsríkt fyr- ir yngri samstarfsmenn að fylgjast með markvissum vinnubrögðum hans. Fram að þeim tíma hafði hver raunvísindamaður • hérlendis unnið að mestu einn síns liðs, en Þorbimi fannst sjálfsagt að deila út vinnu um lausn verkefna, og sá hann þá í hveijum manni þá eigin- leika er best gátu nýst til fram- gangs verkefnisins. Vildi hann síðan jafnvel ekki að sín væri getið í ritsmíðum um árangur, þó hann væri upphafsmaður verks og hefði lagt því dijúgt veganesti. Ósérhlífni Þorbjöms, Qölhæfni og þrautseigju við rannsóknir sínar var við bmgðið, og má þar sérstak- lega nefna flugseguimælingar hans. Á þeim byijaði hann 1965 með seg- ulmæli af nýrri gerð í þyrlu Land- helgisgæslunnar, og var mælirinn smíðaður við Háskóla íslands að meðtöldum einföldum sjálfvirkni- búnaði til aflestra. Síðan var smíðaður þar annar segulmælir af byltingarkenndri gerð er hentaði betur eins hreyfils flugvél, ásamt öflugu gagnasöfnunartæki, og voru þróaðar nokkrar kynslóðir af þeim búnaði auk staðarákvörðunartækja af þremur mismunandi en mjög fullkomnum tegundum. Um leið sá Þorbjöm sjálfur um að fljúga yfir allt landið til mælinga á þéttum fluglínum cil 1980, skipulagði það verk og vann mikið að frágangi gagnanna ásamt stúdentum og tæknimönnum. Segulkort hans af landinu, er út komu á níu blöðum á ámnum 1970—85, vom því ein- stakt þrekvirki. Em þau einnig náma upplýsinga um jarðfræðilega byggingu Islands, sem lengi mun verða öðmm rannsóknum til mikils stuðnings. Eftir að Þorbjöm dró sig í hlé frá störfum vegna heilsubrests fyrir þremur ámm, fylgdist hann af áhuga með framhaldi flugmæl- inganna og veitti góðar ábendingar um úrvinnslu þeirra. Annar hæfileiki Þorbjöms Sigur- geirssonar, sem vel kom fram í rannsóknum hans við segulmæling- ar á bergi, var sá að geta skilið aðalatriði frá aukaatriðum og ein- beitt sér að þeim þáttum verkefna sem mestu máli skiptu. Þannig urðu vandaðar greinar hans og dr. Trausta Einarssonar um þær mæl- ingar á seguistefnu í íslenskum hraunlögum, sem þeir hófu 1953, strax þekktar um allan heim meðal jarðvísindamanna. Er það viður- kennt að þær greinar áttu sinn þátt í að ryðja braut nýrri heimsmynd jarðfræðinnar á næstu tveimur ára- tugum, enda reyndust hraunlög hér sérlega vel til slíkra rannsókna fall- in. Er ennþá oft vitnað f tímaritum og fræðibókum til skrifa Þorbjöms og Trausta um það verkefni, og sömuleiðis hafa aðferðir þeirra orð- ið ómissandi við kortlagningu á berggrunni íslands síðan. Jafn- framt má þó sjá í tímaritsgreinum um eðli segulsviðs jarðar, að vísindamenn „sólvermdir í hlýjum garði" erlendis eru sumir enn að prófa, með mun lélegri efniviði, staðreyndir sem Þorbimi voru orðn- ar ljósar fyrir þijátíu árum. Menn með hæfiieika Þorbjöms eru allt of sjaldséðir, en það er þó fyrst og fremst vegna þeirra að við sem fetum í slóðum, getum borið höfuðið hátt ojg talið það einhvers virði að hér á Islandi séu stundaðar vísindarannsóknir. Landið verður ríkara og sjálfstæðara um alla framtíð af ávöxtum starfs hans. Blessuð sé minning Þorbjöms Sig- urgeirssonar. Leó Kristjánsson Þorbjöm Sigurgeirsson var brautiyðjandi í rannsóknum í eðlis- fræði og á sumum sviðum jarðeðlis- fræði hér á landi. Orðið brautryðj- andi á hér vel við, því að Þorbjöm var ekki bara frumkvöðull sem benti á leiðina, heldur ruddi hann braut- ina, svo að aðrir ættu greiða götu. Hann ætlaðist ekki til að aðrir sköp- uðu aðstöðu fyrir