Morgunblaðið - 17.05.1988, Page 27

Morgunblaðið - 17.05.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 27 sá til kornræktar Jón Eyþórsson og Signrður Nordal Þeir Jon Eyþórsson og Sigurður Nordal voru sammæðra, ættaðir úr Húnaþingi. Jón fór í veðurfræðina, Sigurður í bókmenntirnar. Enginn reyndist Sigurði slyngari á vett- vangi hins ritaða orðs, fjöldi ritsmiða hans er gerður af fágætri íþrótt; þar sem Sigurður Nordal beitti hug og hendi að fomsögum reit skáld um skáld, innsæi hins einstaka ritsnillings lýsir hvem krók sem hugað er að. Mjög kvartaði Nordal hinsvegar undan örðugleik- um við túlkun á íslendingasögum, þar kvaðst hann ekki finna hald- reipi — eða hvar er það að sjá, sem skýrir hvemig munnmæli urðu til? Eða hvaða sagnir vom það sem mótuðust fyrir daga ritunarinnar — og hvemig verða hendur á þeim festar? í rauninni rennir maður nánast blint í sjóinn um uppmna arfsagna og varðveizlu þeirra, segir vitmaðurinn. Verður þessa ekki sízt vart í rannsókn hans á Hrafnkels sögu, sem þó varð víðfræg á sinni tíð og enn er vitnað til sem tíma- mótaverks. Er svo að sjá sem vönt- un Sigurðar Nordal á viðmiðunum sé bein ástæða þess, að hann hætti að mestu útskýringum og túlkunum á fomritum vomm. Og vart er það vafa undirorpið, að þessi er ein helsta ástæðan fyrir því, að hann sendi aldrei frá sér íslenzka menn- ingu, sem átti að verða bautasteinn hans yfír fomritunum. Vekur það því merkilega kennd að sjá Jón Eyþórsson, sjálfan hálfbróður Sig- urðar Nordal, veita markleiðum Húnaþings athygli, skrá þær á blað og spyija spumingarinnar miklu: Hafa landnámsmenn e.t.v. valið sér bæjarstæði eftir fleiri sjónarmiðum en hingað til hafa verið talin? Þama hangir meira á spýtunni en bæjarstæðin. Flest sem ritað hefur verið um hugmyndafræði ís- iendingasagna hefur til skamms tíma mótazt af óljósum vangavelt- um og skáldlegri innsýn manna sem eigi grófu niður í hugarheim fom- rita. Eftir að markleiðimar urðu ljósar hafa aðstæður gjörbreytzt; unnt er nú að skilgreina örðug við- fangsefni af sæmilegri skerpu. Við stöndum einfaldlega ekki lengur verklaus; viðmiðanir blasa við í hverri sveit. Þetta er það sem mestu skiptir: íslendingar hafa nú föst mörk við að miða í fomfræðum. Sagnminnin skýrast beint af tengsl- um við markleiðir og bæjarstæði, unnt er að rannsaka samsetningu þeirra og innri byggingu af tengsl- um við hugmyndafræði hins foma himinhrings. Ekki er ólíklegt, að sú veðurspá Jóns Eyþórssonar, er hann setti fram sem spumingu í Árbók Ferða- félags íslands árið 1964, lifí lengst þess er hann lét frá sér fara. En fróðlegt er í þvi viðfangi að velta því fyrir sér, hvað gerzt hefði í rann- sóknum Sigurðar Nordal, ef hann hefði sezt niður og ígrundað það sem vakti athugli og furðu hálf- bróðurins í heimabyggðunum forð- um. Heimspekileg spuming það. Hefði Sigurður vafalaust sjálfur gert því efni skil í fágætri ritsmíð — væri hann lífs. Höfundur er fræðimaður. Borgarráð: Dómnefnd um