Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.05.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 f Landsbankahlaupið haldið í sumarblíðu SUMARIÐ var greinilega komið þegar krakkarnir voru að gera sig klára við rásmarkið fyrir utan Landsbankann á Akureyri sl. laugardag, en þá var haldið þriðja árið í röð Landsbanka- hlaup. Fyrsta Landsbanka- hlaupið var haldið á 100 ára afmæli bankans fyrir þremur árum. Þátt tóku í hlaupinu 99 krakkar, 10, 11, 12 og 13 ára. Keppt var í fjórum flokkum. Stúlkur og drengir fædd 1975 og 1976 hlupi 1500 metra og stúlkur og drengir fædd 1977 og 1978 hlupu 1100 metra. Elísabet Jóns- dóttir sigraði í eldri stúlknaflokkn- um og Brynja Þorsteinsdóttir í þeim yngri. Ómar Kristinsson sigr- aði í eldri drengjaflokknum og Birgir Örn Reynisson í þeim yngri. Veittir voru verðlaunapeningar fyrir þijú efstu sætin, gull-, silfur- og bronspeningar, auk þess sem allir þátttakendur fengu viður- kenningar, veifur og skyggni. Þá var dregið um tvær kjörbæk- ur með 3.000 króna innistæðu þar sem útibúin eru tvö á Akureyri og komu bækumar í hlut Guð- mundar Freys Sveinssonar og Jó- hönnu H. Pétursdóttur. Samherji hf. leitar að nýjum togara í stað Þorsteins EA: Morgunblaðið/Rúnar Þór 99 krakkar hlupu i Landsbankahlaupinu á Akureyri. Teljum rangt að endur- nýja 20 ára gamalt skip — segir Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri „VIÐ teljum ekki rétt að fara að endurnýja 20 ára gamalt skip. Þess i stað ætlum við næstu vik- urnar að leita fyrir okkur með kaup á notuðu skipi eða nýsmíði," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri Samheija hf. á Akureyri sem gerir Þorstein EA út. Togarinn lenti i ís í Reykja- fjarðarál í marsmánuði með þeim afleiðingum að bolur skipsins skemmdist illa. Sex tilboð bárust Samheija hf. í viðgerð á Þorsteini. Slippstöðin var með næstlægsta tilboðið, 25,8 millj- Nýr eikarbátur sjósettur: Fiskréttir kaupa Bjamveign RE ónir króna, en lægsta tilboðið kom frá skipasmíðastöð í Flensborg, 24,5 milljónir króna. Samheiji keypti tog- arann Þorstein frá Siglufirði í fyrra fyrir 155 milljónir króna og hét skip- ið þá Sveinborg. Þorsteinn Már sagði að með kaupunum hefði fyrirtækið stefiit að endumýjun innan tíðar, en hún hefði ekki verið á döfinni á ár- inu. „Úr því svona fór og viðgerð liggur fyrir upp á tugi milljóna þykir okkur rétt að huga að kaupum nú í stað þess að setja alla þessa íjár- muni í viðgerð. Vel má vera að eitt- hvað af þeim ógrynnum reglugerða, sem búnar hafa verið til upp á síðkas- tið, stöðvi okkur, en við viljum kanna þennan möguleika til hlítar." Þorsteinn Már sagði ljóst að fyrir- tækið hefði orðið fyrir verulegum skakkaföllum. Hann sagðist ekki hafa neitt ákveðið skip í huga enn. „Við ætlum að leita bæði innanland og utan eftir togara, en ekki hefu enn verið rætt um hvort fyrir valim verði frystitogari eða ísfisktogari Öll viðgerðartilboðin hafa verið lögi í ís í bili og höfum við gert öllun tilboðsgjöfunum grein fyrir stöði mála, en engu þeirra hafi verið hafn að. Ef við, á hinn bóginn, komums ekkert áfram með okkar áætlanir oj verðum píndir til þess að gera vii skipið, þá munum við að sjálfsögði hefja viðgerð þó við teljum þ; ákvörðun alranga. Manni finnst um ræða síðustu vikna hafa verið á þí Ieið að offjárfesting í sjávarútveg sé að drepa niður allan gjaldeyris forða landsins og að þeir sem bú gjaldeyrinn til, gerist svo djarfir a< eyða hluta hans I endumýjun skip; sinna," sagði Þorsteinn Már að lok- um. Morgunblaðið/Rúnar Þór Slökkviliðsmenn að störfum sl. sunnudagskvöld. Geymsluskúr brann til kaldra kola GAMALL geymsluskúr brann til kaldra kola í fyrrakvöld. Slökkvilið Akureyrar var kall- að út laust eftir kl. 21.00 og var skúrinn, sem stóð vestan íbúðahverfis við Eikarlund, al- elda þegar komið var að. