Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 32

Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 Sinubruninn við Elliðavatn séður úr lofti. Morgunblaðið/PPJ Heiðmörk: Sinubruni á fjög- urra hektara svæði Sinueldar kviknuðu hjá Hulduklettum og austan bæjar- ins Elliðavatns á sunnudag og skemmdist gróður á um 4 hekt- ara svæði. Vignir Sigurðsson, eftirlitsmaður Heiðmerkur, sagði ókleift að meta tjónið en Ijóst væri að það væri mikið. Bruninn við Elliðavatn stafaði af gáleysi er ungt barn lék sér að eldi en ekki er vitað um orsakir sinubrunans hjá Huldu- klettum. Fyrri sinueldurinn kviknaði um kl. 16.30 og tók um 3 tíma að slökkva hann. Um það leyti sem því starfi lauk kviknaði hinn sfðari. Vilhjálmur Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, sagði tré hafa skemmst mikið. Erfitt hefði reynst að slökkva eldana þar sem mikil lúpína hefði verið á svæð- inu. Nálæg hús hefðu ekki verið í neinni hættu. Á milli 50 og 100 manns, frá slökkviliði, skógrækt og fólk sem átti leið hjá, unnu við að slökkva eldana. Vilhjálmur sagði enga ákvörð- un hafa verið tekna um bóta- skyldu vegna sinubrunans á sunnudag. „Það þarf að móta reglur um bótaskyldu. Ef menn eru staðnir að verki er hægt að sækja þá til saka en það hefur ekki verið gert hingað til. Þó kom upp eitt tilfelli fyrir nokkrum árum þegar nokkur ungmenni skildu við opinn eld og hann breiddist út. Við höfðum hendur í hári þeirra og sögðum þeim til syndanna. Lyktir málsins urðu þær að ungmennin unnu að gróð- ursetningu í ákveðinn tíma til að bæta fyrir brot sitt. En yfirleitt náum við ekki í gerenduma." Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra: Aðalmálið að koma í veg fyrir víxlhækkun Viöræður um nýtt fiskverö þurfa að hefjast strax „VIÐ erum nú komnir með dag- setningn á aðgerðir sem er nær þeim timapunkti sem menn höfðu hugsað sér, það er 1. júní. En auðvitað stöndum við frammi fyrir sömu stóru vandamálun- um,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra. „Stóra málið er að við höfum orðið fyrir mikilli skerðingu á kjör- um okkar. Spumingin er ekki um að breyta þvi, við getum engu um það breytt, heldur hvemig við jöfn- um tekjuskerðingunni sem réttlát- ast niður. Það er að mínu mati frá- leitt að togast sé á um það hvað kjörin verði skert. Við komumst einfaldlega ekki fram hjá því verð- falli sjávarafurða sem orðið hefur á erlendum mörkuðum og verðum aðtaka það á okkur. í framhaldi af gengisfellingunni er nú sem fyrr aðalmálið að koma í veg fyrir víxlhækkun á verðlagi og kaupi. Sjávarútvegurinn er grundvallaratriði og ef einhver heldur það að kjör þjóðarinnar verði vemduð með því að fískvinnslan verði gjaldþrota verður að leiðrétta þann misskilning. Þeir sem þannig hugsa eru alls ekki málsvarar þess að lífskjörin verði vemduð. í mínum huga er það aðalatriðið að sjávarút- vegurinn fái rekstrargrundvöll. Þeirri spumingu er ósvarað hvort fískverðið breytist 1. júní. Ég tel að fiskverðið verði að hækka eitt- hvað vegna þess að útgerðarkostn- aður hækkar við gengisfellingu, en á það ber að líta að útgerðin hefur búið við bærilegan kost, þó aflasam- dráttur setji strik þar í reikninginn. Eftir þessa gengisbreytingu er afkoma sjávarútvegsins alveg í jámum og hún er til einskins ef ekki verða stöðvaðar víxlhækkanir í framhaldinu. Ef það verður ekki gert munu fiskvinnslufyrirtækin almennt ekki geta haldið áfram og það hefði í för með sér almenna lífskjaraskerðingu. Það er ekki nokkur vafí á því að útgerðin mun skaðast á gengisbreytingunni en staða fiskvinnslunnar var