Morgunblaðið - 17.05.1988, Page 9

Morgunblaðið - 17.05.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 9 Glæsileg karlmannaföt margir litir. Klassísk snið og snið fyrir yngri menn. Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,- Terylenebuxur kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og 1.795,- teryl./ull/stretch. Gallabuxur kr. 820,- og 975,-, sandþvegnar kr. 875,- Flauelsbuxur kr. 795,- Nærföt, sokkar o.fl. ódýrt. Andrés, Skólavörðustíg 22a, sími 18250. E. TH. MATHIESEN H.F. BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SIMI 651000. FASTEIGNIR Arnarhóll og Borgarbraut 26 Eyra rsveit Fasteignir í eigu dánarbús Þorsteins Jónssonar eru hér með auglýstar til sölu. Tilboðum skal skila til Þorkels Gunnarssonar í Akurtröðum fyrir 31. maí 1988. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Fasteignirnar eru: V2 Arnarhóll Borgarbraut 26. Þorkell veitir nánari upplýsingar í síma 93-86818. LðgreglufétogsRgj^^H Tíundi hver lögreg ur á nú í málaferli Staða lögreglunnar áhyggjuef ni og umn Gagnrýni á lögregluna í könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum á viðhorfi okkar íslendinga til ein- stakra stofnana í landinu kom fram að lögreglan naut hvað mests álits; hins vegar voru til dæmis fjölmiðlar næsta lágt skrifaðir. Hina síðari mánuði hefur borið á vaxandi gagnrýni á hendur lög- reglunni. Er nú svo komið að lögreglunni þykir nóg um og telur að neikvæðir straumar í hennar garð séu farnir að gera lögreglumönnum erfitt að sinna brýnum skyldum. Kom þetta meðal ann- ars fram í viðtali við Jón Pétursson, for- mann Lögreglumannafélags Reykjavíkur hér í blaðinu á laugardag. Þann sama dag birtist viðtal við Böðvar Bragason, lögreglustjóra í Reykjavík, íTímanum. Við þessi tvö viðtöl er staldrað í Staksteinum í dag. Fjölmiðlar og lögreglan J6n Pétursson, for- maður Lögreglumanna- félags Reykjavíkur, segir réttilega í Morgunblaðs- viðtali á laugardag, að það sé ekkert einkamál lögreglumanna, að lög- reglan sé nú í slikri varn- arstöðu gagnvart al- menningi að hann muni ekki annað eins á 30 ára starfsferli sínum. Lög- reglan á að gæta öryggis borgaranna og sé grafið undan tiltrú til hennar dregur það úr getu lög- reglumanna til að sinna brýnum og oft viðkvæm- um skyldustörfum. Jón ræðir sérstaklega um hlut fjölmiðla og segir meðal annars: „Núna er það mjög áberandi að í nánast hverri einustu handtöku er hótað blaðaskrifum. Blöð og fjölmiðlar eru höfð sem grýla á lög- reglumenn. Það virðist vera staðreynd að lög- regiunni hefur ekki tek- ist að halda sínum hlut eftir því sem samfélagið hefur breyst, fjölmiðlum fjöigað og öll umræða opnast. Það er orðið áberandi hvað borgarar, áhorfendur, trufla mikið störf okkar, skipta sér af þeim og láta ekki segj- ast; gefa okkur ekki vinnufrið. Við finnum það líka að fáir virðast standa með okkur. Það er svo komið að lögreglu- menn eru orðnir hræddir við að taka á málunum, það vofir stöðugt yfir ótti við fjölmiðla, kærur, yfirheyrslur, stöðu- og ærumissi." Jón Pétursson segir, að á götunni heyrist að óhætt sé að lenya lögg- una, hún megi ekki veija sig. Þá virðist sem stjém- völd og dómstólar séu stundum á þessu máli. Sumir fjölmiðlar láti sér ekki annt um að kanna báðar hliðar, þegar fund- ið sé að störfum lögregl- unnar; jafnvel sé borið fé í þá sem vilja segja krassandi sögur. Á hinn bóginn geti lögreglu- menn ekld stöðu sinnar vegna rætt einstök mál ofan í kjölinn og þess vegna sé oft aðeins sjón- armiði