Morgunblaðið - 17.05.1988, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
25
Nýtt dagYistarheimili
opnað í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær opnaði
fyrir skömmu nýtt dagvistar-
heimili fyrir börn. Rúm verður
fyrir 17 börn á dagheimilisdeild
og 84 börn á leikskóladeildum
á nýja heimilinu. Nafn heimilis-
ins er Hvammur og forstöðu-
kona er Kristjana Gunnarsdótt-
ir.
Bærinn rekur auk Hvamms tvö
dagvistarheimili sem eru hvort
tveggja í senn dagheimili og leik-
skóli. Samanlagður barnafjöldi á
þessum tveim heimilum eru 42
börn á dagheimilisdeildum og 124
börn á leikskóladeildum. Fram-
kvæmdir við byggingu Hvamms
hófust síðla hausts 1987.
Hafnarfjarðarbær rekur auk
þess þrjá leikskóla sem rúma 191
barn, eitt dagheimili fyrir 68 börn,
þar af 10 fötluð, og eitt skóladag-
heimili fyrir 25 böm. Samanlagður
barnafjöldi á dagvistarstofnunum
er því 561 barn, þar af eru 237
dagheimilispláss, 399 leikskól.a-
pláss á skóladagheimili. Til við-
bótar framangreindum dagvistar-
stofnunum bæjarins reka Verka-
kvennafélagið Framtíðin og
Hrafnista í Hafnarfirði dagheimili.
Hjá Verkakvennafélaginu er pláss
fyrir 40 börn en 29 í Hrafnistu.
Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar-
bæjar er Marta Bergmann.
Morgunblaðið/BAR
Börn að leik á hinu nýja dagvistarheimili Hvammi í Hafnarfirði.
Dagvistarheimilið Hvammur í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/BAR
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAR OG
GALVANISERAÐAR
PÍPUR
Samkv.:Din 2440
OQ00 oo o O O C ) O
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRA/j^STALHF
BORGARTÚNI31, SÍMAR 27222 & 21684
Um mánaðamótin stjgu
28.480 Kjörbókareigendur
eittþrep uppávið.
Og fengu 70 milljónir í staðinn.
Já, Kjörbókareigendur góðir, það kom að
því. Þeir sem átt höfðu innstæðu, eða hluta
hennar, óhreyfða í 16 mánuði fengu
reiknaða fyrstu þrepahækkunina nú um
mánaðamótin: 1,4% viðbótarvextir voru
reiknaðirá innstæðuna 16 mánuði aftur í
tímann, samtals 70 milljónir króna. Á
hverjum degi þaðan í frá bætast svo
fleiri og fleiri Kjörbókareigendur við,
sem ná 16 mánaða þrepinu.
Átta mánuðum síðar hefst á sama
hátt, útreikningur á afturvirka 24
mánaða vaxtaþrepinu.
Kjörbókin ber háa vexti auk verð-
tryggingarákvæðis, verðlaunar þá
sérstaklega sem eiga lengi inni, en
er engu að síður algjörlega
óbundin.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna