Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
Þróunarsamvinnustofnun íslands:
Botnfiskveiðar og útflutning-
ur frá Grænhöfðaejjum hafinn
Rætt við Stefán Þórarinsson verkefnisstjóra
VIÐAMESTA verkefni íslend-
inga á sviði þróunarhjálpar er
tvímælalaust aðstoð við upp-
byggingu fiskveiða á Græn-
höfðaeyjum. Undanfarin ár hef-
ur hópur íslendinga starfað á
eyjunum við þróun veiða á van-
nýttum fisktegundum og
vinnslu þeirra. Stefán Þórarins-
son verkefnisstjóri var staddur
hérlendis fyrr í mánuðinum. í
samtali við Morgunblaðið sagði
Stefán að botnfiskveiðar á fjöl-
veiðiskipinu Feng hefðu borið
umtalsverðan árangur. í byrjun
mánaðarins seldi dótturfyrir-
tæki Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna fyrstu tvo gám-
ana af heilfrystum fiski frá
Grænhöfðaeyjum í Evrópu.
„Á grundvelli þeirra tilrauna-
veiða sem við gerðum á árunum
1984-1986 völdum við þann kost
sem virtist vænlegastur. Við förum
hægt af stað til þess að sóa hvorki
okkar fjármunum né innfæddra á
meðan við erum að reyna fyrir
okkur með sölu á afurðunum. En
útlitið er gott og Grænhöfðaeying-
ar hafa það mikla trú á verkefninu
að þeir kosta sjálfir 35 prósent af
því,“ sagði Stefán.
Veiðamar eru stundaðar með
fjölveiðiskipinu Feng sem hefur
verið útbúið til dragnótaveiða í
þessu skyni. Veiddar eru nokkrar
mismunandi físktegundir sem
nefnast Sea Bream og Mullet á
ensku, en íslenskt heiti skortir þar
sem þessi fiskur hefur aldrei sést
hér norður í Dumbshafí. Þetta er
iðulega smár fiskur, um 200-300
grömm. Aflanum er landað í Sao
Vincent þar sem íslendingamir
hafa bækistöðvar sínar.
„í bænum er nýlegt frystihús
sem hefur nánast staðið ónotað frá
upphafí. Þar hafa verið fryst um
20-30 tonn af túnfiski á ári og
kældur krabbi til útflutnings. Tæki
em viðunandi og frystigeymslur
góðar. Við höfum á skömmum tíma
aukið starfsemina um helming,“
sagði Stefán. Hann sagði að dótt-
urfyrirtæki Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í Bretlandi, Brek-
ken, hefði fallist á að selja fískinn
í Evrópu gegn umboðslaunum.
Fyrsti skammturinn átti að fara
til Kýpur.
Árangur metinn
um mitt næsta ár
Dragnótaveiðar hafa ekki verið
stundaðar á Afríkusvæðinu svo
vitað sé. Þær eru eyjarskeggjum
þó ekki með öllu ókunnar. Fiski-
menn hafa lengi stundað veiðar
með landnót. Henni er kastað úr
landi og síðan dregin inn af mönn-
um á fjöru. Við það herpist nótin
saman og smalar fiskinum inn í
pokann. Þessi aðferð er hliðstæð
dragnótaveiðum, að sögn Stefáns,
eini munurinn er að þær fara fram
úti á sjó.
„Athuganir íslenskra fiskifræð-
inga benda til þessi fískur geti
verið góð undirstaða atvinnu. Við
ætlum okkur að láta reyna á þenn-
an möguleika og meta síðan árang-
urinn um mitt næsta ár. Við förum
mjög varlega, nýtum þá fjárfest-
ingu sem fyrir hendi er, bátinn,
frystihúsið og mannskapinn. Þann-
ig er stefnt að því að láta veiðarn-
ar standa undir öllum kostnaði
okkar og ríkisstjórnar Grænhöfða-
eyja,“ sagði Stefán.
„Það verður síðan í valdi Græn-
höfðaeyinga hvort þeir halda
áfram á þessari braut eða ekki.