annars aðila hald- ið á loft. Segir Jón að lögreglumenn vi(ji um- ræður um það til hvers fólk ætlist af lögreglunni og undir lok samtalsins segir hann; „Við vijjum umfram allt halda í það að fólk tejji sig geta leit- að til okkar eftir aðstoð í hvers konar vanda." Hér er fast að orði kveðið um alvarlegt mál. Víða um lönd hefur hlut- ur löggæslu verið mikið til umræðu í stjórnmála- baráttunni; þeim stjém- málamönnum sem vilja halda uppi lögum og rétti í þjóðfélögunum hefur viðast vegnað vel. Skýr- asta dæmið er líklega frá Bretlandi en þar hefur Margaret Thatcher, for- sætisráðherra, hiklaust gengið fram fyrir skjöldu teþ'i hún að lög- regiunni vegið. Má raun- ar segja að eitt af grund- vallaratriðum i stjóm- málastefnu frú Thatcher sé að halda hlut lögregl- unnar sem hæst á loft. Aðsvara fyrir sig í Timanum á laugar- dag er rætt við Böðvar Bragason, lögreglustjóra í Reykjavík, í tílefni af ásökunum í garð lögregl- unnar „vegna ofbeldis og harðræðis" eins og það er orðað i blaðinu. Lög- regiustjóri segir meðal annars: „Ég hef ákveðið að taka upp þá stefnu alfar- ið, að lögreglan svari fyr- ir sig á opinberum vett- vangi að svo miklu leyti sem hún getur upplýst þann þáttínn, sem snýr að henni í kærumálum. Það gest nú ekki öllum að þvi, hér innan stofnun- arinnar. Það verður að gæta að þvi, að lögreglan getur ekki rætt eins opin- skátt um málavextí og margar aðrar ríkisstofn- anir geta gert. Aftur á mótí fer ég fram á það, að hún fái hlutlausa meðhöndiun i Qölmiðlum.“ Lögreglustjóri segir, að fjölmiðlamenn virðist ekki hafa skilning á þvi, að lögreglumenn eigi rétt á að mál þeirra séu grandskoðuð ef þeir sætí ámæli fyrir framgöngu í starfi. Um þetta segir Böðvar Bragason tíl að mynda: „Ég gagnrýni það af einurð, að menn setji þumalskrúfumar á yfirmenn um að þeir taki ákvarðanir, áður en þeir hafa fengið nægileg gögn í hendumar til þess að þær getí verið teknar af skynsemi. Það er í þessu Ijósi sem ég segi, að fjölmiðlum veití ekki af að átta sig á innviðum þessa kerfis okkar. Það er þó ennþá frumregla í íslenskum réttí, að mað- ur er saldaus þar til búið er að sanna sekt hans.“ Um kröfur tíl Iögregl- unnar segir Iögregiu- stjórinn i Reykjavik:„Það verður að gera miklar kröfur tíl hennar og við setjum markið hátt. Til þess er einmitt stofnun eins og Lögregluskóli rikisins og ég held að hann sé ein af þessum stóra forsendum fyrir þvi, að við getum verið með lögreglu sem er treystandi. Lögreglustarfið þarf að læra og það er afskap- lega krefjandi fyrir marga. Menn hætta i lög- reglunni vegna þess að þeim finnst álagið of mikið. Þeir þurfa að vera vel að sér um ýmsa þættí þjóðlífsins og vita hvem- ig beri að bregðast við ólíklegustu og sorgleg- ustu atburðum.“ SKULDABRÉF GLITNIS : \ GUtnlrhf Ávöxtunin er 11,1% yfir verðbólgu. □ Skuldabréf Glitnis hf. njóta mikilla vinsælda sparifjáreigenda. Þau bera háa örugga ávöxtun og velja má milli 11 gjald- daga frá 15. apríl 1989 til 15. okt. 1992. □ VIB sér um kaup og sölu á skuldabréf- um Glitnis hf. Komið við í afgreiðslunni að Ármúla 7 eða hringið í síma 91-681530. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi 68 1530 □ Glitnir hf. er stærsta fjármögnunar=. leigufyrirtækið á innlendum markaði. Eig- endur eru Iðnaðarbankinn, A/S Nevi í Bergen og Sleipner Ltd. í London. □ Eigið fé og eigið áhættufé Glitnis hf. er um 245 millj. króna og niðurstaða efna- hagsreiknings um 2.400 millj. króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.