orðin það slæm að ekki varð hjá því komist að breyta tekjuskiptingunni í sjáv- arútvegnum. Það er ekki síður mik- ilvægt fyrir útgerðina að fiskvinnsl- an búi við lífvænleg skilyrði. Nú er ekki eftir neinu að bíða og nauð- synlegt að strax fari í gang viðræð- ur um nýtt fiskverð til að línur skýr- ist betur innan sjávarútvegsins. Framhaldið verður væntanlega það að stjómarflokkamir halda áfram þeim viðræðum sem hófust um helgina. Ég hef aldrei reiknað með að mögulegt yrði að ljúka málinu á stuttum tíma,“ sagði Halldór. Halldór sagði aðspurður að stjómarsamstarfið gæti verið í mik- illi hættu. „Það er hætta á ferðum, bæði fyrir stjómarsamstarfíð og þjóðfélagið í heild," sagði hann. Tap á frystingu þrátt fyrír gengisfellingima: Ekkert svigrúm til fiskyerðshækkunar segir Arni Benediktsson ÁRNI framkæm dastj óri Benediktsson Sambands- Ríkisstjórnin tók skynsamlega á málnm - segir Jón Sigursson viðskiptaráðherra JÓN Sigurðsson viðskiptaráð- ákvörðun og til að koma í veg fyrir herra segir að ríkisstjómin hafi að flæði yfir alla bakka," sagði Jón tekið skynsamlega á málum, mið- að við aðstæður, með því að fresta hliðaraðgerðum vegna gengisfellingarinnnar og leita eftir viðræðum við aðila vinnu- markaðarins. Jón Sigurðsson sagði við Morg- unblaðið að það hefði verið óhjá- kvæmilegt að loka á gjaldeyrisvið- skiptin sl. fimmtudag vegna um- sóknaskriðunnar sem fallið hefði á gjaldeyrisdeildimar og einnig hefði verið nauðsynlegt að opna aftir fyr- ir eðlileg gjaldeyrisviðskipti með mánudagsmorgun. Sú leið hefði síðan verið valin að ákveða stuðn- ingsaðgerðir við gengisfellinguna ekki fyrr en eftir viðræður við aðila á vinnumarkaði en með það vega- nesti í förinni að koma í veg fyrir víxlhækkanir verðlags og launa og líta einnig á verðbindingarákvæði í lánssamningum og hvemig koma eigi í veg fyrir að launaþróun fari úr böndunum hjá þeim félögum sem ósamið eiga. „Þetta tel ég að geti reynst far- sæl byijun á því að komast úr því fari að beita aðeins gengisbreytingu og einhverskonar íhlutun á vinnu- markaði þegar jafnvægisvandi steðjar að, eins og nú er. Þessvegna höfum við Alþýðuflokksmenn lagt fram tillögur um hvemig við viljum stuðla að þessu og þótt ég vilji ekki ræða tillögumarí smáatriðum hljóta þær að snúa fyrst og fremst að því hvemig ríkið beitir ríkisfjármálum og peningamálum til að styðja þessa Sigurðsson Rfkisstjómin steftidi að því að ganga frá stuðningsaðgerðunum með gengisfellingunni um helgina og þegar Jón var spurður hvort því hefði verið frestað vegna þess að stjómin hefði ekki verið nægilega vel undirbúin eða vegna grunvall- arágreinings um leiðir milli stjóm- arflokkanna, sagði hann að ríkis- stjómin hafði stefnt að því að taka sér lengri tíma til ákvarðana í efna- hagsmálum. „Það er einnig svo að í þeim málum eru mörg álitaefni, ekki endilega ágreiningsefni, og margt sem er tæknilega vandasamt og nauðsynlegt að taka í lengrí tíma. Ég nefni sem dæmi að það er nefnd starfandi á mínum vegum til að kanna hugsanlega breytingu á lánskjaravísitölu og verðtryggingar á fjárskuldbindingum. Það er einnig starfandi nefnd til að athuga starf- semi lánamarkaðar utan banka og sparisjóða og í undirbúningi em breytingar á reglum um erlendar lántölur. Þetta eru allt þættir í því máli sem ég tel að hvorki eigj né geti verið ákvörðunarefni á einu síðdegi. Þessi uppákoma endaði á mínum dómi farsællega og ég á von á að forsætisráðherra kveðji aðila vinnumarkaðarins til fundar [í dag, þriðjudag] og flokkamir muni halda áfram sínu starfi. Um ágreining vil ég ekki