Eg vona að við munum leggja fram
eitthvað sem er virkilega einhvers
virði. En á hvom veginn sem það
er munum við búa að mjög mikil-
vægri reynslu. Fyrr eða síðar finn-
um við einhveija leið. Minnumst
þess hversu miklum tíma og pen-
ingum var eytt í að þróa loðnuveið-
ar eða úthafsrækjuveiðar við ís-
land til dæmis. Nú vona menn að
gulllaxinn gefi kannski einhvernt-
íman eitthvað af sér. Svo eru líka
dæmi um tilraunir sem hafa ekki
skilað neinum árangri, eins og
veiðar á kolmuna, sandsíli eða
spærlingi," sagði Stefán.
Þróunarríkin ótæmandi
markaður
Aðstoð Islendinga er mikils
Morgunblaðið/Börkur
„Skipsstjóri sem leitar alltaf á
fengsælustu miðin verður aldr-
ei annað en meðaljón. Þeir sem
þora að reyna fyrir sér á
óþekktum stöðum eru afla-
kóngamir," sagði Stefán Þór-
arinsson verkefnisstjóri á
Grænhöf ðaeyjum.
metin á Grænhöfðaeyjum og sagði
Stefán að þar væri þekking okkar
á fískveiðum talin sú yfirgrips-
mesta í heiminum. En hérlendis
eru ávalt uppi einhveijar efa-
semdaraddir um að íslendingar
eigi erindi sem erfiði í þróunarað-
stoð. Er þar skemmst að minnast
ummæla fjármálaráðherra á Al-
þingi í vetur. Stefán segist sann-
færður um að það fé sem íslend-
ingar leggi í verkefnið á Græn-
höfðaeyjum komi okkur ekki síður
til góða.
„í þróunarríkjunum er ótæm-
andi markaður fyrir þekkingu og
það er okkar eina auðlind fyrir
utan fiskinn. En það er ekki fjár-
magnið sem ræður ferðinni heldur
mennirnir sem skipta að sjálfsögðu
við þá sem þeir þekkja. í starfi
okkar í Afríku felst kynning á ís-
landi. Við öflum okkur reynslu og
getum í krafti hennar boðið fram
þjónustu okkar í sambandi við þau
viðamiklu verkefni sem alþjóða-
stofnanir vinna að í þróunarlönd-
unum. Þar eigum við að beita fyr-
ir okkur opinberum fyrirtækjum,
eins og Orkustofnun, Hafrann-
sóknarstofnun eða Sjómælingum
og þegar þau hafa brotið ísinn
geta einkaaðilar siglt í kjölfarið,"
sagði Stefán.
„Venjan er að stórþjóðirnar beiti
sér í þróunarsamvinnu. Gott dæmi
um það er að Evrópubandalagið
hefur þrýst á Grænhöfðaeyinga að
láta af hendi fískveiðiréttindi gegn
fjárhagslegri aðstoð. Það hljómar
svo sannarlega ótrúlega því auð-
lindir eyjanna eru mjög takmark-
aðar og hafa til þessa ekki einu
sinni getað brauðfætt íbúana. Það
traust sem til okkar er borið er
ekki síst til komið vegna þess að
við getum ekki beitt þvingunum.
Styrkur okkar felst í smæðinni og
hann getum við nýtt okkur með
aukinni reynslu og kynningu.
En grundvallaratriðið er að við
getum ekki setið hjá og ætlast til
þess að möguleikarnir komi upp í
hendurnar á okkur. Skipsstjóri sem
leitar alltaf á fengsælustu miðin
verður aldrei annað en meðaljón.
Þeir sem þora að reyna fyrir sér
á óþekktum stöðum eru aflakón-
garnir," sagði Stefán Þórarinsson
verkefnisstjóri á Grænhöfðaeyjum.
ORÐSNILLD 24.-27. MAÍ
INNRITUN TIL 20. MAÍ. HÆTTA Á STAFSETNINGARVILLUM OG RITVILLUM HVERFUR NÁNAST EF PÚ BEITIR ORÐSNILLD (WORD PERFECT) Orðsnilld inniheldurm.a. orðabók með 106.000 íslenskum orðum sem auka má við eftir þörfum notenda. Allar valmyndir og skipanir eru á íslensku.
