Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 52

Morgunblaðið - 17.05.1988, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17 MAÍ 1988 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson í dag ætla ég að fjalla um hið dæmigerða fyrir Nauts- merkið (20. apríl til 20. maí) í bemsku. Alltaf verðum við að hafa í huga þegar við spáum í vini okkar að hver maður á sér nokkur stjömu- merki sem öll hafa sín áhrif. Rólegt barn Lítið dæmigert Naut er rólegt og friðsamt barn. Það er hægt og almennt má segja að lítið fari fyrir því. Það dundar gjaman út af fyrir sig og er heldur lokað og varkárt. For- eldrar ættu því ekki að þurfa að hafa alltof mikið fyrir því. Á hinn bóginn er vissara að varast að gleyma því og gæta þess að það fari ekki of langt inn í sig. Því er ekki úr vegi að gæta þess að ræða reglu- lega við Nautið og fá það til að tjá sig. Vinna gegn feimni þess og hlédrægni í róleg- heitum. Hœglát Eitt er það sem foreldrar Nauta verða að gera sér grein fyrir. Það er það að Nautið er hálfgerður jeppi, þ.e. hraði þess er jafn, rólegur og hæg- ur. Ef foreldrar Nautsins eru í Hrút, Tvíbura, Bogmanni eða em óþolinmóð vegna ann- arra afstaðna þurfa þau að gæta þess að gera bamið ekki taugaveiklað með því að reka stöðugt á eftir því. Allir for- eldrar þurfa að viðurkenna og virða að hraði Nautsins er annar en gengur og gerist. Naut þarf tíma til að átta sig á nýjum staðreyndum og að- stæðum, á því að Naut er duglegt þrátt fyrir rólyndið. Það fer sér kannski hægt en vinnur jafnt, gefst ekki upp, og afkastar jafnmiklu eða meiru en aðrir þegar upp er staðið. Þrjóska Áberandi eiginleiki í fari allra sannra Nauta er þijóskan. Þegar litli bolinn hefur bitið eitthvað í sig, kýlir hann herð- amar saman, dregur hálsinn niður, kreppir hnefana og bor- ar fótunum niður í gólfið. Ef foreldrið ætlar að skamma það til hlýðni eða skipa því að skipta um skoðun, verður litla Nautið enn þijóskara og fastara fyrir. Foreldri sem ekki gefur sig og þvingar Nautið til að ganga þvert á vilja sinn, er komið út á hálan ís. Það að bijóta vilja lítils Nauts getur haft eyðileggj- andi áhrif á persónuleika þess og jafnframt leitt til inni- byrgðrar og langvarandi reiði. Nautið er friðsamt, en það er langrækið þegar einhver hef- ur gert á hlut þess. BlíÖa Hin rétta aðferð til að ná til Nauts er sú að höfða til skyn- semi þess og tilfinninga. „Elsku litla stelpan mín, viltu hjálpa mömmu að gera þetta fyrir mig.“ Fá Naut standast blíðu og það ef höfðað er til hjálpsemi þeirra. Því bak við allt er Nautið vemdandi og blítt merki. Skynsemi Onnur aðferð er sú, eins og framar var getið, að höfða til skynsemi Nautsins. Einn helsti styrkur merkisins. er heilbrigð skynsemi, raunsæi og hæfíleiki til að sjá stað- reyndir. Ef þú sest niður, i rólegheitum, og útskýrir fyrir Nautinu af hveiju best sé að gera þetta eða hitt, lætur það undan, þ.e. ef þú hefur skyn- samleg rök þín megin. Það sem hafa verður í huga, bæði þegar blíða og skynsemi er notuð á Nautið, er að tími skiptir máli. Ekki reka á eftir Nautinu, það þarf að melta ástina og rökin, fá að jórtra svolítið í friði. GARPUR ÞAÐ Efi 'AR OS DAGUil &ÍMN VOPN/ HEFU% Ö/SÐ/P AD Py/ JA AB> HANN /ZOÐNA g/ Hafþu Eex/ AHysGJue, /wpauoa. é<3 KEM AFTUR AE> F'a BREUNHEITT KAFiFI YFIR SKÝRSLURNAR Al/MAR. FAROU y/ET/LEGA ■ ______ // ' DÝRAGLENS *I0 2- / l SMÁFÓLK IF WE UNOER5TANP 50METHIN6, WE USUALLV AREN'T 50 AFRAIP... I THINK WE ALL FEAR TME UNKNOlON OONTVOUTHINK 50? I PONT KNOU) ) o Ef maður skilur eitthvað Ég held að við óttumst öll Heldurðu það ekki? er maður yfirleitt ekki hið ókunnuga. hræddur... Ég veit ekki. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Victor Molli, höfundur hinna vinsælu bóka um um bridslífíð í klúbbi ljóngammanna, lést í haust, eins og aðdáendur hans vita. Þá lágu eftir hann fjórar bækur um söguhetjumar Gölt- inn grimma og Hérann hrygga. Nú hefur komið í ljós að hann átti tilbúið handrit að þeirri fimmtu. Útgefandi hans hafði snör handtök og er þetta síðasta verk Mollos nú komið út undir titlinum „Destiny at Bay“. Þar er þetta spil að finna: Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♦ K V KG97 ♦ KG972 ♦ 982 Austur „llli *953 III J8643 ♦ 10 ♦ D10753 Suður ♦ ÁDG8 ♦ 1052 ♦ D8 ♦ ÁG64 Vestur Norður Austur Suður 1 spaði Pass Pass 4 spaðar Dobl Pass Pass Redobl Pass Pass Pass Ekki beint hefðbundnar sagn- ir, svo nokkurra skýringa er þörf. Hinn ótrúlega heppni Héri var með spil suðurs. Félagi hans í norður var Gölturinn grimmi. Þetta var síðasta spilið í sveita- keppni og samræður frá öðrum borðum gerðu það að verkum að Hérinn hélt að norður hefði opnað á einum spaða. Þegar vestur spilaði út vakti Hérinn athygli á því að útspilið kæmi frá rangri hendi. Það kom svo í hlut Galtarins að sannfæra hann um að það væri síður en svo óvenjulegt að spilarinn á vinstri hönd við sagnhafa léti út í fyrsta slag. Og bætti við: „Þú vinnur spilið með tveimur yfir- slögum ef þú átt fyrir sögnun- um.“ Vestur trompaði út. Hérinn fór heim á laufás í öðrum slag og tók hina trompslagina þijá. Spilaði svo hjarta. Það þarf ekki að rekja spilið frekar. Að sjálf- sögðu fékk vestur aðeins þijá slagi, einn á tromp og á rauðu ásana. Af einhveijum undarleg- um ástæðum verða mistök Hér- ans honum ætíð til góðs. Vestur ♦ 107642 ♦ ÁD ♦ Á6543 ♦ K SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á opna alþjóðlega mótinu í Lugano í Sviss í marz kom þessi staða upp í skák þeirra Afek, Isra- el og bandaríska stórmeistarans Boris Guljko, sem hafði svart og átti leik. Hvitur lék síðast 28. Kgl-g2? sem gaf Guljko kost á laglegri fléttu. 28. - Dxd3l, 29. Dxd3 - Rf4+, 30. Bxf4 - Hxd3 Endataflið er auðunnið fyrir svart, því hann vinnur annaðhvort peðið á b3 eða d4. 31. Hbl - Rxd4, 32. Rxd4 - Hxd4 og svartur vann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.