Morgunblaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.04.1988, Blaðsíða 17
■?SÖX JÍJHA .31 JIUOAdflADUAJ .aiGA.iaHUOflOM dí MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1988 17 Ingvar Andersson sýnir þekktum borgara og safnara gnllsafn sitt. * * sesg * * * . - 11 0» Frá Lffíl 88. hefur tekið miklu stakkaskiptum frá því það kom fyrst fram á sýn- ing-u. Gyllt silfur fengu svo í þessum flokki færeyskt safn, sem Thorolf Björklund sýndi, og eins safn af norsku Pósthoms-merkjunum, sem S.P.G. sýndi. Bæði þessi söfn eru mjög góð og áttu þessi verðlaun skilið. Þá fékk safn Hjalta Jóhann- essonar af íslenzkum uppruna- stimplum stórt silfur, en Hjalti bætir dijúgum við það milli sýn- inga. Hins vegar verður vitaskuld æ þyngra undir fæti hjá honum eins og okkur hinum, sem glímum við eitthvert ákveðið svið, þegar lengra dregur í söfnuninni. — Tvö söfn fengu silfur í þessum flokki. Annað þeirra á Ólafur Elíasson, en það er bundið við Gullfoss-útgáfuna 1931-32, einkum þá á bréfum með alls konar burðargjaldi og svo ýms- um stimplum. Þetta safn er orðið mjög gott á sínu sviði. Hitt safnið á Daninn Torben Jensen. Hefur hann tekið sér fyrir hendur að safna stimpluðum frímerkjum með mynd Kristjáns X., bæði stökum, í tvennd- um (pörum) eða stærri einingum og svo á kortum og bréfum eða snyfsum. í þessum merkjum komu fram alls kyns plötugallar við prent- un og hefur Torben lagt sig í fram- króka við að ná sem mestu slíku saman. Þetta safn sýndi hann í fyrst skipti á HAFNIU 87. í heiðursdeild mátti svo sjá hið einstæða safn úr Þjóðskjalasafni íslands af forfrímerkjabréfum frá 1782 og fram um 1870, þegar frímerki komu fyrst til sögunnar hér á landi, fyrst dönsk frímerki, og síðan íslenzk árið 1873. Margt af þessu hefur verið að koma í leit- imar nú á liðnum árum og var nú sýnt í fyrst skipti hérlendis. Á NORDIU 84 mátti að vísu sjá all- mörg þjónustubréf með skildinga- frímerkjum á úr Þjóðskjalasafni, en síðan hefur mikið bætzt við, sem nú var sýnt í fyrsta skipti hérlend- is. Var þetta safn þess vegna allt annað og víðfeðmara en það, sem menn sáu í Laugardalshöllinni 1984. Ég varð var við það á sjálfri sýn- ingunni, að menn voru hrifnir af henni, þótt hún væri vissulega ekki stór í sniðum. Sýningarsalur Lista- safns ASÍ reyndist ágætlega, en þvi verður ekki neitað, að hann er í minna lagi til frímerkjasýninga. Hins vegar hefur hann upp á marga kosti að bjóða, svo að mér kæmi ekki á óvart, þótt frímerkjasamtök vildu oftar nota hann til þess að kynna frímerkjasöfnun fyrir al- menningi. Sýningargestir urðu fleiri en menn gátu búizt við, en gizkað hefur verið á, að þeir hafi verið nærri 1.500 þá rúma tvo daga, sem hún stóð. Þá veitti maður því at- hygli, að margt ungt fólk kom á sýninguna og þá gjarnan með böm sín. Er það vissulega ánægjulegt, þegar þannig tekst að höfða til al- mennings með skemmtilegu sýning- arefni og í hóflega stórum skömmt- um, ef svo má segja. Svo mikið efni hefur hrannazt upp hjá umsjármanni þessa þáttar, að von er jafnvel til, að næsti þátt- ur birtist að viku liðinni. Ég minni svo að lokum á það, að vel er þeg- ið, ef einhveijir lesendur vilja leggja orð í belg eða koma á framfæri efni til birtingar hér í þættinum. ÞETTA ER DAGURIINN ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ BÍÐA KOMDU Á GAMLA BÍLNUM OG FARÐU HEIM Á NÝJUM VOLVO Glœnýr Volvo fyrir gamla bílinn þinn. Þú borgar 25% út, með andvirði bílsins og/eða peningum. Við lánum afganginn í 18-30 mánuði. ÞETTA ER DAGURINN SKEIFUNNI 15 SiMI 691610 PETTA ER STAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.