hann, en vann að þvf sjálfur að skapa aðstöðuna, fyrir sig og aðra. í hveiju verkefni sem hann fékkst við, vann hann öll þau verk sem vinna þurfti, án tillits til þess hvers eðlis þau voru. Þetta einkenndi öll hans störf, ekki bara rannsóknarstörf. Þetta, samfara miklum hæfileikum, þekkingu, hug- myndaauðgi, útsjónarsemi, dugnaði ogþrautseigju gerði það að verkum, að ævistarf Þorbjöms varð svo ár- angursríkt, sem raun ber vitni. Samstarf okkar Þorbjöms hófst á fyrslu ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna um friðsamlega nýtingu kjamorku, sem haldin var í Genf í Sviss í ágúst 1955. Þar vomm við fúlltrúar íslands ásamt Kristjáni Albertssyni, sendifulltrúa í París. Við vomm þá einu eðlisfræðingam- ir hér á landi, en sá þriðji, Páll Theódórsson, var þá um það bil að Ijúka námi. Þorbjöm var þá framkvæmda- stjóri Rannsóknaráðs ríkisins, en við því starfi tók Þorbjöm eftir Steinþór Sigurðsson. Það segir nokkuð um starfsmöguleika raun- vísindamanna á þessum ámm, að annar þessara manna var stjömu- fræðingur, en hinn eðlisfræðingur. Þeir þurftu báðir fyrst og fremst að sinna hagnýtum verkefnum, svo sem móvinnslu og þaravinnslu. Þor- bjöm einskorðaði sig ekki við hrein vísindaleg verkefni innan eðlis- fræðinnar, heldur sinnti hveiju því verkefni sem hann hafði áhuga á og taldi sig geta lagt eitthvað af mörkum til. Hraunkælingin í Heimaeyjargosinu er e.t.v. skýrasta dæmið um afstöðu Þorbjöms til verkefnavals. Þorbjöm hafði verið við nám og störf í Danmörku og unnið að rann- sóknum í tilraunaeðlisfræði í Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Hann vann við útreikninga á nýrri gerð hraðla í Kaupmannahöfn 1952— 1953 á vegum Kjameðlisfræði- stofnunar Evrópu (CERN), en hóp- ur frá þeirri stofnun vann þá í Kaupmannahöfn að fræðilegum viðfangsefnum og útreikningum. Þorbjöm hafði alla tíð náin tengsl við danska eðiisfræðinga og Eðlis- fræðistofnun Kaupmannahafnar- háskóla (Niels Bohr-stofnunina, eins og hún var nefnd eftir lát Niels Bohrs). Þessi tengsl hófust með námi hans í Kaupmannahöfn, þar sem hann var bekkjarbróðir Eriks Bohrs, sonar Niels Bohr. Á námsár- unum fékk Þorbjörn styrk úr minn- ingarsjóði um Christian Bohr, bróð- ur Eriks. Við þetta sköpuðust sér- stök persónuleg tengsl við Bohr- fjölskylduna. Á seinni árum, þegar ferðum Þorbjöms til Kaupmanna- hafnar fór fækkandi, en mínum fór fjölgandi, var ég oft spurður: „Hvordan har Sigurgeirsson det?“, nafnið borið fram á sérstakan danskan máta. Sérstaklega man ég eftir því að frú Margrethe Bohr, kona Niels Bohrs, spurði alltaf um „Sigurgeirsson" þegar ég hitti hana. Á námsámnum og við störf í Kaupmannahöfn, þar sem Þorbjörn vann m.a. með J.C. Jacobsen, pró- fessor í tilraunaeðlisfræði við Kaup- mannahafnarháskóla, sem síðar var einn af stoftiendum atómtilrauna- stöðvarinnar í Risö, kynntist Þor- bjöm flestum af eðlisfræðingum Dana, sem störfuðu í Kaupmanna- höfn á fímmta áratugnum og síðar. Þegar Danir hófu undirbúning að því að koma á fót tilraunastöðinni í Risö, fóru þeir að leita að eðlis- fræðingum til starfa þar. Einn þeirra, sem þeir leituðu til, var Þor- bjöm. Á Genfar-fundinum í ágúst 1955 buðu nokkrir úr sendinefnd Dana Þorbimi út að borða. Tilgang- urinn var að fá hann til starfa á hinni nýju rannsóknastöð en hann var ófáanlegur til þess. Hann vildi starfa áfram á íslandi, þó að að- staða til eðlisfræðistarfa væri auð- vitað miklu verri