Morgunblaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988 „IBM SYSTEM/36 HORN í HORN" Stella Víðisdóttir hjá Teppalandi/Dúkalandi Teppaland/Dúkaland hefur tekið IBM tölvur í þjónustu sína til að geta sinnt síbreytilegum tískusveiflu í gólfteppum og dúkum. Sem dæmi má nefna að rósótt gólfteppi eru nú horfin og vinsælast er að leggja parket á gólfin. „Til þess að tryggja gæði Og framboð á nýjustu tísku í gólfefnum hefur fyrirtækið tekið IBM System/36 í notkun. Það má segja að við höfum tölvuvæðst horn í horn , segir Stella Viðisdo „Hér er allt tölvuvœtt" „Við erum meðal annars með við- skiptamannabókhald, lagerbókhald, fjárhagsbókhald, sölustatistik, gjald- kerakerfi og skuldabréfakerfi, ásamt dagbók og skilaboðakerfi. Þá erum við að taka inn tvö ný kerfi, það er lánadrottnakerfi með öllum erlend- um viðskiptavinum okkar og pant- anakerfi sem byggist á sama grunni. Ennfremur erum við með launakerfi, svo og tímaskráningarkerfi og stimp- ilklukkukerfi. IBM hefur tvímælalaust orðið til hagsbóta og það er mikið öryggi að láta tölvuna annast allar upplýsingar. Þá hefur salan aukist mikið síðustu árin og á áreiðanlega IBM þátt í því. Tölvan er mjög tímasparandi og gefur okkur aukið svigrúm til að sinna nýjum verkefnum og bæta þjónustuna," segir Stella Víðisdóttir. ir hja Teppalandi/Dukalandi. „Hrœðsian heyrir sögunni #51" „í upphafi var starfsfólkið hrætt við tölvuvæðinguna en slíkt heyrði fljót- lega sögunni til. Það reyndist miklu auðveldara og skemmtilegra að læra á tölvuna en búist var við. Nú er System/36 mikið notuð sem stjórn- tæki hjá okkur. Ég nota hana töluvert sjálf sem stjórntæki, við áætlanagerð o.fl. Ennfremur gríp ég oft í PS/2 tölvuna, til dæmis við ritvinnslu og áætlanagerð í fjármálastýringu." „Yeljum IBM vegna öryggisins og þjónustunnar" „Menn veltu því mikið fyrir sér hvaða tölvutegund ætti að kaupa þegar fyrirtækið var tölvuvætt. IBM varð fyrir valinu að mestu leyti vegna öryggisins og þjónustunnar sem þeir eru þekktir fyrir. Nú efast enginn um að valið var rétt. Ég get eiginlega ekki hugsað mér stöðu fyrirtækisins í dag án IBM,“ segir Stella Víðisdóttir hjá Teppalandi/- Dúkalandi. Hjá Teppalandi/Dúkalandi eru 35 manns á launaskrá, en að teppalagningarmönnunum meðtöldum teljast þeir 45. Tölvan er af gerðinni milli S/36. „IBM SYSTEM/36 VECNA STAD6REIDSUIKERFIS SKATTA" Alll önnur nýting ú glerinu" „System/36 heldur utan um alla framleiðslu fyrirtækisins. Nýting hverrar glerskífu í skurði hefur mjög mikla þýðingu fyrir afkomuna. Nú höfum við allar aðstæður til að láta tölvuna reikna út nýtinguna þannig að sem minnst skerist frá og fari til spillis. Slíkan búnað tökum við fljót- lega í notkun. Reyndar eru forrit okkar mjög sérhæfð þar sem nánast hver rúða á fslandi hefur sín eigin mál, andstætt því sem gerist erlendis þar sem meira er um samræmingu í hönnun húseininga vegna fjöldafram- leiðslu." „Framleiðslan tengd götuheitakerfi" Hjá Glerborg er framleiðslukerfið tölvuvætt, ennfremur viðskipta- manna- og innheimtukerfi og vinna nú 6 starfsmenn á skrifstofunni við tölvuskjáina: „Allar götur frá árinu 1972 hefur hver rúða sem fyrirtækið hefur framleitt verið skráð í götu- heitakerfi. System/36 gerir það einnig kleift að sameina í einu kerfi fjárhagsbókhald, viðskiptamanna- bókhald, sölu og afgreiðslukerfi ásamt framleiðslukerfi." Skúli Valtýsson hjá Glerborg Glerframleiðsla í íslensk hús er mjög sérhæfð enda er ótrúleg fjölbreytni í gluggastærðum hérlendis. „Með samstarfinu við IBM getum við nú þjónað viðskiptavinum okkar með sérstakri götu- skrá, þannig að ef þeir verða fyrir því óláni að rúða brotnar má finna réttu stærðina og framleiða nýja rúðu með því einu að spyrja tölvuna" segir Skúli Valtýsson hjá Glerborg. „Sórsaukalaus tölvuskipti" „Skipting úr System/34 í System/36 var alveg sársaukalaus en ég man að tölvuvæðingin var mikið mál hjá okkur í upphafi enda tók undirbúningurinn heilt ár.“ Skúli segir að staðgreiðslukerfi skatta hafi orðið þess valdandi að fyrirtækið fékk sér stærri tölvu: „Fyrst bárum við saman IBM og margar aðrar tegundir. Ástæðan fyrir því að við völdum IBM var í fyrsta lagi öryggið. Við tryggðum okkur öryggi í viðhaldi, því að IBM er fyrirtæki sem verður örugglega hér til frambúðar. Þá töldum við IBM tölvuna miklu öflugri og hæfari til að gegna sérsviði okkar en aðrar tölvur," segir Skúli Valtýsson hjá Glerborg. Hjá Glerborg í Hafnarfirði starfa 25 manns, þar af 8 á skrifstofu. Tölvan er hin nýja litla S/36 5363. Hugbúnaður hefur að mestu verið unninn hjá Forritun sf. ARGUS/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.