Morgunblaðið - 06.04.1988, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1988
£
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA ?
APTON - SMIÐAKERFIÐ
Ef APTON — Smíðakerfið hentar þörfum þínum, af
hverju hefur þú þá ekki samband við okkur í dag?
Þú gaatir litið við hjá okkur eða hringt. Okkur væri
sérstök ánægja að gera tillögu að hugmynd þinni
síðan gætir þú smíðað þetta sjálf(ur).
Við eigum efnið á lager — sjáumst.
LANDSSMIÐJAN HF.
SÖLVHÓLSGÖTU 13-101 REYKJAVÍK • ÁRMÚLA 23 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI (91) 20680 • TELEX 2207 GWORKS • PÓSTHÓLF 1388
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Hafsteinn Ingólfsson er forstöðumaður skíðasvæðisins á Seljalands-
dal. Með honum starfa fjórir menn við lyfturnar og* snjótroðarann.
Isafjörður:
Mikil gróska í
skíðaíþróttum
ÓVENJULEG gróska hefur verið leiðir orðið að fara margar auka-
í skíðaíþróttum á ísafirði í vetur. ferðir daglega til að fullnægja eftir-
Lætur nærri að rúmlega eitt- spum.
hundrað börn yngri en 13 ára _ Úlfar
hafi stundað æfingar reglulega
í febrúar og mars auk þeirra 30
skíðamanna úr eldri aldursf lokk-
unum sem hafa æft reglulega
um nokkurra ára bil. Fimm þjálf-
arar eru með alpagreinarnar og
tveir í viðbót eru með norrænu
greinarnar.
Að sögn Sigrúnar Grímsdóttur,
eins af þjálfurunum í alpagreinum,
er þarna óvenju áhugasamt og fjöl-
mennt lið ungra fþróttamanna.
Mæting hefur verið mjög góð og
eru þarna greinilega mörg góð
skíðaefni. Þrátt fyrir það að allir
fái sömu þjálfun og meðhöndlun
hjá þjálfurunum verður það svo að
þeir sem skara fram úr hafa meiri
möguleika til dæmis í keppnisferð-
um og öðru slíku. Nú er stefnt að
því að fara með 50 þátttakendur á
Andrésar Andarleikana á Akureyri
19.—21. apríl. Sigrún sagði að mjög
erfitt væri að velja í liðið vegna
góðs árangurs og víst væri að ís-
fírðingar kepptu ákveðið að fyrstu
sætum í öllum greinum. Þótt að-
staða til skíðaíþrótta á Seljalands-
dal hafi eitt sinn verið til fyrirmynd-
ar og með því besta á landinu, er
nú svo komið, vegna margra ára
aðgerðarleysis að jafnvel er um
hættu að ræða fyrir notendur Jyftn-
anna. Því leggja skíðamenn vaxandi
áherslu á að með þeirri miklu upp-
sveiflu sem nú er í skíðaíþróttinni
verði að koma stuðningur ráða-
manna bæjarins svo áframhaldandi
árangur náist. Nógur snjór er nú á
Seljalandsdal og útlit fyrir gott
færi um páskana. Mikill fjöldi fólks
hefur verið að flykkjast hingað vest-
ur undanfama daga og hafa Flug-
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson^
Yngsti flokkurinn sem æfir á Seljalandsdal þetta árið er skipaður 34 sjö ára börnum. Með þeim
myndinni eru þjálfarar, starfsmenn skíðasvæðisins og rútubílstjórinn, Elias Sveinsson.
Úrvalslið þjálfar isfirsku skíða-
mennina. Sigrún Grímsdóttir t.v.
á myndinni hefur þjálfað skíða-
menn í 16 ár, m.a. i Klettafjöll-
um, Kerlingarfjöllum og Alpa-
fjöllum. Sigríður Maria Gunnars-
dóttir aðstoðar Sigrúnu. Á milli
þeirra stendur Grimur, sonur
Sigrúnar. Hann hefur aðeins æft
i tvö ár enda ekki nema fimm
ára. Aðrir þjálfarar i alpagrein-
um eru Guðmundur Jóhannsson,
Þorlákur B. Kristjánsson og
Sigrún Sigurðardóttir. Þjálfarar
göngumannanna eru Svíinn Mats
Westlund og Guðmundur Krist-
jánsson.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson