Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 51
Hl
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988
51
Úr hinum pattaralega sirkus Waters: Dæilega túberaðar mæðgur
(Harry og Divine) ásamt hárprúðum dætrum. Hin óviðjafnanlega,
feitfima Brown lengst til hægri.
BríUjantín og hár-
lakk í Baltimore
Kvlkmyndlr
Sæbjörn Valdimarsson
Hárlakk — „Hairapray"
Leikstjóm og handrit: John
Waters. Kóreógrafía: Edward
Love. Framleiðandi: Rachel Tal-
alay. Aðalleikendur: Sonny Bono,
Ruth Brown, Divine, Debbie
Harry, Ricki Lake , Jerry Stiller,
Ric Ocasek, Pia Zadora, Mink
Stole. Bandarísk. New Line
Cinema 1988.
Hneykslunarhellan og háðfuglinn
John Waters (sem ofbauð penustu
kvikmyndahátíðargestunum fyrir
nokkrum árum með verkum eins
og Female Troubles, Pink Flaming-
os og öðrum blöskrunarlegum satír-
um) hefur einstakt lag á að koma
flatt uppá fólk. Að þessu sinni með
því að færast ótrúlega langt í áttina
að vera „eðlilegur". Hárlakk er
nefnilega víðsflarri hinum yfír-
gengilegu, fyrri myndum hans, sem
höfðu fyrst og fremst það markmið
að koma við kaunin á fólki á sem
óhæfílegastan hátt.
Efnið og umbúnaðurinn er fyrir-
ferðarlítill. Myndin gerist i byijun
sjötta áratugsins — í Baltimore að
sjálfsögðu — stelpur með hárið túb-
erað eftir kúnstarinnar reglum,
strákar brilljantínkembdir. Dansinn
var twist, Chubby Checker átrúnað-
argoðið. í Baltimore var það óska-
draumur hverrar heysátu-túberaðr-
ar yngismeyjar að komast í dans-
þáttinn í sjónvarpinu, Collinssjóið,
jafnvel einnar vel jarðbundinnar,
sökum þyngsla.
En hér fer sem í ævintýrinu um
Öskubusku; jússan sér, kemur og
sigrar í þættinum og bolar þar með
fegurðardísinni úr fyrsta sætinu og
stelur af henni vinsælasta brillj-
antíngæanum í ofanálag. Og svona
til að bæta um enn betur verður
hún píslarvottur og að lokum hetja
í baráttunni um jafnrétti kynþátt-
anna í borginni.
En aðdáendur Waters þurfa ekki
að örvinglast, það bregður fyrir
gömlum töktum og Hárlakkið er
keyrt áfram af léttruglaðri maníu.
Og myndin ekki alveg laus við
rottugang né gubbupestir. Waters
er aðeins mun hæverskari en áður
og hefur aldrei verið jafn ísmeygi-
lega hnyttin. Persónumar hver ann-
arri broslegri og vel túlkaðar af
skrautlegri hjörð atvinnuleikara,
viðvaninga og fastamanna í mynd-
um leikstjórans. Fyrst skal frægan
nefna Divine, hann er óborganlegur
í hlutverki móður þeirrar þybbnu
(bregður einnig fyrir í karlhlut-
verki). Synd að karl var að falla
frá, hann var orðinn svo sannfær-
andi viðkunnanleg kerlingarskjóða!
Debbie Harry (Blondie) og Sonny
Bono (sem ekki hefur elst jafn tfgu-
lega og Cher, kona hans fyrrver-
andi) em kímileg í foreldrahlutverk-
um fegurðardísinnar, sem þau
reyna að notfæra sér til framdrátt-
ar. Stiller er góður, en það er feita
fjörið, hún Ruth Brown, sem stelur
senunni. Hún dansar af miklu of-
forsi, skekur sig og hristir af þeirri
afkáralegu fími sem sumu þétthoida
fólki er gefíð! Og reyndar era það
hin meinfyndnu dansatriði sem bera
myndina uppi. Þau era engu öðra
lfk sem sést hefur áður á hvíta tjald-
inu. Hnyttileg skemmtun þeim sem
eitt sinn stóðu sveitt f þessum til-
burðum og ekki sfður þeim sem hér
sjá í fyrsta sinn þessa einstöku
dansmennt foreldranna í skop-
skældri útgáfu þess meinfyndna
sirkusstjóra, Waters.
Námskeið í ítölsku
Heimspekideild Háskóla ís-
lands og endurmenntunarnefnd
HÍ munu á timabilinu 24. maí til
16. júní bjóða upp á tvö nám-
skeið i ítölsku. Kennari verður
sendikennarinn prófessor Rob-
erto Tartaglinone frá ítölsku
menningarmálastofnuninni
Mondo Italiano.
Annað námskeiðið verður bytj-
endanámskeið þar sem ekki er gert
ráð fyrir neinni kunnáttu í ítölsku.
Námskeiðið verður um 60 klukku-
stundir, 3 tfmar á dag, fímm daga
vikunnar, kl. 16.00-19.00. Há-
marksfjöldi þátttakenda er 20
manns.
Hitt námskeiðið er ætlað þeim
sem lengra era komnir og gerir ráð
fyrir einhverri undirstöðukunnáttu
í ftölsku. Það námskeið stendur
einnig í um 60 klukkustundir og
hefst kl 9.00, þann 24. maí. Tíma-
seting verður að öðru leyti eftir
nánara samkomulagi og er há-
marksfjöldinn 20 manns.
Þátttökugjald verður kr. 7.500,-
auk lítils háttar bókakostnaðar.
Skráning á námskeiðið fer fram á
aðalskrifstofu HÍ. Allar frekari upp-
lýsingar era gefnar á skrifstofu
endurmenntunarstjóra.
(FréttatHkynnliig)
Sérmerkjum
ölglös
með skemmtUegum
teikningum - eða eftir
ykkar tillögum!
Höfðabakka 9
Sími 685411
Vinningstölurnar 14. maí 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.633.664,-
1. vinningur var kr. 2.322.304,- og skiptist hann á milli 2ja
vinningshafa, kr. 1.161.152,- á mann.
2. vinningur var kr. 694.784,- og skiptist hann á milli 236
vinningshafa, kr. 2.944,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.616.576,- og skiptist á milli 6.968 vinn-
ingshafa, sem fá 232 krónur hver.
HÚSFELOG - FYRIRTÆKI - STOFNANIR
Nú er hægt að mála bHastæði á mjög f Ijótvirk-
an og hagkvæman hátt med LINESMAN kerf-
inu frá Smyth - Morris
• Málningunni er úðað á flötinn sem gefur mjög jafna
áferð.
• Slitsterk málning sem binst mjög vel við flötinn.
• Snertiþurrá hálftima.
• Full þurrá 24 klst.
• Fæstíölitum.
• Gerum tilboð yður að kostnaðarlausu.
Alhliða málningarþjónusta allan ársins hring.
Almálun s.f.
Svanþór Þorbjörnsson, málarameistari
Seljalandi 1-108 Reykjavík
Slmar 985-25829 og 681776
Garctsláttuvélin
sam aaaíí íra
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg.
Fyrirferðarlítil, létt og meðfærileg.
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Auðveldar hæðarstillingar.
Þú slærð betur með
áijlLfa k .Iiwnti wMnii i,iVja i\