þar en í Danmörku og reyndar nánast engin. Honum var auðvitað ljóst, að hann gæti gert meira í eðlisfræði í Danmörku en á íslandi, en aldrei var efi í hans huga um að helga íslandi starfs- krafta sína. Eftir Genfar-fundinn komst mik- ill skriður á kjamfræðamál um allan heim, og þeirra áhrifa gætti einnig hér á landi, eins og síðar verður vikið að. Á Norðurlöndum var farið að ræða um samvinnu þeirra í milli á þessu sviði. Niðurstaðan varð að setja upp norræna stofnun í fræði- legum atómvísindum, Nordita, í Kaupmannahöfn og samstarfs- nefnd um kjamorkumál, NKA. Þor- bjöm tók þátt í undirbúningi að stofnun _ Nordita og var skipaður fulltrúi íslands í stjómina frá upp- hafi 1967 og sat í henni til ársloka 1972, að hann óskaði eftir að ég tæki sæti hans. Eftir Genfar-fundinn 1955 var Kjamfræðinefnd íslands stofnuð. Fmmkvöðlar að stofnun hennar voru, auk Þorbjöms, verkfræðing- amir Gunnar Böðvarsson, Jakob Gíslason, raforkumálastjóri, og Steingrímur Jónsson, rafmagns- stjóri. Undirritaður var ráðinn framkvæmdastjóri nefndarinnar. Þar kom fram náið samstarf og gagnkvæmur skilningur milli verk- fræðinga og eðlisfræðinga, sem áttu mikinn þátt í uppbyggingu rannsókna í eðlisfræði og jarðeðlis- fræði hér á landi. Þorbjöm var sjálf- sagður formaður nefndarinnar og gegndi hann því starfi þar til er nefndin var lögð niður 1964, en þá var meginmarkmiðunum náð. Eitt af því markverðasta var stofnun „rannsóknastofu til mælinga á geislavirkum efnum", en fyrsta hugmynd að henni varð til í Genf í ágúst 1955. í kjölfar þess kom stofnun prófessorsembættis í eðlis- fræði við verkfræðideild Háskólans. Þorbjöm var sjálfsagður í það emb- ætti og var skipaður í það 1957. Rannsóknarstofan fékk fljótlega nafnið Eðlisfræðistofnun Háskól- ans. Þorbjöm tók af áhuga og dugn- aði þátt í störfum nefndarinnar, vann m.a. að athugunum og út- reikningunum í sambandi við fram- leiðslu á þungu vatni á íslandi ásamt Gunnari Böðvarssyni og Guðmundi Pálmasyni. Þegar Þorbjöm kom að verk- fræðideildinni vom þar fyrir þrír prófessorar, Finnbogi Rútur Þor- valdsson, Leifur Ásgeirsson og Trausti Eiriarsson, sem verið höfðu máttarstólpar deildarinnar frá stofriun hennar 1945. Þorbjörn hafði um tíu ára skeið verið stunda- kennari við deildina og hafði unnið með Trausta Einarssyni að berg- segulmælingum. Eg bættist svo í þennan hóp 1960. Mér eru enn minnisstæðir deildafundirnir, en á þeim sátu prófessorarnir fimm og dósentarnir Sigurkarl Stefánsson, Guðmundur Amlaugsson og Björn Bjamason. Þar ríkti gagnkvæm virðing fyrir skoðunum annarra, málin voru rædd og skýrð, skoðan- ir mótaðar og sameiginleg niður- staða fengin. Þorbjöm var deildarforseti 1959—1961. Kom þá í hans hlut að vera formaður nefndar sem gerði, að ósk þáv. háskólarektors, próf. Armanns Snævarr, tillögur um rannsóknastofnun í raunvísind- um við Háskóla íslands, sem síðar varð Raunvísindastofnun Háskól- ans. Nefndarstarfið gekk vel enda samstilltur hópur og tillögumar vom tilbúnar vorið 1961. Þetta varð til þess, að háskólarektor gat lagt fram fullmótaðar tillögur um uppbyggingu rannsókna í raunvís- indum við Háskóla íslands, þegar Bandaríkin vildu gefa fé til að minn- ast 50 ára afmælis Háskólans. Sú gjöf varð stofnfé Raunvísindastofn- unar Háskólans. Þorbjöm var form- aður bygginganefndar og sýndi þar dugnað, þrautseigju og ósérhlífni, sem einkenndi öll hans störf. Raunvísindastofnunin tók til