Geldinganes BORGARRÁÐ hefur skipað þriggja manna dómnefnd í sam- keppni um framtíðarskipulag i Geldingarnesi en þar á að risa íbúðabyggði. Dómnefíidina skipa Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður skipu- lagsnefndar Reykjavíkurborgar, Ingimundur Sveinsson arkitekt og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fulltrúi Kvennalistans í Borgarstjóm. Leitað verður til Arkitektafélags íslands um að skipa tvo arkitekta í dómnenfndina. Vestur-Eyjafjöll: Bændur noiti. VORIÐ hér undir Eyjafjöllum hefur komið seint. Jörðin hefur verið grá fram undir þetta, en þó er klaki farinn úr jörðu og bændur farnir að undirbúa vor- störf. Þrír bændur undir Vestur- Eyjafjöllum hefja nú í fyrsta sinn kornrækt. Fréttamaður hitti Viðar Bjama- son bónda í Ásólfsskála þar sem hann var að sá til komræktar. Hann sagði að sjálfsagt væri að reyna þessa nýju búgrein og vafa- laust ætti hún hvergi rétt á sér, ef ekki væri hér undir Eyjafjöllum. Þeir bændur á Þorvaldseyri hefðu um árabil stundað komrækt með góðum árangri og eins hefðu Land- eyingar með miklum stórhug ráðist í vélakauð og reist verksmiðju til að vinna komið. Hann, Leifur Ein- arsson í Nýjabæ og Ingi Einarsson í Varmahlíð hefðu ákveðið að sá í akur núna með það í veganesti að Ólafur Eggertsson á Þorvaldseyri ætlaði að hjálpa þeim með því að skera komið í sumar og vera þeim tii styrktar að öðru leyti í þessari ræktun. Vandamálið sem hann væri að glíma við núna væri veiði- bjallan sem bókstaflega hirti fræið af akrinum. - Fréttaritari VEIKASTI HLEKKURINN í TÖLVUKERFINU? Ef tölvukerfið gefur kost á glæsilegri litagrafík, en skjárinn er einungis gerður fyrir einfalda textavinnu í einum lit, nýtast möguleikar kerfisins ekki til fulls. NEC MULTISYNC litaskjárinn tengist öllum almennum hugbúnaði. Hárfín upplausn á 14-20 tommu myndfleti, glampahindrun, sérstök þríhliða litastilling, snúningsfótur með einfaldri hæðar- og NEC hallastillingu - allt hjálpast þetta að við að gera NEC MULTISYNC litaskjáinn einn af þeim allra bestu semvölerá. Láttu ekki skjáinn standa þér og tölvukerfinu þínu fyrir þrifum. NEC MULTISYNC er ávísun á fjölbreytta möguleika og frábært vinnuhagræði. rr3 KRISTJÁN Ó. LLJ SKAGFJÖRÐ HF. Tölvudeild Hólmaslóö 4, sími 24120 Úrvalsþjónusta fagfólks -hröð, alhliða, alltaf. SÖLUSTAÐIR: Andisf. Hverfisgötu 105 125Reykjavík Bókaskemman Fjölkaup hf. Hugtak sf. Stekkjarholti8-10 Laugavegil63 Bíldshöfðal2 300Akranesi 128 Reykjavík 112 Reykjavík EinarJ. Skúlason hf. GunnarÁsgeirssonhf. Hugtaksf. Grensásvegi 10 Suðurlandsbrautlö Vestmannabr. 25 108 Reykjavík 108Reykjavík ÖOOVestm.eyjum íkon hf. Skipholti 50b 105 Reykjavík Traust Miðási 11 700 Egilsstöðum 108 Reykjavík Töluvutæki Bókval Þróun Öm þórtiallsson Kaupvangsstræti4 Tölvu-ogrekstrarraðg. Langholtsvegilll 600 Akureyri Höfðabakkaö 104Reykjavík Tötvuvömrhf. 112Reykjavík Örtötvutækni hf Skeifan 17 Ármúla 38 128 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.