SÍMI: 621066 EFNI: Skipanir kerfisins • Æfingar í notkun Orðsnilldar • Möguleikar orðasafns • Helstu stýrikerfisskipanir LEIÐBEINANDI: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen, ritvinnslukennari. TÍMI OG STAÐUR: 24. - 27. maí kl. 8.30 - 12.30 að Ánanaustum 15.
MS-DOS 24.-27. MAÍ
INNRITUN TIL 20. MAÍ. SÍMI: 621066 ÞÚ KYNNIST STÝRIKERFI EINKA- TÖLVUNNAR OG MÖGULEIKUM ÞESS Námskeiðið er gagnlegt hverjum þeim sem notar einka- tölvu og mikil þörf er á að a.m.k. einn starfsmaður á hverjum vinnustað hafi þá þekkingu sem hér er boðin. EFNI: Hlutverk stýrikerfa • Innbyggðar skipanir og hjálparforrit • Notkun skipanaskráa • Pípur, síur og té • Skráarkerfi MS-DOS og greinar þess • Stýriforrit fyrir ja • Uppsetning nýrra forrita • Afritataka og daglegur rekstu LEIÐBEINANDI: Björn Guðmundsson. TÍMI OG STAÐUR: 24. - 27. maí kl. 13.30 - 17.30 að Án Æmk O ðartæki r. anaustum 15.
VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í ÞESSUM NÁMSKEIÐUM.
Stjórnunarfélag Islands
TÖLVUSKOLI
— -.I Ánanaustum 15 • Simi: 6210 66
Morgunblaðið/Pétur P. Johnson
Bergur Axelsson svífur yfir hindrunarlínuna á TF-MBL í lendinga-
hluta keppninnar um Haraldarbikarinn en Bergur fékk fæst refsi-
stig keppenda fyrir þann hluta keppninnar.
Flugklúbbur Reykjavíkur:
Sumarstarf vél-
flugmanna hafið
SUMARSTARF vélflugmanna
hófst með keppni sem Flugklúbb-
ur Reykjavíkur stóð fyrir um
Haraldarbikarinn á Reykjavíkur-
flugvelli á sumardaginn fyrsta.
Orri Eiríksson frá Akureyri vann
bikarinn en hann keppti á TF-
TOM sem er af tegundinni Piper
PA-22 Tri-Pacer. í lendingarhluta
keppninnar sigraði Bergur Axels-
son frá Reykjavik en hann keppti
á TF-MBL sem er af tegundinni
Bellanca Citabria.
Keppnin um Haraldarbikarinn var
eins konar upphitun fyrir Norður-
landamótið í vélflugi sem haldið
verður í fyrsta skipti hér á landi á
Helluflugvelli í byijun júlímánaðar
nk. Sjö flugmenn frá Akureyri,
Reykjavík og Selfossi tóku þátt í
keppninni sem skiptist í fjóra hluta:
Gerð flugáætlunar eftir ákveðinni
leið, flugleiðsögu, sérverkefni og
mismunandi lendingar.
í flugleiðsöguhluta keppninnar
áttu flugmennirnir að fljúga ákveðna
leið og halda nákvæma tímaáætiun.
í sérverkefnunum áttu þeir hins veg-
ar m.a. að þekkja ýmis kennileiti á
jörðu niðri eftir ljósmyndum sem
þeir höfðu meðferðis. I lendingar-
hlutanum var keppt í marklendingu
með ftjálsri aðferð, gervinauðlend-
ingu, þar sem notkun vængbarða
var leyfileg, gervinauðlendingu, án
notkunar vængbarða, og lendingu
yfir hindrunarlínu sem var í tveggja
metra hæð frá marklínu.
Yfirdómari í keppninni var Mog-
ens Thaagaard frá Flugklúbbi Sel-
foss en honum til aðstoðar voru fé-
lagar úr flugklúbbum Reykjavíkur,
Selfoss og Vestmannaeyja, þar á
meðal Kristján Kristinssson sem var
yfirdómari í lendingahluta keppninn-
ar.