Qolyrða," sagði Jón. Þegar hann var beðinn um að meta stöðu ríkisstjómarinnar eftir fundi helgarinnar sagðist hann telja að stjómin hefði tekið skynsamlega á þessu máli. „Það em margar kjaradeiiur á viðkvæmu stigi og framundan eru samningar hjá sjó- mönnum. Ég tel að stjómin hafi tekið þessa ákvörðun mjög skyn- samlega miðað við aðstæður. En auðvitað er mikið verk framundan og vandasöm viðfangsefni," sagði Jón Sigurðsson. frystihúsanna segir að 10% geng- isfelling ein sér dugi ekki til að vega á móti tapinu á frysting- unni og gefi ekkert svigrúm til fiskverðshækkunar. „Við höfum heyrt það endurtekið að undanfömu að gengisfelling ein sér dugi ekki. Þetta áttu að vísu allir að vita en samt er það ná- kvæmlega það sem gert er. Það er því allt of snemmt að segja til hvað verður úr þessu en væntanlega á eftir að gera eitthvað meira seinna. Gengisfellingin ein sér dugar ekki til að koma frystingunni á slétt. Hinsvegar er staðan betri í salt- fiskvinnslu þannig að í heild gæti staðan verið nokkumveginn á sléttu," sagði Ámi Benediktsson í samtali við Morgunblaðið. Þegar hann var spurður um áhrif gengisfellingarinnar á fiskverðs- ákvörðun sagðist hann ekki sjá að svigrúm fískvinnslunnar hefði auk- ist. Arinbjörn Árnason píanóleikari. Nýi tónlistarskólinn: Burtfararpróf í píanóleik ARINBJÖRN Árnason (17 ára) lýkur burtfararprófi með opin- berum tónleikum miðvikudaginn 18. maí kl. 20.30 í sal skólans í Armúla 44. Á tónleikaskrá eru eftirtalin verk: Partíta í e-moll nr. 6 eftir Bach, Sonata op. 13 (Pathétique) eftir Beethoven, Ondine eftir Rav- el, tvær Etýður op. 25 nr. 1 og 2 eftir Chopin og Ballaða í g-moll op. 23 einnig eftir Chopin. Kennari Arinbjamar er Ragnar Bjömsson. Aðgangur á tónleikana er ókeyp- is og öllum heimill. (Fréttatilkynning) Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ: Fiskverð þarf að hækka sem nemur gengisbreytingunni Gengisf ellingin of lítil til að bjarga fiskvinnslunni FISKVERÐ þarf að hækka jafn mikið og nemur gengisbreyting- unni til að staða útgerðarinnar verði söm og fyrir gengisfell- ingu, að sögn Kristján Ragnars- sonar formanns Landssambands islenskra útvegsmanna. Hráefn- iskostnaður er um helmingur af kostnaði fiskvinnslunnar og ef fiskverðið hækkaði þetta mikið væri helmingur af ávinningi fisk- vinnslunnar genginn til baka. Kristján sagði að allur útgerðar- kostnaður hækkaði mikið við geng- isfellinguna. Til dæmis hækkuðu verðtryggðar skuldir útgerðarinnar við Fiskveiðasjóð sem næmi gengis- breytingunni, eða um 1,1 milljarð, og olía og veiðarfærakostnaður hækkaði um 300 milljónir kr. Laun- in væm hlutfall af tekjum útgerðar- innar og fæm því eftir fiskverði, en óvissa um breytingar á því. Fisk- verðið hefur ekki hækkað frá því í nóvember en er laust 1. júní. Kristj- án sagði að fískverðið yrði að hækka 1. júní, það stæðist ekki lengur að laun sjómanna, þó þau hefðu verið allgóð, hækkuðu ekkert þegar laun allra annarra þjóðfélags- hópa væm að hækka. Kristján sagði að útgerðarmenn og sjómenn sem seldu ferskan fisk högnuðust á gengisfellingunni, tekjur þeirra hækkuðu strax og yrði fískverðið að hækka í takt við það til að vinnslan væri samkeppn- isfær. Frystitogarar og rækjuskip sem frystu um borð fengju einnig tekjuhækkun strax. „Fiskverðið verður því að fylgja genginu og þegar dæmið er gert upp virðist gengisbreytingin vera allt of lítil til að bjarga fiskvinnslunni. En annars er erfitt að átta sig á þessu þegar allt viðbit gengisfellingarinnar vantar," sagði Kristján.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.