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða. Skúrinn var í eigu Ragnars Stefánssonar starfsmanns hjá Rafveitu Akureyrar. Engu tókst að bjarga úr skúmum. Stutt var í fjárhús og heystafla og tókst slökkviliðsmönnum að halda eld- inum frá því. Fimmtán slökkviliðs- menn unnu við slökkvistarfið. Morgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson Eigendur og aðstandendur Bjarnveigar RE 98. TUTTUGU og tveggja tonna eik- arbátur var sjósettur á Akureyri um helgina og fer báturinn á hum- arveiðar, sem stundaðar verða frá Reykjavík. Fyrirtækið Fiskréttir hf. kaupir bátinn af Slippstöðinni, sem sá um smiði hans og er hann jafnframt siðasti eikarbáturinn sem þar er smíðaður. Smíðin hefur tekið þó nokkur ár. Kjölurinn var lagður að honum fyrir 13 árum og hafa nokkrir skipasmið- ir Slippstöðvarinnar hlaupið í verkið við og við. Magnús Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Fiskrétta hf. sagði í sámtali við Morgunblaðið að humar- veiðar hefðu verið draumur fyrirtæk- isins í um það bil ár og voru gerðar tilraunaveiðar með þær í um tveggja mánaða skeið í fyrra. „Við vorum þá með bát frá Reykjavík að nafni Óskar Steinn á leigu og voru það fyrstu tilraunaveiðar sem gerðar hafa verið í gildru. Ég hef mikla trú á þessum veiðiskap enda er humar verðmikil vara víðast hvar. Meiningin er að landa humrinum lifandi og flytja hann lifandi út til Frakklands og Sviss þar sem hann verður líklega snæddur á fínum veitingastöðum." Magnús sagði verð á humri mjög gott, brúttóverðið væri þetta 900 til 1.000 krónur á hvert kg. „Við verð- um þijá til fjóra daga úti í einu með um 2.000 gildrur. Við drögum hveija gildru tvisvar sinnum á þessum tíma og þess á milli eru gildrumar látnar liggja í sjónum. Við höfum smíðað nokkrar gildrur sjálfír eftir fær- eyskri hugmynd. Karl Jónsson á Akureyri smíðar fyrir okkur 500 gildrur auk þess sem við fáum gildr- ur frá Skotlandi og Bandaríkjunum og eigum því eftir að prófa hvaða gildrur reynast best,“ sagði Magnús. Magnús sagði að þessi bátur hefði verið eini báturinn sem komið hefði til greina til þessa verkefnis án þess að fella annan bát út í staðinn þar sem smíði hans hófst fyrir árið 1983. í lögum um ný fískiskip við ísland sem sett voru árið 1984 á ekki að vera hægt að koma nýjum bátum inn í íslenska flotann nema því aðeins að annar sé úreltur á sama tíma. Hinsvegar ef byijað hafí verið á smíði skips fyrir 1983 og það ætlað til sérstaks veiðiskapar, féll það ekki undir lögin. Kostnaður við smíði skipsins og kaup á veiðarfærum er um 20 milljónir króna. Magnús sagði að útgerð skipsins væri ekki mjög mikill svo framarlega sem fiskaðist sæmilega. Eigendur Fiskrétta hf., sem er ársgamalt fyrirtæki, eru átta talsins. Fjórir eru búsettir í Reykjavík og ^órir vestur á ísafírði. Fyrirtækið framleiðir ýmsa rækju- og fiskrétti. Skipstjóri á Bjamveigu RE 98 verður Jón Arason. Auk hans verða þrír menn á humarveiðunum. Fjórðungsstjórn Norðlendinga: Tímabundnar að- gerðir duga skammt Fjórðungsstjórn Norðlend- inga telur að raunhæf byggða- stefna eigi ekki að einkennast af timabundnum aðgerðum vegna vanda einstakra fyrir- tækja og byggðalaga, heldur þarf að tryggja til frambúðar grundvöll framleiðsluatvinnu- greinanna og jafna með- því aðstöðu til búsetu í landinu. Þetta var m.a. samþykkt á fundi stjórnarinnar fyrir skömmu. í ályktun, sem stjómin sendi frá sér eftir fundinn, segir að í landi fijálsrar verðmyndunar verði verð- lag erlends gjaldeyris að lúta framboði og eftirspum. „Sannvirði útflutningsteknanna, ásamt eðli- legri fjármagnsmyndun í útflutn- ingsgreinum, mun skapa betri lífskjör á landsbyggðinni. Varað er við þeirri stjórnlausu eyðslu gjaldeyris og íjármuna þjóðarinnar sem er langt umfram skynsamleg mörk. Kanna þarf möguleika á að breyta núverandi lánskjaravísitölu húsnæðislána t.d. með því að verð- tryggja lánin miðað við vísitölu söluverðs fasteigna eftir svæðum. Þetta mun víða ýta undir byggingu húsnæðis þar sem stöðnun hefur ríkt vegna þess að of áhættusamt þykir að festa fé í fasteignum. Umbreyta þarf reglum um álagningu aðstöðu- og fasteigna- gjalda og auka þarf hlut landsút- svara. Aðför ríkisvaldsins að fjár- hagslegu sjálfstæði sveitarfélaga í landinu með gengdarlausri skerð- ingu tekna Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga, ásamt einhliða skerðingu álagningarréttar tekjustofna sveitarfélaga, er alvarlegasta að- för stjómvalda um langa hríð að landsbyggðinni. Sjálfstæð og þróttmikil sveitarfélög er undir- staða þeirra félagslegu skilyrða, sem grundvallar búsetu lands- byggðar í samkeppni við þéttbýlis- svæðin við Faxaflóa. Fáist ekki skilningur á þessu meginatriði raunhæfðrar byggðastefnu duga ekki einhliða og tímabundnar að- gerðir í atvinnumálum," segir í ályktun fjórðungsstjórnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.