starfa 1966. Eðlilegt hefði verið að Þor- bjöm yrði forstjóri stofnunarinnar, en það vildi hanri ekki. Hann vildi helga sig rannsóknum í eðlisfræði og jarðeðlisfræði, og vissi að stjóm slíkrar stofnunar, sem spannaði mörg fræðasvið, yrði tímafrek og erilsöm. Ýmsir möguleikar vom ræddir en loks sagði Þorbjöm við mig: „Magnús, þú verður að taka þetta að þér“ og það varð úr. í tíu ár vomm við Þorbjöm nánir sam- starfsmenn á Raunvísindastofnun- inni, hann sem forstöðumaður eðlis- fræðistofu, en ég sem forstjóri og formaður stjómar. Þorbjöm hafði í raun og vem mestan áhuga á starfseminni á Eðlisfræðistofnun og síðar eðlis- fræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans, enda vann hann þar geysimikið starf. Engu að síður stundaði hann kennslu og rækti stjómunarstörf henni samfara af sömu samvizkusemi, kostgæfni og ósérhlífni og hann sýndi í öllum sínum störfum. Aðstaðan til þeirra starfa í upphafí sjöunda áratugarins var vægast sagt léleg og teldist ekki boðleg nú. Við Þorbjöm höfð- um t.d. eitt herbergi með einu skrif- borði í íþróttahúsi Háskólans til sameiginlegra afnota. Oft hvarf ég frá þegar ég sá að Þorbjöm var þar fyrir og það sama hefur hann áreiðanlega oft gert. Aðstaðan hafði batnað að þessu leyti á síðari hluta áratugarins með tilkomu Raunvísindastofnunar, en skortur á aðstoð var sá sami. Þegar Þorbjöm varð deildarforseti í annað sinn 1969—1971 hafði deildin stækkað og verksvið hennar vaxið, sem kom fram í nýju nafni hennar, verk- fræði- og raunvísindadeild. Þá var hafinn undirbúningur að fullnað- amámi til lokaprófs, BS-prófs, í verkfræði. Einnig var í smíðum ný reglugerð, sem var mikið deiluefni. Fyrrverandi deildarforseti, Loftur Þorsteinsson, eftirmaður Finnboga Rúts Þorvaldssonar, hafði unnið mikið starf í þessum málum og vann áfram að þeim með Þorbimi. Deildarforsetastarfíð hvfldi þungt á Þorbimi, enda vann hann öll þau mörgu verk, sem starfinu fylgdu, án aðstoðar deildarfulltrúa og ann- ars starfsliðs, sem nú er talið sjálf- sagt. Þorbjöm var þeirri stundu fegnastur, þegar hann losnaði úr deildarforsetastarfínu í september 1971 og gat helgað sig starfinu á eðlisfræðistofu. Eg mun ætíð minnast Þorbjörns með virðingu og með þakklæti fyrir að hafa kynnst og unnið með svo mikilhæfum manni. Móður Þorbjöms, Þórdísi og son- um þeirra og fjölskyldum votta ég og kona mín okkar dýpstu samúð. Magnús Magnússon Einn ötulasti brautryðjandi íslenskra raunvísinda er látinn, prófessor Þorbjöm Sigurgeirsson. Þorbjöm fæddist 19. júní 1917 á Orrastöðum í Húnavatnssýslu, son- ur hjónanna Torfhildar Þorsteins- dóttur og Sigurgeirs Björnssonar bónda þar. Þorbjöm kvæntist Þórdísi Þorvarðardóttur árið 1948 og eignuðust þau fimm syni. Framúrskarandi námshæfileikar Þorbjörns komu glöggt fram í menntaskóla, en árangur hans á stúdentsprófí við menntaskólann á Akureyri 1937 tryggði honum „stóra styrkinn". Hann gat því siglt til frekara náms í Kaupmannahöfn, þar sem hann innritaðist í eðlis- fræði við Hafnarháskóla. Þorbjöm gat sér gott orð við háskólanámið sem má m.a. ráða af því að Niels Bohr veitti honum viðurkenningu úr sjóði, sem hafði verið stofnaður til minningar um látinn son Bohrs. Þegar Þorbjöm hafði lokið námi stundaði hann um hríð rannsóknir við Eðlisfræðistofnun Niels Bohrs og síðan í tæpt ár í Svíþjóð. 