Morgunblaðið - 06.04.1988, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 06.04.1988, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1988 73 Rektorskjör í HÍ á föstudag: Enginn býður sig fram gegn Sigmundi REKTORSKJÖR verður í Há- skóla Islands næstkomandi föstu- dag. Að sögn Jóns Friðjónssonar dósents, formanns kjörstjórnar, er ekki uppi hreyfing um mót- framboð gegn Sigmundi Guð- bjarnasyni, núverandi rektor. Að sögn Jóns eru allir skipaðir prófessorar við Háskólann kjör- gengir til embættis rektors, og eru þeir í raun allir í kjöri, þannig að um sérstakt framboð í bókstaflegri merkingu er ekki að ræða. „Hins vegar hafa oft verið hreyfingar með mönnum til stuðnings ákveðnum einstaklingum, og stundum hefur verið haldið nokkurs konar próf- kjör, sem hefur verið undanfari aðalkosninganna,“ sagði Jón. „Hins vegar er ekkert í þá áttina að ger- ast núna, og þetta er allt mjög slétt og fellt.“ Jón Friðjónsson sagði að kjörtímabil rektors væri þtjú ár, og það væri vaninn að rektor sæti að minnsta kosti tvö kjörtímabil, mönnum fyndist að rektor þyrfti þann tíma til þess að koma málum sínum fram. Atkvæðisrétt við rektorskjör eiga prófessorar, dósentar og lektorar við Háskólann, einnig allir þeir sem eru fastráðnir eða settir til fulls starfs við skólann og stofnanir hans og hafa háskólapróf. Þá hafa allir stúdentar, sem skráðir eru í Háskól- ann tveimur mánuðum fyrir rekt- orskjör, kosningarétt. Greidd at- kvæði stúdenta vega einn þriðja af öllum greiddum atkvæðum. Samtals eru á kjörskrá 4677 manns, 382 kennarar og starfs- menn og 4295 nemendur, að því er segir í fréttatilkynningu frá HI. Rektorskjörið fer fram í aðalbygg- ingu Háskólans og kjörfundur stendur frá klukkan 9-18 föstudag- inn 8. apríl. Sigmundur Guðbjarnason, rekt- or Háskóla Islands. Spítnabrak og rusl við Elliðaárnar. Torfusamtökin: Fallegri borg og strönd STJÓRN Torfusamtakanna átel- ur þann sóðaskap, sem víða við- gengst á óbyggðum lóðum og á bifreiðastæðum í Reykjavík. Ennfremur er bent á að strand- lengjan sé víða eins og rusla- haugur. í frétt frá samtökunum segir, að brýnt sé að borgaryfirvöld taki til hendinni og fegri eldri bæjarhluta Reykjavíkur. Auk þess sé strand- lengjan sóðaleg og óaðgengilegri fyrir borgrabúa en eðlilegt megi telja. „Þetta á t.d. við alla strand- lengjuna að norðanverðu frá mörk- um Seltjarnamess og austur úr. Þá ályktar stjómin að Vesturhöfnin (gamla höfnin) hljóti í framtíðinni að tengjast betur miðbænum en nú er og beinir því til borgaryfirvalda að stefna að því að beina almennri þjónustu (t.d. veitingahúsum og verslunum) í átt að henni, ennfrem- ur að lækka hafnarbakka og hafa þar aðstöðu fyrir smábáta. Tengsl borgarbúa við sjóinn em mikilvæg." Ný ísbúð - Isholt ÍSHOLT — ný íbúð á Réttar- holtsvegi 1, á horni Réttarholts- vegar og Sogavegar opnaði ný- lega. Isholt selur ís og ísrétti úr EMM- ESS ijómaís. Sérstök áhersla er lögð á ís í lítrafötum á hagstæðu verði auk persónulegrar þjónustu. (Fréttatilkynning) Eigandi verslunarinnar ísholts, Sigrún Baldvinsdóttir, sést hér af- greiða viðskiptavin. Við hlið hennar stendur Þóra Jónsdóttir af- greiðslustúlka. III i AS E A Cylinda þvottavélar^sænskar og sérstakar Fá frábæra dóma í neytendaprófunum fyrir þvott, skolun, vindingu (fjölhraða lotuvind- ing upp í 1200 snúninga), taumeðferð, sápu- og orkusparnað. Efnisgæði og öryggi ein- kenna ASEA. Gerðar til að endast. /FOmx Hátúni 6A SÍMI (91)24420 £=onix ábyrgð Reykhyltingar Þeir sem útskrifuðust 1950-1951-1952 og 1953, svo og aðrir árgangar sem áhuga hafa: Mætum öll 8. apríl nk. í Goðheimum, Sigtúni 3, Reykjavík, kl. 19.00. Matur og dans. Komum öll og skemmtum okkur saman. Hafið samband við eftirtalda: Eyþóra V. 91-74843 Jóhann W. 91-671105 Þórir M. 92-37680 Ólafur J. 93-11444 Kaplahrauni 7, Hafnarfirði, sími 651960 ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ VERA FÍFLDJARFUR LOFTFIMLEIKAMAÐUR TIL AÐ Þ0RA UPPÍ EFSTA ÞREPIÐ A BRIMRÁSAR TRÖPPU. ÞVÍ.ÞÆR ERU STERKAR 0G ST0DUGAR EN SAMT LÉTTAR 0G MEÐFÆRILEGAR. Vegna tollalækkunar getum við nú boðið 4ra til 12 þrepa tröppur á betra verði en nokkru sinni fyrr. Hafðu samband við sölumann í síma 651960 eða komdu við hjá okkur og líttu á úrvalið. Eigum einnig ávallt fyrirliggjandi vinnupalla og stiga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.