1945 fór hann til Bandaríkjanna og vann við Princeton-stofnunina við rann- sóknir á geimgeislum. Þorbjöm sýndi í senn dirfsku og metnað þegar hann valdi þetta viðfangs- efni, en með því tók hann sér stöðu við hlið þekktustu eðlisfræðinga heims. Niðurstöður þessara rann- sókna vom mikilvægt framlag til skilnings á eðli fiseinda. Eftir svo frábæran árangur hafa vafalítið beðið hans freistandi möguleikar í Bandaríkjunum, sem um þessar mundir vom að taka ótvíræða for- ustu í ýmsum greinum raunvísinda. Þá kom fram, eins og einnig síðar, að í huga hans var ekki nema um einn starfsvettvang að ræða, enda þótt hér heima biði ekkert nema aðstöðuleysið. Þegar heim kom snéri hann sér að stundakennslu við Menntaskól- ann í Reykjavík og við Háskólann. Árið 1949 var hann skipaður fram- kvæmdastjóri Rannsóknaráðs, og það opnaði honum nokkra mögu- leika til rannsóknastarfa, þótt meg- inhluti þeirra hafi trúlega farið fram í tómstundum hans. Veturinn 1952—53 fékk Niels Bohr Þorbjöm til að vinna við stofn- un sína í hópi eðlisfræðinga, sem varð vísirinn að samvinnu margra Evrópuþjóða í eðlisfræði. Samhliða því að hann reiknaði út hvemig ætti að ná réttu segulsviði í nýrri kynslóð tækja til að framleiða orku- rík kjamaskeyti, kjmnti hann sér ýmislegt sem þá var að gerast í jarðsegulrannsóknum. í áætlun, sem hann sendi stjóm Rannsókna- ráðs undir lok dvalar sinnar í Kaup- mannahöfn, lagði hann grundvöll að stórmerkum rannsóknum í jarð- eðlisfræði hér á landi. Þegar heim kom hófst hann handa að hrinda áætlun sinni í framkvæmd. Hann hóf skipulegar rannsóknir á segulstefnu í bergi ásamt Trausta Einarssyni og skil- uðu þeir merkum niðurstöðum á þessu sviði. Uppbygging eðlisfræði- rannsókna tók fljótt æ meira af tíma Þorbjöms. Hann vann að því að setja á laggimar segulmælingastöð í Leirvogi, en stöðin er enn mikil- vægur þáttur í rannsóknum Raun- vísindastofnunar í jarðeðlisfræði. Þorbjöm var frumkvöðull að stofn- un Kjamfræðanefndar og var for- maður nefndarinnar allan starfs- tíma hennar, eða frá 1956 til 1964. Kjamfræðanefndin reyndist áhrifa- mikill hópur við eflingu raunvísinda hér á landi. Þar sameinuðust fjöl- margir vísinda- og tæknimenn í átaki til að koma á fót rannsókna- stofu til að nýta möguleika geisla- virkra efna bæði við Háskólann og Landspítalann. Að tillögum nefnd- arinnar samþykkti alþingi vorið 1957 að stofna nýtt prófessors- embætti í eðlisfræði við Verkfræði- deild Háskólans og að komið skyldi á rannsóknastofu til mælinga á geislavirkum efnum, er lúta skyldi stjóm hins nýja prófessors. Þor- bjöm var skipaður í stöðuna haust- ið 1957 en rannsóknastofan tók til starfa 1. janúar 1958 og tók Há- skólinn þá við rekstri segulmæl- ingastöðvarinnar í Leirvogi. Enda þótt hin nýja stofa fengi í fyrstu aðeins fjárveitingu til að greiða for- stöðumanni og einum sérfræðingi laun, en nánast ekkert fé til tækja- kaupa, virtist þetta ekki valda for- stöðumanninum venilegum áhyggj- um. Hið þrönga nafn, „stofa til mælinga á geislavirkum efnum“ var fljótt lagt niður og starfseminni gefið heitið „Eðlisfræðistofnun Há- skólans". Með hjálp hins nýstofnaða vísindasjóðs gat Þorbjöm fljótlega ráðið ungan rafmagnsverkfræðing til að smíða segulmæli af nýlegri gerð og jafnframt var haldið áfram hönnun og smíði geislamælinga- tækja, tækni sem sérfræðingur stofunnar flutti með sér frá Dan- mörku. Með þessu hófst þrátt fyrir erfiða aðstöðu furðuöflug tækja- smíði, sem alla tíð síðan hefur fylgt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.